Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 22

Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 22
FÓLK| TAKK FYRIR Ósk hneigir sig. Ragnheiður hefur þó undanfarið vakið athygli hestamanna fyrir frammi- stöðu sína á hestasýningum, bæði Æskunni og hestinum og Stórsýningu Fáks. Þar kom hún fram ásamt hryssu sinni Ósk frá Hvítárholti og saman léku þær ýmsar listir sem lögðust vel í áhorfendur. Hinar ýmsu kúnstir kenndi Ragnheiður hryssunni með smelluþjálf- un sem hún hefur nýtt sér undanfarin ár með góðum árangri. FLJÓTIR AÐ KVEIKJA Á PERUNNI „Mágkona mín lærði smelluþjálfun í Englandi og notaði mikið bæði á hesta og hunda. Hún kynnti þetta fyrir mér og svo byrjaði ég bara að fikra mig áfram,“ segir Ragnheiður sem er að mestu sjálfmenntuð í fræðunum. „Ég lærði grunninn af mágkonu minni og hef svo lært af reynslunni. Í raun þarf maður bara að nota hugmyndaflugið og þá getur maður notað þetta í nánast hvað sem er,“ segir Ragnheiður og tekur fram að henni hafi komið á óvart hversu fljótvirk aðferðin er. „Maður sér árangur um leið. Hestarnir eru fljótir að kveikja á perunni og læra hratt.“ En hvernig virkar smelluþjálfun? „Maður byrjar á að bíða eftir ákveðinni hegðun, til dæmis að hesturinn snerti ákveðinn hlut. Þegar hann gerir það óvart smellir maður lítilli plastsmellu og gefur nammi um leið. Hesturinn fattar tenginguna um leið og endur- tekur hegðunina,“ útskýrir Ragnheiður. Smám saman er hægt að kenna hestin- um flóknari hluti og smátt og smátt er nammið tekið út en smellurinn verður næg hvatning. Hún segir flesta hesta móttækilega fyrir þjálfunaraðferðinni þó alltaf séu einhverjir sem hafi engan áhuga. „Maður hefur séð gamla og lúna hesta breytast í frískleg folöld við smelluþjálfunin, þeir hlaupa um, elta bolta og finnst mjög skemmtilegt.“ Ragnheiður hefur aðallega notað smelluþjálfunina til að kenna hestum kúnstir en ekki í almennri reiðþjálfun. „Það er svolítið erfitt að vera bæði með taum og smellu,“ segir hún glettin en útilokar ekki að hægt sé að nota smell- una til að kenna hestum ýmislegt í reið. „Maður getur til dæmis notað smelli til að venja hesta af hræðslu við hluti eða til að laga ýmis hegðunarvandamál.“ VITUNARVAKNING Meðal þess sem hestar Ragnheiðar kunna er að hneigja sig, snúa sér í hringi, sparka í bolta, dansa, leggjast niður, bakka og spænska skrefið. „Þá fylgja þeir manni eftir alveg hundrað prósent,“ segir Ragnheiður og bætir við að með þessari þjálfun eflist tengsl manns og hests. „Hryssan mín Ósk er til dæmis mjög viljug og stygg, ég næ henni varla úti í gerði. Þegar ég er með hana í þessum leikjum hleypur hún á eftir mér og gerir allt fyrir mig. Hún er líka að verða blíðari. Áður ruddist hún í burtu þegar ég tók af henni beislið, nú tekur hún sér tíma og stendur hjá mér og lætur knúsa sig.“ Ragnheiður segir mikla vitundar- vakningu vera meðal hestamanna um aðrar þjálfunaraðferðir. „Fólk er að uppgötva að hestamennska snýst ekki bara um að ríða í hringi,“ segir hún glaðlega. ■ solveig@365.is SPÆNSKA SKREFIÐ Ragnheiður og Ósk eru stórstígar þegar þær þjálfa spænska skrefið. KOSS Ragnheiður kyssir Svala fyrir umburðar- lyndið. SPARKAÐ Í BOLTA Hestarnir hafa mjög gaman af þjálfuninni. Ragnheiður segir gamla jálka breyt- ast í frískleg unglömb þegar þeir hlaupa eftir bolta. SÝNI- KENNSLA Ragnheiður hefur haldið nokkur námskeið síð- ustu tvö árin þar sem hún bland- ar saman Seven games aðferð Pat Parelli og smellu- þjálfun. Næsta fimmtudag, 16. maí, munu Ragnheiður og Súsanna Sand Ólafsdóttir vinkona hennar standa fyrir sýnikennslu í reiðhöllinni í Mosfellsbæ. „Það er ókeypis inn og allir velkomnir,“ segir hún. HEILSA Holtagörðum, s. 553-1800 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 www.facebook.com/fondurlist GLÆSILEGT ÚRVAL AF SKARTGRIPAEFNI Stærsta föndurverslun landsins Úrvalið er hjá okkur 3360 perlur kr 895.- 8 mm Glerperlur crackle - lengja ca 110 perlur kr 990.- Allt í skartgripagerðina - frábær verð ! 10 mm Viðarperlur - lengjan kr 395.- 40 perlur 10 mm náttúrusteinar - lengjan kr 1490 - 40 steinar Sæktu þér nýja appið og hlustaðu á FM957 hvar og hvenær sem er! Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann og sæktu Útvappið fyrir iOS eða Android. Fáðu FM95BLÖ í símann þinn! Ný tt ap p FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.