Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 58
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
490 kr.
kostar mánaðar áskrift á
Makaleit.is. Þriggja
mánaða áskrift kostar
1.190 krónur. Nýjum
notendum býðst ókeypis
áskrift í þrjátíu daga.
„Við viljum ekki að
áskrift létti
pyngjuna um of.
Þrír mánuðir
kostar svipað
og einn
bíómiði,“ segir
Björn Ingi.
Fæst án lyfseðils
Verkir í
hálsi og
öxlum?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í hálsi
og öxlum!
Stefnumótasíðan Makaleit.is er
glæný viðbót í stefnumótaflóruna hér
á landi og ætluð fólki á öllum aldri.
Síðan er hönnuð af Birni Inga Hall-
dórssyni forritara og fór í loftið fyrir
fimm vikum.
Björn Ingi hefur unnið að gerð síð-
unnar frá því í ágúst í fyrra. Hann
segir viðbrögðin hafa verið góð og
eru skráðir notendur nú um fimm
hundruð talsins. „Það kom okkur á
óvart að flestir skráðir notendur eru
konur á aldrinum 30 til 45 ára. Við
bjuggumst við því að karlmenn yrðu
í meirihluta,“ segir Björn Ingi.
Aðspurður segir hann að vefurinn
sé einstaklega traustur og geta not-
endur sjálfir stýrt því hverjir hafa
aðgang að hvaða upplýsingum. Að
auki geta skráðir notendur síðunnar
óskað eftir því að láta staðfesta aldur
sinn og kyn. „Vefurinn er ætlaður
fólki í leit að lífsförunaut og ekki
þeim sem eru í leit að einnar nætur
gamni.“
Meðal þeirrar þjónustu sem Maka-
leit.is býður upp á er persónuleika-
pörun. Þá svarar einstaklingurinn
spurningum um persónuleika sinn,
áhugamál og viðhorf til sambanda.
Niðurstaðan er síðan keyrð saman
við svör aðila af hinu kyninu og
þannig getur fólk auðveldlega
fundið aðra sem deila áhuga-
málum þeirra og lífsskoðun-
um. „Fólk getur einnig sýnt
hvort öðru „leyndan áhuga“.
Hafi sömu einstaklingar sýnt
hvor öðrum áhuga lætur kerfið
þá vita af því, annars helst áhug-
inn leyndur,“ segir Björn Ingi.
sara@frettabladid.is
Stefnumótasíða fyrir
fólk í leit að maka
Björn Ingi Halldórsson forritari hannaði vefsíðuna Makaleit.is. Síðan er ætluð
fólki í leit að lífsförunaut og hefur slegið í gegn meðal einhleypra kvenna.
NÝJUNG FYRIR EINHLEYPA Björn Ingi Halldórsson forritari hannaði stefnumótasíðuna Makaleit.is. Síðan fór í loftið fyrir fimm
vikum og telur um 500 notendur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sambandsmiðlun.is
Einkamál.is
Makaleit.is
➜ Íslenskar stefnu-
mótasíður
? Spurning: Ég var að spá í stunur því kærasti minn er
nánast hljóðlaus þegar við sofum
saman. Mér finnst gott að stynja
en um daginn þá sagði hann mér
að vera róleg og að ég þyrfti ekki
að þykjast finnast þetta svona
gott. Málið var samt að mér
fannst þetta mjög gott og finnst
eiginlega bara betra þegar ég
styn. Ég vildi því vita af hverju
stynja sumir mjög hátt og aðrir
ekki? Er algengara að konur
stynji frekar en karlar?
SVAR: Þetta er virkilega áhuga-
verð spurning og ágætt að setja í
samhengi við áreynslu og líkams-
rækt. Einkaþjálfari sagði mér eitt
sinn að öndun væri mjög mikil-
væg þegar maður væri í ræktinni
og að maður þyrfti að passa að
halda alls ekki niðri í sér andan-
um. Það væri ekki verra ef að það
heyrðist í manni, þetta væru jú
átök. Ef þú spáir í það þá heyrir
maður karlmenn oft stynja hátt
og skammarlaust þegar þeir lyfta
þungum lóðum. Þá er það vel
þekkt úr tantra-fræðum (sem og
jóga) að öndun getur verið lykil-
inn að unaði. Þar getur maður
stillt hugann inn á við en hugur-
inn er einmitt mjög mikilvægur
þegar kemur að kynlífi. Ef maður
er farinn að veita öndun meiri
athygli en unaðinum þá getur önd-
unin byrjað að trufla, hvort sem
hún er of mikil eða of lítil. Eins og
með svo margt annað, þá er mikil-
vægt í þessu að tala saman. Segðu
kærasta þínum að það auki unað
þinn að fá að stynja og að það sé
alls ekki merki um neins konar
fíflagang (ekki það að fíflagang-
ur sé bannaður uppi í rúmi, síður
en svo). Að sama skapi getur þú
spurt hann hvort hann langi ekki
að sleppa aðeins af sér beislinu og
stynja af ánægju, allavega anda
markvisst? Það þarf ekki að fara
í samkeppni við reyndustu klám-
leikara, bara anda aðeins og þá
munu stunurnar fylgja.
Það getur aukið á unað beggja
í kynlífi þegar það heyrist aðeins
í ykkur en finnið gullna meðal-
veginn sem þið getið bæði verið
sátt með.
Stunurnar auka á unaðinn
STUNUR AF HINU GÓÐA Stunur geta aukið á unaðinn í kynlífi og því ætti fólk að
stynja hátt og skammarlaust. NORDICPHOTOS/GETTY