Fréttablaðið - 11.04.2013, Page 64
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
Ég hafði gaman af
því að æfa íþróttina og
það gaf mér lífsfyllingu
löngu áður en ég byrjaði
að keppa.
Gunnar Nelson
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
Kynning og viðtöl við áhugasama verða í stofu HT-300
á Háskólatorgi föstudaginn 12. apríl kl. 14–16
Umsóknarfrestur er til 15. apríl
Sjá nánar á www.matur.hi.is
og í kennsluskrá Háskóla Íslands 2013–2014
www.kennsluskra.hi.is
Námsleiðir í boði eru:
» Lífefni í matvælum og líftækni
» Gæðastjórnun við framleiðslu og vinnslu matvæla
» Matvælavinnsla og verkfræði
Kennarar og leiðbeinendur taka á móti
gestum og kynna og ræða námsleiðir,
verkefni og samstarf við atvinnulífið
í nýju alþjóðlegu meistaranámi.
Alþjóðlegt meistaranám í matvælafræði
í samvinnu Háskóla Íslands og Matís
MATVÆLA- OG NÆRINGARFRÆÐIDEILD
ÍÞRÓTTIR „Þetta er bara það sem
gerist í íþróttum í dag. Þetta er
bara smá hola í veginum. Það
verður lítið mál að yfirstíga hana,“
segir Gunnar um meiðslin. Hann
áttaði sig á því að ekki væri allt
með felldu á æfingu síðastliðinn
fimmtudag.
„Það kom ægilega djúpur smell-
ur í hnéð þegar ég beygði mig
niður á æfingu. Ég hugsaði strax
að þetta væri ekki eðlilegt,“ segir
Gunnar. Örnólfur Valdimarsson
bæklunarlæknir telur að liðþófi í
hné sé rifinn. Aðgerðin fer fram á
föstudaginn. Gunnar tekur meiðsl-
unum með sinni einstöku stóísku
ró og hrósar happi með heilsu sína
til þessa.
„Ég hef verið mjög heppinn hing-
að til. Ég hef aldrei lent í neinum
meiðslum, bara eymslum,“ segir
Gunnar. Í raun sé um minnstu
mögulegu hnémeiðsli að ræða.
Kemur bardagi eftir þennan
„Hlutirnir geta farið mikið verr og
ég hef séð það hjá mínum nánustu
æfingafélögum og vinum.“
Að óbreyttu væri Gunnar nú
í æfingabúðum í New York-borg
en þangað átti hann að halda á
sunnudaginn. Undirbúningur fyrir
bardagann gegn Mike Pyle í Las
Vegas 25. maí var í hámarki en nú
er ljóst að ekkert verður af bar-
daganum.
„Auðvitað er þetta stór bardagi
og stór stund á ferlinum. En það
kemur annar bardagi eftir þenn-
an. Ef maður leggur svona mikið
á líkamann verður maður að verða
tilbúinn að yfirstíga svona vanda-
mál,“ segir Gunnar. Hann minnir
á að þótt keppnin sé einn þáttur sé
hún ekki grundvöllur þess að hann
æfi íþróttina.
„Ég hafði gaman af því að æfa
íþróttina og það gaf mér lífs-
fyllingu löngu áður en ég byrjaði
að keppa,“ segir Gunnar. Hann
hafi þó mjög gaman af bardag-
anum en hann muni þó fyrst og
fremst sakna stundanna í æfinga-
salnum á meðan hann jafni sig.
Ekki þeirra örfáu mínútna sem
bardaginn tekur.
Langi-Jón í lágmarki
Vakið hefur athygli að Gunnar er
mikill aðdáandi bakarísvörunnar
Langa-Jóns. Virtist um tíma sem
íslensk bakarí væru hætt að bjóða
upp á bakkelsið en þegar Gunnar
lýsti yfir áhuga sínum stóð ekki á
bakaríunum. Gunnar hefur litlar
áhyggjur af því að hlaupa í spik
þótt hann geti ekki æft af krafti í
nokkrar vikur.
„Ég hugsa að ég haldi Langa-
Jóni í lágmarki. Hann er meira
spari enda var það alltaf meining-
in,“ segir Gunnar. kolbeinntumi@365.is
Hef verið heppinn hingað til
Ekkert verður af fyrirhuguðum UFC-bardaga Gunnars Nelson og Mikes Pyle í Las Vegas í maí. Gunnar fer í
aðgerð á föstudag vegna rifi ns liðþófa. Hann reiknar með því að vera kominn á fullt innan nokkurra vikna.
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
UNDANÚRSLIT, 3. LEIKUR
SNÆFELL - KR 50-73 (17-33)
Snæfell: Kieraah Marlow 15/15 fráköst, Berglind
Gunnarsdóttir 10, Hildur Björg Kjartansdóttir 7/5
fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 6, Ellen Alfa
Högnadóttir 4/4 fráköst, Sara Sædal Andrésdóttir
2, Rósa Indriðadóttir 2/7 fráköst, Rebekka Rán
Karlsdóttir 2, Hildur Sigurðardóttir 2.
KR: Shannon McCallum 25/10 fráköst/6 stoðsend-
ingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11/13 fráköst,
Sara Mjöll Magnúsdóttir 9/4 fráköst, Björg Guðrún
Einarsdóttir 6/5 stolnir, Rannveig Ólafsdóttir 5,
Ína María Einarsdóttir 5, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 4/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 4, Sólrún
Sæmundsdóttir 2, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2.
Staðan í einvíginu er 2-1, KR í vil.
MEISTARADEILD EVRÓPU
FJÓRÐUNGSÚRSLIT, SEINNI LEIKIR
BARCELONA - PSG 1-1
0-1 Javier Pastore (50.), 1-1 Pedro (71.)
Barcelona komst áfram á útivallamarkareglunni.
Samanlögð úrslit voru 3-3.
JUVENTUS - BAYERN 0-2
0-1 Mario Mandzukic (64.), 0-2 Claudio Pizarro
(91.).
Bayern komst áfram, 4-0 samanlagt.
Dregið verður í undanúrslit á morgun. Í pottinum
verða Real Madrid, Barcelona, Bayern München
og Dortmund.
ÖFLUGIR Lionel Messi og David Beck-
ham komu báðir inn á sem varamenn í
leik Barcelona og PSG í gær. Messi hafði
mikil áhrif á leik sinna manna og átti
þátt í jöfnunarmarkinu. NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Hamarskonur endur-
heimtu sætið sitt í efstu deild
eftir 73-59 sigur á Stjörnunni í
Hveragerði í gærkvöldi í hrein-
um úrslitaleik um sæti í Dominos-
deild kvenna. Hamar kemur því
strax upp eftir fall í fyrra og tekur
sæti Fjölnis, sem féll á dögunum.
Íris Ásgeirsdóttir (23 stig, 8
stoðsendingar, 5 stolnir) og Marín
Laufey Davíðsdóttir (22 stig, 15
fráköst) fóru fyrir Hamarsliðinu
í gær og áttu Stjörnukonur fá svör
við leik þeirra. Íris var líka sátt í
leikslok:
„Við áttum ekki heima í þessari
deild. Þær mættu miklu tilbúnari
en við í leik tvö en við fórum yfir
það sem við gerðum illa í síðasta
leik og rúlluðum yfir þær í kvöld.
Við vissum að við værum miklu
betri. Við erum búnar að sýna það
í vetur að við erum langbesta liðið
í þessari deild,“ sagði Íris kát og
hún var ánægð með stuðninginn.
„Það var æðislegt að vinna þetta
fyrir framan þessa frábæru áhorf-
endur. Það er miklu skemmtilegra
að vinna þetta hérna með svona
áhorfendur en í Garðbænum,“
sagði Íris að lokum.
- óój
Áttum ekki heima í
þessari deild
Hamar endurheimti sæti sitt í úrvalsdeild kvenna.
FRÁBÆRAR Íris Ásgeirsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir fagna hér eftir leikinn í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
SPORT
LAS VEGAS MÁ BÍÐA
Gunnar Nelson er líklega með rifinn
liðþófa og þarf því að fara í aðgerð á
morgun. Hann missir því af bardaga
sínum gegn Mike Pyle sem átti að fara
fram í Las Vegas þann 25. maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI