Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 16
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 16
ÁSTAND
HEIMSINS
1
2
5 37
6
PALESTÍNA Palestínsk-
ir unglingar leita skjóls
gegn táragasi við umdeildan
aðskilnaðarvegg Ísraels hjá
bænum Nilin á Vesturbakk-
anum. Átök brutust út í gær
við mótmæli gegn frekari
landtöku Ísraels og byggingu
aðskilnaðarmúrsins.
NORDICPHOTOS/AFP
BELGÍA Óprúttnir aðilar komust í persónulega tölvupósta for-
sætisráðherra Belga, Elio Di Rupo, og sendu til dagblaðsins
De Morgen þar í landi. Blaðið birti ekki póstana, sem eru frá 2004
til 2008, áður en Di Rupo varð forsætisráðherra. Di Rupo hefur ekki
ákveðið hvort hann kæri málið en segir reynsluna hafa verið slæma í
samtali við De Morgen.
FRAKKLAND Atvinnuleysi hefur aldrei verið meira
á evrusvæðinu en í apríl, en það mældist 12,2 pró-
sent. Það er 0,1 prósents hækkun frá því í síðasta mánuði.
Þannig eru rúmlega 19 milljónir manna atvinnulausar
á evrusvæðinu. Grikkland og Spánn glíma við mesta
atvinnuleysið, sem er yfir 25 prósent á hvorum stað fyrir
sig. Portúgal fylgir fast á hæla þeirra með 17,8 prósenta
atvinnuleysi. Minnsta atvinnuleysið er hins vegar í Austur-
ríki en þar er það 4,9 prósent.
JAPAN Apple hefur brugðist við veikingu japanska jensins
gagnvart Bandaríkjadal með því að hækka verð iPad-spjaldtölva
um allt að fimmtung í Japan. Hér skoða viðskiptavinir raftækja-
verslunar gripinn, en 0,4 prósenta samdráttur mældist í einkaneyslu
í landinu í apríl.
BRETLAND Maður horfir á blóm og annan varning sem lagður
hefur verið til minningar á morðvettvang þar sem ráðist var á
breska hermanninn Lee Rigby fyrir utan Woolwich-herskálana í suð-
austurhluta Lundúna í síðustu viku.
RÚSSLAND Lögreglumenn handtaka mótmælanda við óleyfileg mótmæli sem blásið
var til í miðborg Moskvu í gær. Mótmælendur vilja standa vörð um 31. grein stjórnar-
skrár Rússlands, þar sem varinn er réttur fólks til að safnast saman. Aðgerðarsinnar minna
á stjórnarskrárgreinina þegar hinn 31. ber upp í mánuði og leiðir það oft til handtakna.
KENÝA Starfsmaður kenísku dýraverndarinnar
(KWS) gaumgæfir dauðan nashyrning sem veiði-
þjófar felldu á Oserian-verndarsvæðinu í Naivasha í Kenía
í gær, föstudag. Þjófarnir, sem drápu þrjú dýr, komust
undan en náðu ekki að hafa horn dýranna með sér.
1
2 3
5 6 7
4
4