Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 46

Fréttablaðið - 07.05.2013, Síða 46
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34 „Núna er bókin Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur á náttborðinu, bæði í venjulegu og hljóðbókarformi. Hljóðbókina nota ég í fjallgöngum. Er einmitt að fara á Hvannadals- hnúk um helgina og þarf að finna mér nýja bók fyrir þá löngu göngu.“ Þorbjörg Marínósdóttir, rithöfundur og kynningarfulltrúi. BÓKIN „Þetta leggst alveg gríðarlega vel í mig,“ segir frétta- konan Brynja Þorgeirsdóttir en hún var á dögunum ráðin ritstjóri menningarþáttar Ríkissjónvarpsins, Djöflaeyjunnar. Brynja tekur við af Þórhalli Gunnarssyni sem er orðinn framleiðslustjóri hjá Saga Film. Brynja hefur starfað að hluta til í Kastljósinu í vetur samhliða meistaranámi í bókmenntafræði. „Starfið hentar mér því mjög vel. Ég hef vísvitandi verið að færa mig frá fréttunum yfir á menningarsviðið undanfarið og hlakka mikið til haustsins,“ segir Brynja sem ætlar þó ekki að umbylta efnistökum þáttarins. „Þátturinn hefur sterkan grunn en það er alltaf hægt að efla og bæta. Það er því von á smá breytingum en þátturinn verður enn þá um menningu á mannamáli.“ Þrátt fyrir að taka ekki við fyrr en í haust situr Brynja ekki auðum höndum í sumar. Hún er að undir- búa skemmtiþætti um íslenska tungumálið ásamt Braga Valdimar Skúlasyni. Þættirnir eru að skandi- navískri fyrirmynd og fara í framleiðslu í sumar. „Við erum enn þá að velta fyrir okkur heiti þáttanna en þar fjöllum við um tungumálið á fróðlegan og skemmtilegan hátt.“ - áp Brynja Þorgeirs tekur við Djöfl aeyjunni Tekur við af Þórhalli Gunnarssyni sem ritstjóri menningarþáttarins í Ríkissjónvarpinu. SPENNT Brynja Þorgeirsdóttir tekur við Djöflaeyjunni í haust. Um sextán þúsund miðar hafa sam- anlagt selst á íslensku kvikmynd- irnar fjórar sem hafa verið frum- sýndar á þessu ári, eða XL, Þetta reddast, Ófeigur gengur aftur og Falskur fugl. Langflestir hafa séð Ófeig- ur gengur aftur, eða hátt í 9.500 manns. Grínmyndin, sem Ágúst Guðmundsson leikstýrði með Ladda í hlutverki draugsins Ófeigs, var frumsýnd 27. mars og er enn í sýn- ingum. Tekjur hennar nema hátt í þrettán milljónum króna. Í öðru sæti er XL í leikstjórn Marteins Þórssonar með Ólaf Darra Ólafsson í aðalhlutverki með tæp- lega 3.000 selda miða. Hún var frumsýnd 18. janúar og er ekki lengur í bíó. Þriðja vinsælasta myndin er Falskur fugl í leikstjórn Þórs Ómars Jónssonar. Samkvæmt tölum frá Samtökum myndrétthafa á Íslandi, Smáís, hafa rúmlega 2.000 manns borgað sig inn á myndina síðan hún var frumsýnd 19. apríl en hún er enn í sýningum. Þetta reddast í leikstjórn Bark- ar Gunnarssonar rekur svo lestina með tæplega 1.800 manns. Hún var frumsýnd 1. mars og er sýningum á henni hætt. Þessar aðsóknartölur eru langt fyrir neðan tvær vinsælustu íslensku myndir síðasta árs, Svart- ur á leik og Djúpið. Rúmlega 60 þús- und manns sáu þá fyrrnefndu og tæplega fimmtíu þúsund þá síðar- nefndu. - fb Langfl estir hafa séð Ófeig í bíó Um sextán þúsund miðar hafa selst á fj órar íslenskar kvikmyndir á þessu ári. VINSÆLUST Ófeigur gengur aftur er vinsælasta íslenska myndin á þessu ári. Samanlagðar tekjur myndanna fjögurra nema rúmum tuttugu milljónum króna. 2.798 Ariel Actilift Regular eða Color 4,74L 65 þvottar Kræsingar & kostakjör KR STK WWW.NETTO.IS | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. 998 Ariel þvottapúðar 12 stk KR PK FRÁBÆ RT VERÐ ! „Þetta var þrælgaman. Ég sat og glotti við tönn megnið af tímanum,“ segir Finnur Frið- riksson, dósent við kennara- deild Háskólans á Akureyri. Hann komst að áhugaverðum niðurstöðum þegar hann rann- sakaði muninn á ummælum og hegðun karla og kvenna á einni Face book-síðu yfir einn sólarhring. Hann skoðaði tvö hundruð stöðu- uppfærslur frá 113 mismunandi einstaklingum og 516 ummæli frá 360 einstaklingum á síðunni. „Það ber að varast að draga stór- ar ályktanir af þessu en margfeld- niáhrifin sem eru í Facebook eru mikil,“ segir Finnur, sem komst að því að samskipti fólks aug- liti til auglits virðast vera svip- uð og samskipti þess á Facebook. Hann flokkaði efnið á Facebook í samfélags-, stjórnmála- og hvers- dagsflokka. Samkvæmt niðurstöðu hans setja konur tvöfalt oftar en karlar inn hversdags-stöðuupp- færslur, til dæmis ef þær hafa skroppið í bíltúr á Þingvöll, sett inn myndir af börnunum, eða svokall- aða „montstatusa“ um börnin sín. Í samfélagsflokki tjáðu konur sig um föt eða tísku en karlar ræddu íþróttir og skelltu inn bröndun- um. Karlar tjáðu sig jafnframt mun meira um tónlist eða kvik- myndir en konur. Jafnræði var á milli kynjanna þegar stjórn- málaumræða var annars vegar. Á Facebook virtust karlar tjá sig að langmestu leyti um stöðu- uppfærslur hjá öðrum körl- um og konur gerðu það sama hjá öðrum konum, eða í um 75% tilfella í báðum tilvikum. Aðspurður segir Finnur að margt á Facebook virðist endurspegla mun- inn á hugsunarhætti kynjanna og gott sé að nota síðuna í rannsókn- arskyni. „Maður er með aðgang að gríðarlega miklu efni þar sem fólk er að tjá sig, að ég held býsna frjálslega,“ segir hann. Frá sólahringnum sem hann rann- sakaði prentaði hann út átta- tíu síður af Facebook og var hátt í viku að vinna úr efninu. Næsta verkefni hans er að rann- saka notkun unglinga á Face book og hann hefur fengið aðgang að tveimur slíkum síðum. freyr@frettabladid.is Skoðaði tvö hundruð „statusa“ á Facebook Finnur Friðriksson rannsakaði muninn á ummælum kynjanna á Facebook. SKEMMTILEG RANNSÓKN Finnur Friðriksson hafði þrælgaman af því að rannsaka Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUN Konur voru mun duglegri í að nota upphrópunar- merki eða broskarla á Facebook en karlar. „Konur virðast nota heldur meira af upphrópunar- merkjum og oftast þegar þær eru hneykslaðar á einhverju eða lýsa yfir ánægju með eitthvað, til dæmis með gott veður. Karlar nenna ekki að æsa sig nema ef verið er að tala um íþróttir eða bíla,“ segir Finnur. Konur nota broskarla oftar og kom Finnur auga á átta mismunandi afbrigði af broskörlunum hjá þeim. Karlar notuðu bara þrjú afbrigði af bros- körlunum og tvö þeirra voru fýlukarlar. Hvað hjörtu varðar notuðu konur þau eingöngu. Konur nota fleiri upphrópunarmerki Við skutlum Júlíu heim Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is Birtingur treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Júlíu ➜ Meðal umsjónarmanna Djöflaeyjunnar eru Vera Sölvadóttir, Guðmundur Oddur Magnús- son, Sigríður Pétursdóttir og Símon Birgisson.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.