Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 56
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 Stórmyndin Oblivion verður frum- sýnd hér á landi annað kvöld. Myndin gerist í óskilgreindri fram- tíð og er jörðin rústir einar eftir árás geimvera á plánetuna. Sextíu árum eftir stríðið er mannfólkið í óða önn að undirbúa brottför sína með því að safna saman þeim nátt- úruauðlindum sem eftir eru á jörð- inni og eyða innrásarherjum sem urðu innlyksa á plánetunni eftir stríðslok. Jack Harper er fyrr- verandi hermaður sem gerir við vélmenni og könnunarloftför sem sinna eftirlitsstörfum á mannlausri jörðinni. Dag einn bjargar hann ungri konu úr geimfari sem hrap- ar til jarðar og skömmu eftir komu hennar er Jack rænt af hópi upp- reisnarmanna sem starfar undir stjórn hins dularfulla Malcolms Beech. Í kjölfarið neyðist Jack til þess að endurmeta allt sem hann áður taldi sig vita um innrásina og eftirmál hennar. Tom Cruise fer með hlutverk Jacks Harper og líkt og kunnugt er dvaldi hann hér á landi við tökur á myndinni. Úkraínska leikkonan Olga Kurylenko fer með hlutverk hinnar dularfullu Juliu Rusakovu sem Jack finnur í hröpuðu geim- fari. Með önnur hlutverk fara stórleikarinn Morgan Freeman, Andrea Riseborough, hinn danski Nikolaj Coster-Waldau og Zoë Bell. Leikstjóri myndarinnar er Joseph Kosinski, sem leikstýrði áður myndinni Tron: Legacy frá árinu 2010. Handrit myndarinn- ar er byggt á teiknimyndasögu sem Kosinski samdi árið 2005, skömmu eftir að hann flutti til Los Angeles. Walt Disney keypti réttinn að myndinni árið 2010 en hætti við þau áform þegar í ljós koma að ómögulegt yrði að gera fjölskylduvæna mynd úr hand- ritinu. Universal Pictures tók við keflinu og réð Kosinski til þess að skrifa handritið að myndinni og leikstýra henni. Frumsýning Oblivion verður víðast hvar ekki fyrr en í næstu viku og því er lítið um gagnrýni enn sem komið er. Peter Brad- shaw, gagnrýnandi The Guardian, gefur Oblivion þó tvær stjörnur og segir myndatökuna einkennast af nærmyndum af þaulæfðum hasarhetju svip Tom Cruise. - sm Eyðileg framtíðarsýn Stórmyndin Oblivion verður frumsýnd annað kvöld. Tom Cruise fer með aðal- hlutverk myndarinnar, sem gerist á eyðilegri jörð í óskilgreindri framtíð. Á EYÐIJÖRÐ Tom Cruise fer með aðalhlutverkið í spennumyndinni Oblivion. Myndin var að hluta til tekin upp hér á landi síðasta sumar. Tom Cruise dvaldi á Íslandi síðasta sumar við tökur á Oblivion. Þáverandi eiginkona hans, leikkonan Katie Holmes, heimsótti Cruise á meðan á dvöl hans stóð. Skömmu eftir heimsókn Holmes staðfesti lögmaður hennar við tímaritið People að hjónaband þeirra væri á enda. Ljósmyndir Júlíusar Sigurjónssonar af Holmes og Cruise á gangi í Reykjavík voru þær síðustu sem náðust af hjónakornunum saman. Skilnaður í kjölfar Íslandsheimsóknar Auk stórmyndarinnar Oblivion er gamanmyndin The Incredible Burt Wonderstone frumsýnd á morgun. Jim Carrey, Steve Buscemi og Steve Carrell leika aðalhlutverk í myndinni sem fjallar um töframenn í Las Vegas. Töframannadúóið Anton Marvel- ton og Burt Wonderstone, sem leiknir eru af þeim Steve Buscemi og Steve Carell, eru meðal þeirra frægustu í bransanum. Þeir þurfa hins vegar að bregðast við dalandi miðasölu á galdrasýningu þeirra því áhorfend- ur virðast vera farnir að fá leið á sí- endurteknum töfrabrögðunum. Götu- listamaðurinn Steve Gray, sem Jim Carrey leikur, virðist vera að stela sviðsljósinu og þeir Marvelton og Wonderstone þurfa að vera hugmynda- ríkir til að ná aftur stöðu sinni sem þeir bestu í bransanum. The Incredible Burt Wonderstone var frumsýnd vestanhafs þann 15. mars og hefur fengið ágætis dóma. Gagnrýnandi The Guardian gaf mynd- inni þrjár stjörnur. Leitin að galdraneistanum Gamanmynd með grínistaelítunni í Hollywood frumsýnd. TÖFRAMAÐUR Steve Carell í hlutverki sínu sem Burt Wonderstone. NORDICPHOTOS/GETTY Anne Hathaway og Christopher Nolan munu leiða hesta sína saman að nýju í myndinni Interstellar, en Hathaway og Nolan unnu síðast saman að gerð The Dark Knight Rises. Deadline greinir frá því að Hatha way muni leika á móti Matt- hew McConaughey, en þátttaka hans í myndinni var staðfest í lok mars. Líkt og Nolan er vani hvílir mikil leynd yfir söguþræði myndar innar, en ljóst er að hún gerist í geimnum einhvern tímann í framtíðinni. Tökur á Interstellar ættu að fara fram í sumar og verð- ur myndin frumsýnd í nóvember á næsta ári. Vinnur með Nolan Anne Hathaway í nýrri kvikmynd Batman-leikstjóra. Norræn kvikmyndahátíð hefst í Norræna húsinu í dag og stendur til 21. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin og er stefnt að því að hún verði árleg. Á hátíðinni er lögð áhersla á að sýna gæðamyndir frá Norðurlönd- unum og er opnunarmynd hennar danska myndin Kapringen með Pilou Asbæk í aðalhlutverki. Allar myndir hátíðarinnar verða sýndar í Norræna húsinu og hefjast sýningar klukkan 18 og 20. Myndirnar verða sýndar með enskum texta og er aðgangur ókeypis. Áhersla á norrænar gæðamyndir Norræn kvikmyndahátíð hefst í Norræna húsinu í dag. Opnunarmyndin er Kapringen frá Danmörku. NORRÆN HÁTÍÐ Norræn kvikmynda- hátíð hefst í dag. Opnunarmynd hátíðarinnar skartar Pilou Asbæk í aðal- hlutverki. NORDICPHOTOS/GETTY MEÐ NOLAN Anne Hathaway mun endurnýja kynni sín við leikstjórann Christopher Nolan. NORDICPHOTOS/GETTY ➜ Töframaðurinn David Copper field sá um að þjálfa leikarana í alvöru töfra brögðum fyrir tökur á myndinni. Get tu hvað ég heiti! Verið velkomin að fagna með okkur útgáfu bókarinnar GILITRUTT OG HRAFNINN eftir Bernd Ogrodnik og Kristínu Maríu Ingimarsdóttur í Eymundsson Austurstræti, í dag 11. apríl kl. 17. Fimm heppnir kaupendur fá tvo frímiða á Gilitrutt í Þjóðleikhúsinu í Eymundsson Austurstræti í dag!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.