Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 52
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
TÓNLIST ★★★★
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Ivan Volkov, einsöngvari:
Hanna Dóra Sturludóttir
HARPA 5. APRÍL
Ef tónskáldin Wagner og Mendels-
sohn væru á lífi í dag og væru gest-
ir í Silfri Egils, þá myndi þáttur-
inn enda með handalögmálum og
óvæntu auglýsingahléi.
Tónlist eftir óvinina var á dag-
skránni á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands á föstudagskvöldið.
Óvinirnir voru nánast jafnaldrar.
Mendelssohn dó þó langt fyrir
aldur fram. Þegar hann kvaddi
þennan heim var hann talinn eitt
mesta tónskáld fyrr og síðar. Það
átti eftir að breytast. Í dag líta
margir á hann sem annars flokks
tónskáld. Tónlist hans þykir vissu-
lega tæknilega fullkomin, auk
þess sem laglínurnar eru flottar.
Sumum finnst hún bara ekki nógu
djúp.
Líklegast er það Wagner að
kenna. Skömmu eftir að Mendels-
sohn dó skrifaði Wagner afar
fjandsamlega grein um hann. Hún
var full af gyðingahatri – Mendels-
sohn var jú af gyðingaættum.
Wagner hélt því fram að hann
hefði ekki haft nauðsynlegan inn-
blástur, hefði ekki verið raunveru-
legur listamaður, þrátt fyrir mikla
menntun og hæfileika, vegna þess
að hann var gyðingur.
Nú er ekki alveg ljóst af hverju
Wagner skrifaði þessa grein.
Sennilega var það vegna þess að
hann var sjálfur að reyna að kom-
ast á þann stall sem Mendelssohn
var á.
Það eimir eftir af áhrifum
greinar innar í dag. En á tónleik-
unum á föstudagskvöldið var alveg
ljóst hver hafði vinninginn. Það
var Mendelssohn! Flutt var þriðja
sinfónían hans, Hin skoska eins
og hún er venjulega kölluð. Ilan
Volkov stjórnaði, og það er gaman
að segja frá því að hann hefur
sjaldan verið betri. Túlkunin var
opnari og óheftari en oft áður. Tón-
listin var ótrúlega hrífandi undir
stjórn hans. Hún var ekki aðeins
áferðarfalleg og flott samansett,
heldur líka þrungin skáldskap.
Maður fann fyrir þessu óáþreifan-
lega, sem að mínu áliti einkennir
sanna list.
Blásararnir voru í banastuði,
sérstaklega hornleikararnir. Í
hröðu köflunum var hljómsveitin í
heild að vísu eilítið ósamtaka. En í
lifandi flutningi er svo sem aldrei
neitt fullkomið. Aðalatriðið var
túlkunin.
Wagner kom reyndar einnig
ágætlega út. Sigfried Idyll, sem
leikið var af litlum hópi meðlima
hljómsveitarinnar, var glæsilegt.
Samspilið var nákvæmt, og þráð-
urinn í tónlistinni slitnaði aldrei.
Wesendonck-ljóðin voru líka mögn-
uð. Músíkin sjálf er ekki með því
besta eftir Wagner, það er eitt-
hvað fyrirsjáanlegt í henni – hún
er of úthugsuð. En það fyrirgafst
því söngurinn var ekki af þess-
um heimi. Einsöngvarinn var
einn fremsti söngvari þjóðarinn-
ar, Hanna Dóra Sturludóttir. Rödd
hennar var einstaklega fögur; túlk-
unin svo fáguð og markviss að það
var dásamlegt.
Að lokum verð ég að nefna eitt
atriði sem skiptir máli á Sinfóníu-
tónleikum. Það er tónleikaskráin. Í
henni er venjulega ítarlegur texti
um tónlistina á dagskránni. Text-
inn er hluti af tónlistarupplifun-
inni, fólk fræðist um verkin og fær
betri innsýn í þau. Hinn ritfæri
Árni Heimir Ingólfsson skrifaði
áður í tónleikaskrárnar og gerði
það af fagmennsku. Sömu sögu er
ekki að segja nú. Textinn var eftir
Helga Jónsson, margar setningarn-
ar voru alltof langar, og sömu orðin
komu stundum fyrir aftur og aftur.
Það var pínlegt. Hér hefði þurft að
vanda betur til verka. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Glæsilegur flutningur
á tónlist eftir Wagner og Mendels-
sohn. Söngurinn var himneskur. En
textinn í tónleikaskránni hefði mátt
vera vandaðri.
Fjandmenn saman á tónleikum
Andri Björn Róbertsson, bass-
barítón, og Kristinn Örn Kristins-
son, píanó, flytja ljóðasönglög
eftir Carl Loewe, Sigvalda Kalda-
lóns, Jónas Ingimundarson og
Franz Schubert í Salnum á morg-
un, fimmtudag klukkan 20.
Tónleikarnir eru liður í tón-
leikaröðinni Tónsnillingar
morgun dagsins.
Andri Björn var tilnefndur til
Íslensku tónlistarverðlaunanna
2012 sem bjartasta vonin og núna
í mars vann hann fyrstu verðlaun
í Alþjóðlegu Mozart-söngkeppn-
inni í London. Auk þess vann
hann einnig áheyrendaverðlaun
og sérstök verðlaun fyrir túlkun
á Schubert. Hann stundar nú nám
við óperudeild Royal Academy of
Music í London.
Kristinn Örn stofnaði ásamt
fleirum Allegro Suzuki-tónlistar-
skólann í Reykjavík árið 1998 og
hefur starfað þar síðan. Einnig er
hann meðleikari við Söngskólann
í Reykjavík.
Tónsnillingar
morgundagsins
ANDRI BJÖRN Rísandi stjarna á
tónlistar himninum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
EINLEIKIN GAMANSEMI EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS
SÝNINGAR ERU HAFNAR Í HÖRPU
ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR!
VORU
M
AÐ BÆ
TA
VIÐ F
LEIRI
SÝNIN
GUM!
SENA.IS/L
AD
DI
#laddilengirlifid