Fréttablaðið - 07.05.2013, Side 11

Fréttablaðið - 07.05.2013, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. maí 2013 | FRÉTTIR | 11 Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 29. maí 2013 kl. 17.00 á Hilton Reykjavík Nordica. Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt á setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins. Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Tillögur og framboð skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til stjórnar verða birtar á vefsvæði sjóðsins, islif.is. Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins hvetur sjóðfélaga til þess að mæta. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði sjóðsins islif.is eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins Helstu kennitölur úr ársreikningi 2012 2011 Hrein raunávöxtun 2,7% 4,0% Hrein raunávöxtun – meðaltal sl. 3 ára 5,1% 6,0% Hrein raunávöxtun – meðaltal sl. 5 ára -4,3% -4,4% Fjöldi virkra sjóðfélaga – meðaltal 8.776 9.147 Fjöldi lífeyrisþega – meðaltal 246 237 Heildarfjöldi sjóðfélaga 27.652 27.456 Hrein eign til greiðslu lífeyris í lok tímabils (millj. kr.) 37.141 33.734 Tryggingafræðileg staða Samtryggingadeildar 31.12.2012 31.12.2011 Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -0,50% 1,80% Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar -2,00% 1,50% Ársreikning sjóðsins má nálgast á islif.is. LÍF I LÍF II LÍF III Samtrygging: Lögbundinn lífeyrissparnaður LÍF IV 5 ára meðalnafnávöxtun 3,9% 3,8% 3,7% 3,4% 2,5% 8,5% 7,1% 6,7% 5,0% 7,8% Nafnávöxtun 2012 ÞÝSKALAND, AP Réttarhöld hófust í Þýskalandi í gær yfir hópi fólks sem kennir sig við Neðanjarðar- hreyfingu þjóðernissósíalista, en fólkið eru ákært fyrir tíu morð, tvær sprengjuárásir og fimmtán bankarán á árabilinu 2000 til 2007. Átta hinna myrtu voru af tyrk- neskum ættum, einn var Grikki og hinn síðasti var lögreglukona. Þetta er stærsta mál sinnar teg- undar í Þýskalandi í áratugi, en hópurinn framdi illvirki sín um árabil án þess að yfirvöld skiptu sér af honum. Beate Zschaepe er talin vera höfuðpaur klíkunnar og á hún yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hún fundin sek. Tveir helstu vitorðsmenn hennar fundust látn- ir árið 2011, en fjórir aðrir eru nú fyrir rétti, ákærðir fyrir að hafa aðstoðað hreyfinguna við illvirk- in. Yfirvöld höfðu haft veður af Zschaepe og hennar samverka- fólki áður en tilvist neðanjarðar- hreyfingarinnar varð ljós. Lög- regla taldi morðin hins vegar tengd erlendum glæpaklíkum. Mikil umræða er nú í Þýska- landi um það hvernig yfirvöld- um sást yfir tilvist klíkunnar. Aðstandendur fórnarlamba segj- ast bera von í brjósti um að rétt- lætið nái fram að ganga, en einn- ig að svör fáist við því hvað hafi ráðið vali fórnarlambanna, en ekk- ert þeirra var þekkt. Zschaepe mun ekkert tjá sig í réttinum, að sögn lögmanna henn- ar. Þeir óttast hins vegar að hún verði tekin af lífi í fjölmiðlum og fái ekki sanngjarna meðferð. - þj Nýnasistaklíka fyrir rétti í Þýskalandi vegna tíu morða og fleiri glæpa: Þreifst um áraraðir án afskipta yfirvalda ÁKÆRÐ FYRIR KYNÞÁTTAMORÐ Beate Zschaepe kom fyrir rétt í Mün- chen í gær. Hún á yfir höfði sér lífstíðar- dóm vegna morða og annarra afbrota. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Sextugur karlmaður var í gær dæmdur af Héraðsdómi Reykjaness til að greiða ríkis- sjóði rúmar 700 þúsund krónur í sekt vegna tollalagabrots. Maður- inn gerði tollgæslunni ekki grein fyrir armbandsúri af gerðinni Hublot að verðmæti kr. 2.790.000 krónur, en tollverðir fundu vöruna við leit á ákærða við komu hans til landsins í apríl 2012. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómnum. Úrið var gert upp- tækt, Allt í allt þurfti maðurinn því að greiða rúmar 3,4 milljónir fyrir úrið, sem hann fær síðan ekki að halda. Verjandi mannsins tók ekki þóknun fyrir störf sín. - hó Braut tollalög og fékk sekt: Borgaði ekki toll af dýru úri DÓMUR Maðurinn var dæmdur í Hér- aðsdómi Reykjaness SPÁNN, AP Atvinnuleysi á Spáni minnkaði í apríl. Ástæðan er sú að fjöldi fólks hefur fengið tíma- bundna vinnu í ferðamennsku í landinu, sem er mjög vinsæll sumarleyfisstaður. Rúmlega 46 þúsund færri voru skráðir án vinnu í apríl en í mars. Ráðuneytið greindi frá því í gær að nú séu 4,99 milljónir manna án vinnu. Í apríl hafi verið skrifað undir 1,1 milljón ráðning- arsamninga, 19 prósentum meira en í mars, og ellefu prósentum meira en í apríl í fyrra. - þeb Fá vinnu í ferðamennsku: Atvinnuleysi minna á Spáni ÞINGVELLIR Vilja kajakbann fellt niður Þingvallanefnd hefur falið þjóðgarðs- verði að kanna hvort hægt sé að verða við kröfu um að aflétta banni við kajökum á Þingvallavatni. Þingvall- nefnd segir menn munu sigla á eigin ábyrgð. SVÍÞJÓÐ Hópur manna sem eru andvígir moskum í Svíþjóð hvatti í gær til mótmæla í Fittja í Stokk- hólmi þar sem bænaköll hafa verið leyfð í hádeginu á föstu- dögum. Hópurinn hefur hvatt til mót- mælaaðgerða tvisvar á hverjum föstudegi vegna bænakallanna og sótt um leyfi til þess. Þegar bænaköllin hófust fyrir skömmu voru fulltrúar Svíþjóðardemó- krata og Flokks Svía á staðnum. Múslímar í Stokkhólmi fögnuðu hins vegar ákaft þegar leyfi lög- regluyfirvalda fékkst fyrir bæna- köllunum. -ibs Hópur andvígur moskum: Bænaköllum mótmælt í Stokkhólmi HEILBRIGÐISMÁL Óvíða reykja færri Unglingar í Reykjanesbæ reykja síður og drekka en unglingar annars staðar á landinu. Þetta er meðal niðurstaðna í samanburði Rannsóknar og grein- ingar fyrir árið 2012. Fyrirtækið gerir reglulega kannanir meðal ungmenna í grunn- og framhaldsskólum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.