Fréttablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 60
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44 Söngkonan Avril Lavigne og Chad Kroeger, söngvari hljómsveitarinnar Nickleback, trúlofuðust síðasta sumar eftir mánaðar- langt samband. Parið ræddi samband sitt og brúðkaupsáform sín í útvarpsþætti Ryans Seacrest fyrir skemmstu. „Þetta verður lítið brúðkaup með nánustu vinum okkar og fjölskyldu. Það verður samt stórfenglegt og það verður þema. Chad veit ekki öll smá- atriðin enn þá,“ sagði söngkonan um væntanlegt brúðkaup. Lavigne og Kroeger kynntust fyrir ári síðan er þau unnu saman við gerð hljómplötu. Halda lítið brúðkaup LÍTIÐ BRÚÐKAUP Avril Lavigne ætlar að halda litla brúðkaups- veislu með Chad Kroeger. BÍÓ ★★★ G.I. Joe: Retaliation Leikstjórn: Jon M. Chu Leikarar: Dwayne Johnson, Jonathan Pryce, Adrianne Palicki, Byung-hun Lee, Ray Stevenson. G.I. Joe: Retaliation er heimsku- leg og yfirdrifin. Persónusköpun- in er arfaslök og tæknibrellurnar misgóðar. Samt hefur hún eitt- hvað. Heilmikið meira að segja, því hún er þrælskemmtileg fram- an af. Það er erfitt að benda nákvæm- lega á hvað það er sem virkar, því mjög margt í myndinni virkar alls ekki. Ég hallast þó að því að það sé gleðin. Sama gleði og illa spilandi en kraftmiklar pönk- sveitir búa stundum yfir. Með þessu er ég alls ekki að segja að ávallt beri að taka viljann fyrir verkið. Dwayne Johnson er vöðvatröll en hann er ekki síður sjarmatröll. Nær- vera hans gerir heilmikið fyrir myndina og Jonathan Pryce er skemmtilegur skúrkur. Andi bandarískra hasarteikni- mynda níunda áratugarins svíf- ur yfir vötnum með tilheyrandi þjóðrembu og dramatík. Inn á milli má svo (með miklum vilja) greina ádeilu á vígbúnaðarkapp- hlaup stórveldanna, en G.I. Joe: Retaliation lætur mann fyrst og fremst langa til að kasta poppi og láta dólgslega. Haukur Viðar Alfreðsson NIÐURSTAÐA: Bjánaleg en fer langt á sjarmanum. Kraft mikið poppkorns- fjör og pönkgleði G.I. JOE: RETALIATION „… G.I. Joe: Retaliation lætur mann fyrst og fremst langa til að kasta poppi og láta dólgslega.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.