Fréttablaðið - 11.04.2013, Page 70

Fréttablaðið - 11.04.2013, Page 70
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54 „Uppáhaldsdrykkurinn er vatn. Eins „boring“ og það hljómar.“ Kristín Inga Jónsdóttir fór með sigur af hólmi í karókíkeppni háskólanna. DRYKKURINN D YN A M O R EY K JA V ÍK Fimm gamlingjar komast að því að það er miklu betri aðbúnaður í fangelsum en á elliheimilum og grípa til sinna ráða. En leiðin á bak við rimlana reynist þyrnum stráð ... SPENNANDI KÓSÍKRIMMI! „Hrikalega skemmtileg!“ RADIO P4 BLEKI NGE Þar sem Alpafjöllin teygja sig suður á Ítalíu liggja nokkur undurfögur stöðuvötn, sum tilheyra alfarið Ítalíu, önnur eiga líka landamæri að Sviss. Í þessari fallegu ferð gefst einstakt tækifæri til að kynnast nánar þessu einstaka svæði á Norður-Ítalíu. Fararstjóri: Hlíf Ingibjörnsdóttir Um ferðina: LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS á mann í tvíbýli. Gist verður við Lago Maggiore í 4 nætur og við Comovatn í 3 nætur. 192.600 KR.- Ítalía heillar 11. - 18. júní Mjög mikið innifalið MENNING „Þetta kom mikið á óvart og er mér mikill heiður,“ segir Haraldur Þorleifsson vefhönn- uður sem tilnefndur er til Webby- verðlaunanna í tveimur flokkum. Verðlaunin eru þau virtustu innan vefheimsins. „Svona Óskarsverðlaun nörd- anna,“ bætir Haraldur við kíminn. Haraldur lauk BA-gráðu í heimspeki og viðskiptafræði og stefndi á að klára meistaragráðu í hagfræði en lauk ekki prófi. „Ég var á þeim tíma farinn að vinna sem grafískur hönnuður með náminu og að endingu varð það ofan á.“ Haraldur, sem er sjálfstætt starfandi, hefur á nokkrum árum skapað sér sess á meðal fremstu vefhönnuða í heiminum. Á ferli sínum hefur hann unnið fyrir Microsoft, Motorola og nú síðast Google við hönnun kynningar- síðu fyrir Google Maps. Fyrir þá vinnu hlaut hann tilnefningarnar. Haraldur er nýkominn heim ásamt konu sinni og ungri dóttur eftir sex mánaða búsetu í Japan. Fjölskyldan býr nú í Vestur- bænum en mun að sögn Haralds ekki koma til með að stoppa lengi þar sem fyrirhugaðir eru flutn- ingar til Berlínar um mánaða- mótin. „Við erum svo heppin að ég get unnið mína vinnu hvar sem er í heiminum og konan mín er enn þá í fæðingarorlofi auk þess sem hún er myndlistarkona. Okkur langar því að nota tækifærið og prófa okkur áfram í að búa víðs vegar um heiminn. Við ætlum að vera í Berlín í hálft ár og flytja svo til Suður-Ameríku með haust- inu.“ Hægt er að kjósa Harald og síðuna hans, www.morethana- map.com, og auka þar með mögu- leika hans á verðlaunum, á vef- síðu Webby-verðlaunanna. - mlþ Meðal fremstu vef- hönnuða heimsins Vefh önnuðurinn Haraldur Þorleifsson er á hraðri uppleið. Hann er eft irsóttur á meðal tölvurisa heimsins, hefur unnið fyrir Microsoft og Motorola og var á dögunum tilnefndur til stórra alþjóðlegra verðlauna fyrir vinnu sína fyrir Google. HARALDUR ÞORLEIFSSON Er tilnefndur í tveimur flokkum á hinum alþjóðlegu og virtu Webby-vefverðlaunum. Hann segir tilnefningarnar mikinn heiður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Webby-verðlaunin eru ein stærstu og virtustu verðlaun sem veitt eru á sviði margmiðlunar í heiminum. Verðlaunin eru oft kölluð Óskarsverðlaun internetsins. Verðlaunin eru veitt í mörgum flokkum, allt frá vefsíðu- hönnun til tónlistarmyndbanda. Aðeins einum Íslendingi hefur hlotnast sá heiður að vinna til verð- launanna en Björk Guðmundsdóttir var heiðruð sem listamaður ársins 2011. Webby-verðlaunin hafa verið veitt síðan 1995 og eru haldin hátíðleg ár hvert í New York. Webby-verðlaunin „Þetta er plata um ástina, von, vin- áttu, brostin hjörtu og löngun. Samt mest um ástina,“ segir listakonan Berglind Ágústsdóttir, sem sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu sem nefnist I am your girl á morgun. Berglind tók upp plötuna heima hjá sér en hún segir lögin öll vera mjög persónuleg. „Tónlistin á plöt- unni er ástar-, ópus-, tilraunakennd poppmúsík unnin í samvinnu við fjölmarga vini mína víðs vegar um heiminn,“ segir Berglind, sem opnar líka sýningu á föstudaginn í bókabúðinni Útúrdúr á Hverfisgötu. Þar verða til sýnis nokkrar teikn- ingar, litlar bækur, platan sjálf og vonandi nýtt myndband sem vin- kona hennar er að klára í New York. „Ég er líka vinna kassettu sem kemur út sama dag með svona til- raunum sem ég geri ein. Kassettan verður líka á sýningunni.“ Berglind stígur á svið á morgun klukkan 17.30 í Hörpu á tónleika- röðinni Undiröldunni. Þar hitar hún upp fyrir hljómsveitina Vök sem nýverið vann Músíktilraunir. „Ég hlakka mikið til að hitta alla vini mína á tónleikunum og svo opna sýninguna beint eftir að þeim er lokið. Sævar vinur minn ætlar að spila plötur. Bara kósý og lítið og barnvænt.“ - áp Plata sem fj allar mest um ástina Listakonan Berglind Ágústsdóttir sendir frá sér sínu fj órðu plötu, I am your girl. ➜ Uppáhaldslag Berglindar á plötunni er lagið I would never cheat on you with another boy. NÝ PLATA Berglind Ágústsdóttir segir nýju plötuna fjalla mest um ástina. „Ég er fjórði Íslendingurinn sem kemst inn og þar af önnur konan. Umsóknarferlið tók marga mánuði og ég sendi meðal annars inn hugmynd- ir að myndum í fullri lengd, samtöl, hugmynd að stuttmynd og vídeó,“ segir leikkonan Anna Gunndís Guð- mundsdóttir, sem komst nýverið inn í Tisch School of the Arts við New York-háskóla. Þar mun hún læra kvik- myndagerð með áherslu á leikstjórn næstu þrjú árin. Af átta hundruð umsækjendum voru hundrað boðaðir í viðtal og fór viðtal Önnu Gunndísar fram á sam- skiptaforritinu Skype. „Ég var með þrjár frumsýningar á skömmum tíma og komst alls ekki út í viðtalið. Ég tal- aði því við þau í gegnum Skype,“ segir Anna Gunndís, en hún starfar sem leikkona hjá Leikfélagi Akureyrar. Anna Gunndís flytur út í byrjun ágúst og kveðst hlakka mikið til enda sé borgin hreint ótrúleg. „Ég var í New York í þrjár vikur um jólin og þetta er alveg ótrúleg borg. Ég hlakka mikið til þess að koma þangað yfir sumar- tímann því það var skítkalt þegar ég var þarna síðast,“ segir hún og hlær. Eiginmaður hennar og samstarfs- félagi, leikarinn Einar Aðalsteinsson, mun svo flytja út í haust. „Hann ætlar að koma aðeins seinna og vonandi fær hann einhverja vinnu í kjölfarið.“ Spurð hvort hún ætli að snúa sér alfarið að leikstjórn að náminu loknu svarar Anna Gunndís neitandi. „Ég var spurð að því sama í viðtalinu og þá sagði ég nei. Maður getur vel gert bæði.“ - sm Ætlar ekki að leggja leiklistina á hilluna Anna Gunndís Guðmundsdóttir hefur nám í leikstjórn við Tisch School of the Arts í New York-borg. ÚT Í NÁM Leikkonan Anna Gunndís Guðmundsdóttir flytur til New York í ágúst og hefur nám í leikstjórn við NYU. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN umsækjendur af 800 fengu inngöngu í námið. 36

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.