Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 50
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
ALLT ER FER-
TUGUM FÆRT
Íslenski dans-
flokkurinn fagnar
fertugsafmæli í
ár og sýnir meðal
annars verkið
Walking Mad af
því tilefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
! "
HARPA KALDALÓN
Sunnudag 14. apríl kl. 16:00
Miðaverð kr. 3.000 / 2.500
STEFÁN S. STEFÁNSSON
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
Styrkt af
Miðar á midi.is harpa.is í miðasölu Hörpu
Stórsveitin frumflytur heila efnisskrá nýrra og spennandi verka
eftir saxófónleikarann og tónsmiðinn Stefán S. Stefánsson. Stefán
þræðir hér nýja stigu og gerir tilraunir með takta og tónblæ, en
tónlistin er rituð með hljóðfæraleikara sveitarinnar í huga.
Stjórnandi: Stefán S. Stefánsson
Dansverkið Walking Mad eftir
sænska danshöfundinn Johan
Inger verður frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu annað kvöld. Það er
gamansamt verðlaunaverk sem
er sýnt víðs vegar um Evrópu um
þessar mundir. „Walking Mad flétt-
ar saman húmor, galsa og geðveiki
og hafði Johan Inger orðatiltæki
Sókratesar „Okkur hlotnast mestu
gæði gegnum brjálæði, ef það er
guðsgjöf“ að leiðarljósi þegar hann
samdi verkið. Verkið krefst mikils
af dönsurunum þar sem þeir fylgja
stigmagnandi takti tónverksins
Boléro eftir Maurice Ravel en sam-
tímis tjá þær miklu tilfinningar
sem fylgja verkinu,“ segir í frétta-
tilkynningu um verkið.
Auk Walking Mad verður flutt
verkið Ótta eftir Ásgeir Helga
Magnússon, Hjördísi Lilju Örnólfs-
dóttur og Unni Elísabet Gunnars-
dóttur. Þau eru öll dansarar
Íslenska dansflokksins og unnu
verkið í nánu samstarfi við aðra
dansara flokksins. Ótta var frum-
sýnt þann 22. nóvember síðastlið-
inn sem hluti af kvöldinu Á nýju
sviði en verður nú lagað að Stóra
sviði Borgarleikhússins og sýnt í
nýrri útfærslu.
Íslenski dansflokkurinn fagn-
ar 40 ára afmæli sínu í ár. Walk-
ing Mad er fyrsta frumsýning
afmælis ársins en dansflokkurinn
hefur í nógu að snúast. Að sögn
Gunnars Páls Jónssonar, mark-
aðsstjóra flokksins, er apríl met-
mánuður hjá flokknum, dansarar
hans taka þátt í 25 eða 26 sýning-
um. „Fyrir utan Walking Mad eru
dansarnir með í Mary Poppins,
sem er sýnd mjög þétt, þannig að
það er nóg að gera.“
Svo verður um sinn áfram. Fram
undan er flutningur á Vorblótinu
á Listahátíð í Reykjavík í maí og
þá verður verk Helenu Jónsdóttur,
Tímar, frumsýnt í haust. Tímar
byggir á stefnumóti eldri og yngri
kynslóða úr sögu íslenskrar dans-
listar og verður samið sérstaklega
í tilefni af afmælisári Íslenska
dansflokksins. sigridur@frettabladid.is
Fagna fertugsafmæli
með gamansýningu
Íslenski dansfl okkurinn frumsýnir Walking Mad eft ir sænska danshöfundinn
Johan Inger annað kvöld. Sýningin er sú fyrsta sem dansfl okkurinn frumsýnir á
40 ára afmæli fl okksins. Stefnir í að apríl verði metmánuður.
SÆNSKUR HÚMOR Walking Mad er eftir sænska danshöfundinn Johan Inger.
Listasafninu Louvre í París var lokað í gær eftir
að starfsfólk safnsins lagði niður störf í mót-
mælaskyni við ásækni vasaþjófa sem undan-
farið hafa herjað á gesti og starfsfólk safnsins.
Margir þjófanna eru börn sem komast ókeyp-
is inn í safnið vegna ungs aldurs. Aðferð þeirra
felst í því að betla pening og hópast í framhald-
inu í kringum fórnarlambið og stela af því verð-
mætum.
Í árslok í fyrra falaðist stjórn safnsins eftir því
að fleiri lögregluþjónar yrðu fengnir til að vakta
safnið, en ekki hefur dregið úr vandamálinu.
„Börnin eru mjög harðsvíruð og skipulögð,“
sagði einn starfsmaður í samtali við breska blað-
ið Telegraph. „Handtökur eru ekki mögulegar
vegna ungs aldurs krakkanna. Þeir mæta bara
aftur næsta dag þó að þeim sé hent út.“
Eftir lokun safnsins í gær héldu um 100 starfs-
menn að menntamálaráðuneytinu í Parísarborg
og kröfðust aðgerða yfirvalda.
Louvre-safni lokað vegna þjófa
Starfsfólk Louvre mótmælti aðgerðaleysi vegna ungra þjófa með verkfalli í gær.
LOUVRE 30.000 gestir sækja safnið heim dag hvern á þessum
árstíma. Í gær voru þeir töluvert færri vegna lokunar safnsins
síðdegis eftir að starfsfólk lagði niður störf.
MENNING