Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 4
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
SIMBABVE, AP Stjórnlaga dómstóll
í Simbabve úrskurðaði í gær að
Robert Mugabe forseta bæri
skylda til að boða til þingkosn-
inga fyrir lok júlí.
Forsetinn er sagður hafa
brugðist starfsskyldum sínum
með því að hafa ekki þegar boðað
til kosninga, en umboð þingsins
rennur út við lok þessa mánaðar.
Flokkur Mugabes, sem er 89
ára gamall, hefur viljað flýta
kosningum en Morgan Tsvangi rai
forsætisráðherra, sem er höfuð-
andstæðingur forsetans, vill
bíða fram til hausts þar sem enn
eigi eftir að leiða til lykta margs
konar umbætur til aukinna rétt-
inda almennra borgara. - þj
Dómstóll í Simbabve:
Mugabe boði til
kosninga í júlí
EGILSSTAÐIR Sláturfélag Austur-
lands fær 1,5 milljóna króna lán
úr Atvinnumálasjóði Fljótsdals-
héraðs til að fjármagna kjöt- og
fiskverslun sem félagið hefur
opnað.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs
staðfesti lánveitinguna með vísan
til þess að verslunin muni sér-
hæfa sig í sölu á afurðum úr hér-
aði. Ráðið telur tilkomu hennar
styðja við þá grósku sem er í
framleiðslu á austfirskum mat-
vælum. Endurgreiða á lánið á
þremur árum eða því verður
breytt í hlutafé. - gar
Stutt við matvælaframleiðslu:
Kjötborð með
áherslu á Hérað
HIN 21 ÁRS GAMLA
LILJA
RÚRIKSDÓTTIR
varð á dögunum fyrsti
íslenski dansarinn til að
útskrifast úr Juilliard.
25.05.2013 ➜ 31.05.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
BAYERN MÜNCHEN
vann Meistaradeild Evrópu um
síðustu helgi í fi mmta sinn.
Samkvæmt nýju aðalskipu-
lagi borgarinnar mega hús á
svæðinu innan Hringbrautar
í Reykjavík ekki vera hærri en
FIMM HÆÐIR.
Gagnafl utningar um
farsímanet jukust um
106%
milli áranna
2010 og 2012.
KÍSILMÁLMVERKSMIÐJA
á Grundartanga notar allt að
35.000 TONN
af timbri í framleiðslu sína á hverju ári.
Aðfl ugsljósin sem
fyrirhugað er að
reisa við Ægisíðu í
nágrenni Reykjavíkur-
fl ugvallar eru á bilinu
2,25 TIL
5,4 METRAR.
Aðgerðum Hálendisvaktar
björgunarsveitanna hefur
fj ölgað úr 622 í 1.917 milli
áranna 2010 og 2012.
622
1.917
2010 2011
LEIÐRÉTT
Í upptalningu á tilnefndum verkum
til Grímuverðlauna í flokknum leikrit
ársins féll niður nafn á leikriti Hávars
Sigurjónssonar: Jónsmessunótt. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
DÓMSMÁL Fulltrúi ríkissaksóknara fer
fram á að mennirnir sjö, tveir Litháar og
fimm Íslendingar, sem eru ákærðir fyrir
stórfelldan innflutning á amfetamíni og
amfetamínbasa, verði dæmdir í fjögurra
til tíu ára fangelsisvistar fyrir aðild sína
að málinu.
Þetta kom fram í aðalmeðferð málsins
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Mennirnir sjö eru ákærðir fyrir að hafa
komið að innflutningi tæplega 20 kílóa af
amfetamíni og 1,7 lítra af amfetamínbasa
til landsins með þremur póstsendingum í
janúar síðastliðnum.
Þrír menn eru ákærðir fyrir að hafa
lagt á ráðin um að skipuleggja innflutning
fíkniefnanna, en því neita þeir allir. Tveir
mannanna, sem eru bræður, nafngreindu
meintan höfuðpaur í málinu fyrir dómi á
fimmtudaginn. Hann er nýlátinn.
Rannsóknarlögreglumenn báru vitni
fyrir dómi í gær og sagði rannsóknar-
stjórnandi að ábendingunni um meintan
höfuðpaur hefði verið fylgt eftir af tak-
mörkuðu leyti. Þó hefði lögreglan fengið
það staðfest að meinti höfuðpaurinn hefði
verið staddur í Danmörku á sama tíma og
mennirnir þrír sem eru ákærðir fyrir að
skipuleggja innflutninginn.
Mennirnir þrír benda hver á annan
varðandi skipulagningu á fíkniefna-
innflutningnum.
Annar bróðirinn, Jón Baldur Valdimars-
son, sagði fyrir rétti að hann hefði staðið í
þeirri trú að það ætti aðeins að flytja þrjú
kíló af amfetamíni til landsins, ekki svona
mikið magn, en talið er að það hafi verið
hægt að framleiða um 40 kíló af amfeta-
míni sé amfetamínbasinn talinn með.
Lögmaður eins Litháans, Guðmundur
St. Ragnarsson, gagnrýndi að lögreglan
hefði ekki rannsakað betur aðkomu
meints höfuðpaurs og lét að því liggja að
hinir ákærðu væru hugsanlega burðardýr
í málinu.
Gera má ráð fyrir að Guðjón St.
Marteinsson héraðsdómari kveði upp dóm
sinn í málinu að tveimur til þremur vikum
liðnum. valurg@stod2.is
Krafist er tíu ára fangelsis
Aðalmeðferð í stóra amfetamínmálinu lauk í gær. Saksóknari fer fram á allt að tíu ára fangelsi yfir hinum
ákærðu. Aðkoma meints höfuðpaurs í málinu, sem er látinn, var ekki rannsökuð sérstaklega.
LEIDDIR Í SAL Alls eru sjö ákærðir fyrir aðild sína að stór-
felldu amfetamínsmygli til landsins í janúar. Myndin er frá
þingfestingu málsins í byrjun maí. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í DÓMSAL Nokkurt umstang fylgdi því við upphaf
réttarhalda að losa járn af þeim fimm sakborningum
sem setið hafa í gæsluvarðhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Af mönnunum sjö sem ákærðir eru fyrir stórfellt
smygl á amfetamíni og amfetamínbasa í janúar
hafa fimm setið í gæsluvarðhaldi. Tveir þeirra eru
frá Litháen, Dainius Kvedaras og Darius Kochanas.
Hinir eru Íslendingar, Jónas Fannar Valdimarsson,
Jón Baldur Valdimarsson og Símon Páll Jónsson.
Þeir tveir sem ekki hafa setið í gæsluvarðhaldi eru
heldur yngri en hinir mennirnir, á 24. og 23. aldurs-
ári. Þeir játuðu báðir þegar málið var þingfest í
byrjun maí að hafa, hvor í sínu lagi, verið sendir
á pósthús á höfuðborgarsvæðinu til að leysa út
fíkniefnasendingu frá Danmörku. - óká
➜ Fimm af sjö hafa verið í
gæsluvarðhaldi
Veðurspá
Mánudagur
8-15 m/s, hvassast SV-til.
BJARTARA Á MORGUN Það verða skúrir víða einkum vestan til á landinu í dag. Á
morgun verður ögn sumarlegra, en þá verður yfirleitt þurrt og yfirleitt bjart eða skýjað
með köflum. Rok og rigning suðvestan til á mánudag en blíða norðaustanlands.
9°
7
m/s
7°
6
m/s
8°
6
m/s
9°
7
m/s
Á morgun
Hæg breytileg átt.
Gildistími korta er um hádegi
12°
13°
10°
17°
18°
Alicante
Basel
Berlín
22°
17°
21°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
22°
18°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
21°
21°
22°
London
Mallorca
New York
15°
22°
29°
Orlando
Ósló
París
29°
23°
20°
San Francisco
Stokkhólmur
21°
20°
10°
3
m/s
9°
3
m/s
13°
4
m/s
10°
2
m/s
12°
2
m/s
11°
3
m/s
4°
5
m/s
11°
10°
12°
13°
11°
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður