Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 71
| ATVINNA |
Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir áhuga-
sömum verktökum í endurgerð lóðar.
Auglýst er eftir áhugasömum verktökum í vinnu við
endurgerð lóðar við leikskólann Bergheima í
Þorlákshöfn.Verið er að reisa viðbyggingu við skólann,
áætlað er að endurgera og stækka lóð.
Kröfur um val á verktaka eru þessar:
1. Hafa áður unnið við skólalóðir þar sem mikil
krafa er gerð til vandvirkni. Leggja skal með
upplýsingar um áður unnin verk.
2. Að skrúðgarðyrkjumeistari stýri verkinu.
3. Að verktakinn hafi vélar og tæki til að vinna
innan lóðar.
4. Geti unnið verkið frá 10. júlí til 15. ágúst 2013.
Á þessum tíma er sumarfrí í leikskólanum.
Einstakir verkþættir gætu unnist yfir lengri
tíma í samráði við við leikskólastjóra.
Helstu verkþættir:
8.1 Aðstaða og jarðvinna. Gröftur og brott-
akstur á efni, tilflutningur á efni innan lóðar,
grúsarfyllingar, upptaka á yfirborðsefnum og
förgun.
8.2 Mannvirki á lóð. Girðingar 105m,
leikfangageymslur, bekkir og borð.
8.3 Lagnir. Jarðvinna vegna lagna, gröftur og
fylling og lagningu á lögnum, fráveitu og snjó
bræðslu.
8.4 Rafkerfi. Jarðvinna vegna raflagna, fleygun
á skurðum, taka upp eldri strengi, leggja nýja,
ídráttarrör, jarðstrengir, ljósastólpar, tenging á
búnaði.
8.5 Yfirborðsfrágangur: Hellulagnir um 700 m 2,
malbik um 210 m2 og timburpallar 80 m²
8.6 Gras og gróðursvæði. Gróðursetning, gerð
gróðurbeða 450 m2, og þökulagning um 1100
m2.
8.7. Uppsetning á búnaði.
Áhugasamir verktakar sendi inn upplýsingar um sig og
fyrirtækið fyrir 10. júní 2013, á netfangið
sigurdur@olfus.is eða Sveitarfélagið Ölfus, merkt
,,Bergheimar-lóð”, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn. Óski
bjóðendur eftir frekari upplýsingum vinsamlegast hafið
með tölvupósti sigurdur@olfus.is eða í síma 480 3800,
Sigurður.
Þeir sem valdir eru til að bjóða í verkið fá afhend ítarleg
gögn um verkið.
Sveitarfélagið Ölfus
Veiðifélag Fellsstrandar leitar tilboða í lax- og
silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin
2014, 2015 og 2016, samkvæmt fyrirliggjandi
útboðsskilmálum og upplýsingum.
Um er að ræða Flekkudalsá, Tunguá og Kjarlaks-
staðaá á Fellsströnd í Dalasýslu, í fögru um-
hverfi, um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Veitt er
á þrjár stangir í 72 daga á tímabilinu 1. júlí til
10. september. Eingöngu hefur verið veitt á
flugu.
Útboðsgögn má nálgast hjá Landssambandi
veiðifélaga og skrifstofu Bændasamtaka Íslands,
Bændahöllinni v/Hagatorg í Reykjavík,
sími 563-0308. Áskilið er að tilboðum sé skilað
á tilboðsformi sem fylgir útboðsgögnum.
Tilboðum skal skilað til formanns veiðifélagsins,
Sveins Gestssonar, Staðarfelli, 371 Búðardal.
Frestur til að skila tilboði rennur út mánudaginn
1. júlí 2013, kl. 12:00.
Tilboðin verða opnuð laugardaginn 6. júlí,
kl. 14:00, í Félagsheimilinu Staðarfelli á Fells-
strönd, í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess
óska
Útboð á laxveiði
í Flekkudalsá
Umsókn um skólavist í þátttökubekk
Skóla- og frístundasvið
Í ágúst nk. tekur til starfa fyrsti þátttökubekkur Klettaskóla og verður hann staðsettur í Árbæjarskóla.
Þátttökubekkur er sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla en með aðsetur í Árbæjarskóla. Nemendur njóta faglegrar
þjónustu og þekkingar sérskólans en taka jafnframt þátt í starfi og samfélagi Árbæjarskóla eftir því sem tilefni gefst til.
Á fyrsta starfsári verða teknir inn allt að 6 nemendur á miðstigi, sem fæddir eru 2001, 2002 og 2003. Um inntöku í þátttökubekk
gilda sömu reglur um innritun og í Klettaskóla. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Klettaskóla, klettaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní nk.
Nánar upplýsingar veitir Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, í síma 411 79 50 netfang: erla.gunnarsdottir@reykjavik.is
Klettaskóli er einn af grunnskólum Reykjavíkur og er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun.
Skólinn þjónar öllu landinu og er fyrir nemendur með:
- miðlungs, alvarlega og djúpa þroskahömlun, með eða án viðbótarfatlana.
- væga þroskahömlun og skilgreinda viðbótarfötlun/fatlanir, s.s. einhverfu, blindu, heyrnarleysi og alvarlega hreyfihömlun.
Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3,
5, 7 og 9. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga
ASK arkitekta að breyttu deiliskipulagi athafnasvæðis Sunnuhlíðar. Nánar tiltekið nær tillagan til Kópavogsbrautar 1a-c og
Kópavogstúns 3, 5, 7 og 9. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að:
• Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð fái heimild til stækkunar um allt að 34 hjúkrunarrými
• gert er ráð fyrir nýrri þjónustumiðstöð fyrir aldraða sunnan Kópavogsbrautar 1b (milli fyrirhugaðra húsa við Kópavogstún
5 og 9). Áætlað er að þjónustubyggingin verði ein hæð auk kjallara um 750 m2 að grunnfleti með aðkomu frá
Kópavogstúni
• íbúðum í fyrirhugum húsum við Kópavogstún 3 og 5 er fjölgað um samtals 6 íbúðir, hæð húsa og áætlað byggingarmagn
breytist ekki miðað við gildandi deiliskipulag
• íbúðum í fyrirhuguðu húsi við Kópavogstún 9 er fækkað um 6 íbúðir og húsið lækkað um eina hæð miðað við gildandi
deiliskipulag
• fjöldi og fyrirkomulag bílastæða breytist
Tillagan er sett fram á uppdætti í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 7. maí 2013. Nánar um tillöguna
vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánu-
daga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá 3. júní 2013. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu bæjarins,
www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega Skipulags- og byggingardeild eigi síðar en
kl. 15:00 þriðjudaginn 16. júlí 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Umhverfissvið.
Skipulags- og byggingardeild
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi.
LAUGARDAGUR 1. júní 2013 19