Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 118

Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 118
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 82 Ef við náum upp vörn og markvörslu þá er ég vongóður. Ágúst Þór Jóhannsson, landsilðsþjálfari SPORT KÖRFUBOLTI Annar leikur CAI Zaragoza og Real Madrid í undanúrslitum spænsku deildarinnar fer fram í dag. Real vann fyrsta leik liðanna með átta stigum, 84-76, en Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza stóðu í stórliðinu lengi vel. Þeir hafa komið allra liða mest á óvart í spænska boltanum í vetur og sýndu í rimmunni gegn Valencia í átta liða úrslitum að liðið getur gert ótrúlegustu hluti. Það er því fullsnemmt að afskrifa Jón og félaga strax. Jón Arnór skoraði sjö stig í fyrsta leiknum ásamt því að leika vel í vörninni. Þeir þurfa helst að vinna leik dagsins því annars er liðið komið í erfiða stöðu í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úr- slitarimmuna og mun þriðji leikur liðanna fara fram næstkomandi þriðjudag. - hbg Pressa á Jóni Arnóri og félögum HANDBOLTI Það er mikið undir hjá stelpunum okkar á morgun. Þá taka þær á móti Tékkum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í Serbíu í desember. Leikurinn fer fram í Vodafone- höllinni og stelpurnar verða að ná hagstæðum úrslitum til þess að eygja von um að komast til Serbíu fyrir jól. Ísland spilaði tvo leiki við Tékka fyrir síðasta EM og vann Ísland annan þeirra leikja. „Við eigum helmingslíkur á því að komast áfram. Leikir okkar gegn Tékkum hafa alltaf verið jafnir og þessi lið eru svipuð að getu,“ sagði Ágúst Þór Jóhanns- son landsliðsþjálfari. Tékkar stóðu sig mjög vel á síð- asta EM. Liðið komst upp úr riðla- keppninni. Í milliriðlinum tapaði liðið svo fyrir Dönum, Serbum og Norðmönnum. Allir leikirnir töp- uðust með tveimur mörkum sem segir margt um styrkleika tékk- neska liðsins. Snýst um vörn og markvörslu „Við erum að fara að mæta hörku- liði. Við verðum að ná upp varn- arleik og markvörslu. Það er sem fyrr lykillinn að þessu hjá okkur. Sóknarleikurinn lítur vel út og svo er Karen komin inn eftir meiðslin og það styrkir okkur mikið. Ef við náum upp vörn og markvörslu þá er ég vongóður.“ Íslenska liðið tók þátt í æfinga- móti í Svíþjóð á dögunum þar sem allir leikir töpuðust og varnar- leikurinn var æði misjafn. Ágúst vonast til þess að liðið hafi lært af þeim leikjum. „Við þurfum jafnari varnarleik en í þessum leikjum. Við höfum verið að skerpa á varn- arleiknum á síðustu æfingum. Við kunnum það vel og spilum venju- lega góða vörn. Ég hef því ekki neinar stórkostlegar áhyggjur af varnarleiknum sem slíkum.“ Það er oft sagt að það sé verra að spila fyrri leikinn í svona umspili á heimavelli en Ágúst Þór reynir að líta á það jákvæðum augum. „Það er erfitt að tala um hvað við þurfum að gera vel svo ég sé í rónni. Ég var ekki einu sinni rólegur þó svo að við hefðum unnið Úkraínu með átján mörkum á heimavelli. Við munum reyna að einbeita okkur að því að spila vel og halda leikskipulagi. Það er hættulegt að hugsa of mikið um mörk og annað. Ég horfi á þetta sem fjóra hálfleiki og við ætlum að koma vel út úr þeim,“ sagði Ágúst. Væru það ekki mikil vonbrigði fyrir liðið að ná ekki að klára ein- vígið? „Við erum í þessu til þess að komast á stórmótin og við stefnum á að komast í gegnum þetta. Auðvi- tað yrðu það því vonbrigði að kom- ast ekki áfram. Skiptir engu hver mótherjinn er.“ Stelpurnar hafa verið vel hvatt- ar áfram í síðustu leikjum í Voda- fone-höllinni og Ágúst vonar að það verði ekki breyting þar á. „Okkur hefur liðið vel þar og spilað vel. Það er klárt mál að við spilum á erfiðum útivelli í Tékk- landi og við þurfum því að lág- marki 1.000 manns til þess að styðja okkur í þessum leik. Ég veit að stelpurnar eiga eftir að sýna góðan leik.“ henry@frettabladid.is Við ætlum til Serbíu Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, segir liðið alltaf stefna á stórmót. Fram undan eru leikir um laust sæti á HM í Serbíu. Þjálfarinn kallar eft ir stuðningi áhorfenda svo liðið nái sínu allra besta fram. MIKIÐ UNDIR Hrafnhildur Skúladóttir, Arna Sif Pálsdóttir og félagar í landsliðinu spila sannkallaðan stórleik á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI „Við værum ekki íþrótta- menn ef við stefndum ekki á sigur,“ segir Sif Atladóttir, sem verður í eldlínunni með íslenska kvenna- landsliðinu í Laugardalnum í dag. Andstæðingurinn er Skotland en leikurinn er sá eini sem stelpurn- ar okkar spila hér á landi áður en haldið verður utan. „Skotarnir eru líkamlega sterk- ir og líkir okkar á margan hátt,“ segir Sif sem þekkir vel til fram- herja þeirra sem spilaði í Svíþjóð. „Annars er það þetta hefðbundna breska. Þær eru tilbúnar í slags- mál. En við erum náttúrulega líka þekktar fyrir að sýna tennurnar og blóðið,“ segir Sif á léttu nótunum. Kvennalandsliðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og því virðist lítið tilefni til bjartsýni fyrir Evrópumótið sem hefst í Svíþjóð þann 10. júlí. „Við gerum okkur alveg grein fyrir því að úrslitin hafi ekki verið sem best,“ segir Sif en minnir á að um æfingaleiki sé að ræða. „En ef það er einhver tími til þess að gera mistök er það í æfingaleikjum. Þá getur maður stoppað í götin fyrir EM.“ Miðvörðurinn segir alla tap- leikina hafa verið leikgreinda í þaula og unnið í veikleikum og þeir gerðir að styrkleikum. Hún minnir einnig á að sterka leikmenn hafi vantað í íslenska liðið á Algarve-mótinu í mars. Þar má nefna Margréti Láru Viðars- dóttur sem er mætt í slaginn á nýjan leik. Landsleikurinn á Laugardals- velli hefst klukkan 16.45. Ókeyp- is er á leikinn fyrir eldri borgara, öryrkja og börn yngri en sextán ára. - ktd Stoppa í götin fyrir Evrópumótið í Svíþjóð Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Skotum í æfi ngaleik á Laugardalsvelli í dag. GLEÐIGJAFI Það er alltaf stutt í brosið þegar Sif Atladóttir er annars vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Búist er við því að David James verji mark ÍBV sem tekur á móti Fylki í 6. umferð Pepsi-deildar karla á morgun. Leiknum var flýtt vegna lands- liðsverkefna Tonny Mawejje með Úganda en aðrir leikir í 6. umferð fara fram 9. og 10. júní. James missti af síðustu tveim- ur leikjum ÍBV, gegn Víkingi Ólafsvík og Þrótti, en töluverð óvissa hefur ríkt um ástæðu fjar- veru James í leikjunum. „Hann var að klára A-þjálfara- námskeið sitt hjá UEFA,“ segir Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV. Óskar staðfesti að James hefði komið til landsins í gær og taldi James kláran í slaginn gegn Fylki. „Það var einhver vökvi inni á hnénu hjá honum sem var tekinn á meðan hann var ytra,“ sagði Óskar. Hann segir hins vegar að koma verði í ljós hvort James tak- ist að slá út Guðjón Orra Sigur- jónsson í marki ÍBV. Guðjón Orri fékk aðeins á sig eitt mark í leikj- unum tveimur án James. - ktd Klár í slaginn gegn Fylki FLOTTUR James hefur fengið á sig fjögur mörk í fimm leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Helena Sverrisdóttir skoraði 16 stig í öruggum sigri Íslands á Kýpur á Smáþjóðaleikunum í gær. Helenu vantar nú aðeins eitt stig til þess að jafna stigamet Önnu Maríu Sveinsdóttur með landsliðinu. Ísland mætir Lúxemborg í leiknum um gullið á leikunum í dag. „Þetta er ekkert flókið. Hún spilar ekki á morgun,“ sagði Anna María, sem er aðstoðar- þjálfari landsliðsins. „Ég er mjög ánægð að heyra þetta. Það er alltaf gaman þegar fólk nær metunum mínum,“ segir Anna María. Gamla kempan mátti sjá á eftir stigameti sínu í efstu deild kvenna á dögunum til Birnu Val- garðsdóttur. Anna María minnir á að Helena sé komin mun lengra í körfuboltanum en hún náði og er greinilega mjög ánægð fyrir hennar hönd. - ktd Flest stig fyrir A-landsliðið (meðaltal í leik) 1. Anna María Sveinsdóttir 759 (12,7) 2. Helena Sverrisdóttir 758 (17,2) 3. Birna Valgarðsdóttir 730 (9,6) 4. Signý Hermannsdóttir 509 (8,3) 5. Hildur Sigurðardóttir 391 (5,4) Helena stigi frá meti Önnu Maríu STIGAHÆSTAR Það fór vel á með Önnu Maríu og Helenu eftir sigurinn á Kýpur í gær. MYND/KKÍ KÖRFUBOLTI Íslenska kvenna- landsliðið getur unnið sín fyrstu gullverðlaun á Smáþjóðaleikum í sextán ár þegar liðið mætir Lúxemborg í hreinum úrslitaleik í dag. Ísland hefur aðeins einu sinni unnið gull á leiknum en það var á heimavelli árið 1997. Leik- arnir voru þeir síðustu þar sem Anna María Sveinsdóttir, núver- andi aðstoðarlandsliðsþjálfari, tók þátt sem leikmaður. „Það var stór stund og mjög sætt því við höfðum aðeins einu sinni unnið gullverðlaun, á móti á Möltu árið áður. Við vorum með mjög sterkan hóp á þessum tíma,“ segir Anna María. Hún telur íslenska liðið eiga góða mögu- leika í dag. „Ég vona að stelpurnar feti í fótspor okkar og vinni gullið.“ - ktd Gull eft ir 16 ára bið? GULLIÐ UNDIR Kristrún Sigurjónsdóttir verður í aðalhlutverki í dag. MYND/KKÍ SUND Anton Sveinn McKee vann sín fimmtu og sjöttu gullverð- laun í einstaklingsgreinum á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í gær. Anton kom fyrstur í mark, bæði í 400 metra fjórsundi og 1.500 metra skriðsundi. Eygló Ósk Gústavsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir hafa einnig unnið sex gullverðlaun, þrenn í einstaklingskeppnum og þrenn í boðsundum. Sundsveit Íslands hefur samanlagt nælt í sextán gullverðlaun en Lúxem- borg kemur næst með níu. -ktd Yfi rburðir hjá sundfólkinu SIGURSÆLL Anton Sveinn hefur farið á kostum í Lúxemborg. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG HANDBOLTI Hannes Jón Jónsson hjá Eisenach var í gær kjörinn besti leikmaður b-deildar þýska handboltans af þjálfurum deildar innar. Árangurinn er magnaður enda voru þrjú illkynja æxli fjarlægð úr þvagblöðru hans í október. Hannes hafði mikla yfirburði í kjörinu. Eisenach situr í þriðja sæti deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Bietigheim þegar þrjár umferðir eru eftir. - ktd Hannes bestur ENDURKOMA Hannes Jón hefur farið á kostum með Eisenach eftir áramót. NORDICPHOTOS/BONGARTS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.