Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 71
| ATVINNA | Sveitarfélagið Ölfus Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir áhuga- sömum verktökum í endurgerð lóðar. Auglýst er eftir áhugasömum verktökum í vinnu við endurgerð lóðar við leikskólann Bergheima í Þorlákshöfn.Verið er að reisa viðbyggingu við skólann, áætlað er að endurgera og stækka lóð. Kröfur um val á verktaka eru þessar: 1. Hafa áður unnið við skólalóðir þar sem mikil krafa er gerð til vandvirkni. Leggja skal með upplýsingar um áður unnin verk. 2. Að skrúðgarðyrkjumeistari stýri verkinu. 3. Að verktakinn hafi vélar og tæki til að vinna innan lóðar. 4. Geti unnið verkið frá 10. júlí til 15. ágúst 2013. Á þessum tíma er sumarfrí í leikskólanum. Einstakir verkþættir gætu unnist yfir lengri tíma í samráði við við leikskólastjóra. Helstu verkþættir: 8.1 Aðstaða og jarðvinna. Gröftur og brott- akstur á efni, tilflutningur á efni innan lóðar, grúsarfyllingar, upptaka á yfirborðsefnum og förgun. 8.2 Mannvirki á lóð. Girðingar 105m, leikfangageymslur, bekkir og borð. 8.3 Lagnir. Jarðvinna vegna lagna, gröftur og fylling og lagningu á lögnum, fráveitu og snjó bræðslu. 8.4 Rafkerfi. Jarðvinna vegna raflagna, fleygun á skurðum, taka upp eldri strengi, leggja nýja, ídráttarrör, jarðstrengir, ljósastólpar, tenging á búnaði. 8.5 Yfirborðsfrágangur: Hellulagnir um 700 m 2, malbik um 210 m2 og timburpallar 80 m² 8.6 Gras og gróðursvæði. Gróðursetning, gerð gróðurbeða 450 m2, og þökulagning um 1100 m2. 8.7. Uppsetning á búnaði. Áhugasamir verktakar sendi inn upplýsingar um sig og fyrirtækið fyrir 10. júní 2013, á netfangið sigurdur@olfus.is eða Sveitarfélagið Ölfus, merkt ,,Bergheimar-lóð”, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn. Óski bjóðendur eftir frekari upplýsingum vinsamlegast hafið með tölvupósti sigurdur@olfus.is eða í síma 480 3800, Sigurður. Þeir sem valdir eru til að bjóða í verkið fá afhend ítarleg gögn um verkið. Sveitarfélagið Ölfus Veiðifélag Fellsstrandar leitar tilboða í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2014, 2015 og 2016, samkvæmt fyrirliggjandi útboðsskilmálum og upplýsingum. Um er að ræða Flekkudalsá, Tunguá og Kjarlaks- staðaá á Fellsströnd í Dalasýslu, í fögru um- hverfi, um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Veitt er á þrjár stangir í 72 daga á tímabilinu 1. júlí til 10. september. Eingöngu hefur verið veitt á flugu. Útboðsgögn má nálgast hjá Landssambandi veiðifélaga og skrifstofu Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg í Reykjavík, sími 563-0308. Áskilið er að tilboðum sé skilað á tilboðsformi sem fylgir útboðsgögnum. Tilboðum skal skilað til formanns veiðifélagsins, Sveins Gestssonar, Staðarfelli, 371 Búðardal. Frestur til að skila tilboði rennur út mánudaginn 1. júlí 2013, kl. 12:00. Tilboðin verða opnuð laugardaginn 6. júlí, kl. 14:00, í Félagsheimilinu Staðarfelli á Fells- strönd, í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska Útboð á laxveiði í Flekkudalsá Umsókn um skólavist í þátttökubekk Skóla- og frístundasvið Í ágúst nk. tekur til starfa fyrsti þátttökubekkur Klettaskóla og verður hann staðsettur í Árbæjarskóla. Þátttökubekkur er sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla en með aðsetur í Árbæjarskóla. Nemendur njóta faglegrar þjónustu og þekkingar sérskólans en taka jafnframt þátt í starfi og samfélagi Árbæjarskóla eftir því sem tilefni gefst til. Á fyrsta starfsári verða teknir inn allt að 6 nemendur á miðstigi, sem fæddir eru 2001, 2002 og 2003. Um inntöku í þátttökubekk gilda sömu reglur um innritun og í Klettaskóla. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Klettaskóla, klettaskoli.is Umsóknarfrestur er til og með 14. júní nk. Nánar upplýsingar veitir Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, í síma 411 79 50 netfang: erla.gunnarsdottir@reykjavik.is Klettaskóli er einn af grunnskólum Reykjavíkur og er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun. Skólinn þjónar öllu landinu og er fyrir nemendur með: - miðlungs, alvarlega og djúpa þroskahömlun, með eða án viðbótarfatlana. - væga þroskahömlun og skilgreinda viðbótarfötlun/fatlanir, s.s. einhverfu, blindu, heyrnarleysi og alvarlega hreyfihömlun. Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga ASK arkitekta að breyttu deiliskipulagi athafnasvæðis Sunnuhlíðar. Nánar tiltekið nær tillagan til Kópavogsbrautar 1a-c og Kópavogstúns 3, 5, 7 og 9. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir að: • Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð fái heimild til stækkunar um allt að 34 hjúkrunarrými • gert er ráð fyrir nýrri þjónustumiðstöð fyrir aldraða sunnan Kópavogsbrautar 1b (milli fyrirhugaðra húsa við Kópavogstún 5 og 9). Áætlað er að þjónustubyggingin verði ein hæð auk kjallara um 750 m2 að grunnfleti með aðkomu frá Kópavogstúni • íbúðum í fyrirhugum húsum við Kópavogstún 3 og 5 er fjölgað um samtals 6 íbúðir, hæð húsa og áætlað byggingarmagn breytist ekki miðað við gildandi deiliskipulag • íbúðum í fyrirhuguðu húsi við Kópavogstún 9 er fækkað um 6 íbúðir og húsið lækkað um eina hæð miðað við gildandi deiliskipulag • fjöldi og fyrirkomulag bílastæða breytist Tillagan er sett fram á uppdætti í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 7. maí 2013. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreind tillaga verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánu- daga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá 3. júní 2013. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega Skipulags- og byggingardeild eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 16. júlí 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Skipulagsstjóri Kópavogs. Umhverfissvið. Skipulags- og byggingardeild Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi. LAUGARDAGUR 1. júní 2013 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.