Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 120
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 84
HANDBOLTI Hápunktur hvers tíma-
bils í félagsliðahandbolta hvert
ár er úrslitahelgin í Meistara-
deild Evrópu, sem verður haldin
í fjórða sinn í Köln um helgina.
Undan úrslita leikirnir fara fram í
dag og úrslitaleikurinn á morgun,
auk þess sem spilað er um brons-
verðlaunin.
Í þetta sinn komust tvö
Íslendinga lið í undanúrslitin; Kiel
frá Þýskalandi og Kielce frá Pól-
landi. Alfreð Gíslason er þjálfari
Kiel og þeir Aron Pálmarsson og
Guðjón Valur Sigurðsson leika
með liðinu. Þórir Ólafsson er svo
á mála hjá Kielce.
Kielce mætir Barcelona í fyrri
undanúrslitaviðureign dagsins og
Kiel leikur svo gegn Hamburg,
öðru þýsku liði, síðdegis. Það er
því möguleiki á að Íslendingaliðin
muni mætast í úrslitaleik á morg-
un.
Dvel ekki við fortíðina
Guðjón Valur þekkir úrslita-
helgina vel enda er hann að taka
þátt þriðja árið í röð, og það með
þriðja liðinu. Fyrst lék hann með
Rhein-Neckar Löwen, svo AG
Kaupmannahöfn og nú Kiel.
Hann náði þó ekki að spila til
úrslita í þau skipti en það stendur
vitanlega til bóta. „Það er alltaf
markmiðið að fara alla leið, þegar
maður er kominn í undanúrslitin.
Það er óskandi að það takist. Þetta
er stórt og flott mót sem allir
handboltamenn vilja vinna. Þetta
er hápunktur tímabilsins fyrir
okkur,“ sagði Guðjón Valur, sem
vildi lítið ræða um hin árin.
„Það er allt í fortíðinni og ég hef
lítinn áhuga á að ræða hana eitt-
hvað sérstaklega. Það er erfitt að
lifa í fortíðinni,“ segir hann.
Þýskur slagur
Alfreð hefur undirbúið sína menn
af kappi fyrir leikinn gegn Ham-
burg í dag. Guðjón Valur segir
að það hafi sína kosti og galla að
mæta öðru þýsku liði.
„Við þekkjum þá mjög vel og
höfum unnið þá tvisvar í vetur. En
þeir þekkja okkur líka mjög vel.
Það sem verður ólíkt nú er að hvor-
ugt lið er á heimavelli og það verða
ekki þýskir dómarar á leiknum,“
segir hann. „Við höfum verið að
horfa á vídeó af þeim síðustu 2-3
dagana og æft mjög vel. Við erum
klárir í þennan slag.“
Hann segir að liðið hafi ekki eytt
tíma í undirbúning fyrir mögu-
legan andstæðing í úrslita leiknum,
komist Kiel þangað. „Þjálfarinn er
auðvitað búinn að klippa saman
myndband af báðum liðum en eftir
leikinn í dag tekur bara við stutt-
ur undirbúningur fyrir leikinn
á morgun, hvort sem það verður
spilað um gull eða brons.“
Sem fyrr segir er þetta í fjórða
sinn sem þetta fyrirkomulag er á
úrslitahelginni í Meistaradeildinni
en áður voru úrslitaleikirnir tveir,
heima og að heiman hjá liðunum
sem komust alla leið.
Gamlir leikmenn fjölmenna
„Mér finnst þetta frábært fyrir-
komulag og ég held að flestir hand-
boltamenn séu sammála um það.
Stemningin hér í Köln er frábær
og nánast að borgin fari á hvolf
þessa helgina. Hingað mæta svo
fullt af gömlum leikmönnum og
ekki þverfótað fyrir goðsögnum úr
handboltaheiminum,“ segir hann
en Guðjón Valur mun spila fyrir
framan fjölskyldu sína um helgina.
Fjölskyldan fylgist vel með
„Konan mín, börn og foreldrar
verða hér, sem og systir mín og
kærasti hennar. Þar að auki hef
ég frétt af mörgum Íslendingum
sem ætla að koma hingað. Ég redd-
aði til dæmis 21 Kiel-treyju fyrir
frænda minn sem er að koma hing-
að með stóran hóp,“ segir hann.
Guðjón Valur segir að sér hafi
liðið vel hjá Kiel, sem er þegar
búið að landa tveimur stærstu titl-
unum í Þýskalandi. „Það er alltaf
áskorun að koma til nýs liðs – sýna
og sanna að maður sé nógu góður
og traustsins verður. Það hefur
tekist nokkuð vel. Ég hef verið
nokkuð meiðslafrír og tekið þátt
í mörgum eftirminnilegum leikj-
um,“ segir hann en með sigri um
helgina mun Kiel vinna þrefalt,
annað árið í röð.
eirikur@frettabladid.is
Þetta mót vilja allir vinna
Guðjón Valur Sigurðsson tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu þriðja árið í röð og nú með þriðja
félaginu. Nú er hann í liði ríkjandi Evrópumeistara Kiel sem stefnir að því að vinna allt, annað árið í röð.
GUÐJÓN VALUR Hefur unnið flesta stóru titlana í félagsliðahandboltanum og getur bætt þeim allra stærsta í safnið um
helgina. Hér er hann í leik með Kiel. NORDICPHOTOS/GETTY
Laugardagur
13.15 Kielce - Barcelona
16.00 Kiel - Hamburg
Sunnudagur
13.15 Bronsleikur
16.00 Úrslitaleikur
Allir leikirnir sýndir beint
á Stöð 2 Sport HD.
Leikir helgarinnar
Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson munu dæma undanúrslitaleik
Kielce og Barcelona í Meistaradeild Evrópu
í Köln í dag. Það verður síðasti félagsliða-
leikurinn sem Hlynur dæmir, en hann ákvað
fyrir nokkru að leggja flautuna á hilluna í lok
tímabilsins.
Þeir Anton Gylfi og Hlynur munu þó
dæma einn leik til viðbótar, landsleik
Rússlands og Serbíu þann 12. júní
næstkomandi. Eftir það leggur Hlynur
flautuna til hliðar en Anton Gylfi
mun dæma áfram með Jónasi Elías-
syni.
Næstsíðasti leikur Hlyns í dag
HANDBOLTI Þórir Ólafsson og félagar hans í
pólska liðinu Kielce hafa komið sterkir inn í
Meistaradeild Evrópu þetta tímabilið. Liðið er
eitt fjögurra sem keppir í úrslitahelgi Meistara-
deildar Evrópu í Köln en liðið mætir Barcelona
í undanúrslitum í dag.
„Það er mikil stemning í bænum heima og
allir hafa verið að bíða eftir þessari helgi,“
sagði Þórir sem varð tvöfaldur meistari með
Kielce í vor en liðið sópaði erkifjendunum Wisla
Plock, 3-0, í lokaúrslitum úrslitakeppninnar í
pólsku deildinni.
„Þetta voru samt ekki auðveldir leikir og
við vildum því einbeita okkur að þeim áður en
við byrjuðum að hugsa um Meistaradeildina,“
bætir Þórir við.
Hann fékk þó lítið að spila í úrslitarimmunni
þar sem Króatinn Ivan Cupic er kominn aftur
af stað eftir erfið meiðsli. „Ég fékk ekki nema
tólf mínútur í einum leiknum og það var allt og
sumt. Þetta er auðvitað ákvörðun þjálfarans og
ekkert annað fyrir mig að gera en að standa
mig vel á æfingum og bíða eftir tækifærinu.
Cupic er einn af betri hornamönnum heims,“
segir Þórir sem veit ekki hvort hann muni
þurfa að dúsa á bekknum alla helgina í Köln.
„Það verður bara að koma í ljós. Það er þjálfar-
ans að ákveða þetta. Ég verð bara að nýta þær
mínútur sem ég fæ,“ segir hann.
Fyrir fram reikna flestir með sigri Barcelona
í dag og Þórir vonast til þess að þeir spænsku
muni falla í þá gryfju að vanmeta andstæðing-
inn. „Við vitum hvað við getum og ætlum að
einbeita okkur að því. Barcelona er með mjög
sterka vörn og tvo góða markverði. En við erum
líka með ágæta markverði og getum líka spilað
hörkuvörn. Við munum í það minnsta ekki gefa
tommu eftir enda ekki víst að maður komist
hingað á hverju ári. Þá er um að gera að njóta
þess,“ segir hann.
Þeir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson
munu dæma leikinn í dag. „Þeir dæmdu hjá
okkur leik gegn Medvedi í Rússlandi í fyrra
og stóðu sig þá mjög vel. Þetta er mikill heið-
ur fyrir þá og þeir eiga það fyllilega skilið að
dæma hér,“ segir Þórir. Hann á þó ekki von á að
fá mikið gefins hjá löndum sínum í dag.
„Ég veit að þeir eru heiðarlegir og munu
dæma eftir bestu getu. Ég mun samt örugglega
grípa aðeins í íslenskuna ef ég þarf eitthvað að
tuða í þeim.“ - esá
Tuða aðeins á íslensku við dómarana
Þórir Ólafsson er kominn til Kölnar með pólska liðinu Kielce sem mætir geysisterkum Börsungum í dag.
SPENNTUR Þórir vonast til
að fá tækifæri með Kielce
gegn Barcelona í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ekkert verður af því að
bjórtjald verði reist nærri félags-
heimili Þróttar fyrir landsleik
Íslands og Slóveníu. Þróttarar
hafa þó ekki lagt árar í bát. Í gær
fengu þeir synjun á umsókn sinni
um bjórtjaldið og eru hissa á
þeim úrskurði.
Umhverfis- og skipulags-
svið Reykjavíkurborgar hafnaði
umsókninni á þeim forsendum
að ekki væri hægt að vera með
áfengi á svæði sem væri ætlað
börnum og unglingum.
„Á sama tíma er verið að
halda veislur í Laugardalshöll-
inni þar sem ekki bara er verið
að selja bjór heldur einnig sterkt
áfengi. Ég veit ekki betur en að
það svæði sé líka ætlað börnum
og unglingum. Mér finnst borgin
vera komin í mótsögn við sjálfa
sig,“ segir Jón Kaldal, formaður
knattspyrnudeildar Þróttar, og
bendir á að bjór hafi verið seldur
í tjaldi fyrir utan Laugardals-
höllina þegar HM í handbolta var
haldið hér á landið árið 1995.
„Við viljum selja bjór í tvo tíma
en þeir seldu bjór í tvær vikur.
Fordæmið fyrir bjórsölu á þessu
svæði er því til staðar,“ segir Jón.
Þróttarar hafa ekki gefið upp
vonina um að reisa bjórtjald í
Dalnum og hafa lagt inn nýja
umsókn um að reisa tjaldið á svo-
kölluðum þríhyrningi sem er nær
Skautahöllinni. - hbg
Borgin hafnaði
bjórtjaldinu
BJÓR OG BOLTI Þróttarar vilja reisa
bjórtjald í Laugardalnum fyrir lands-
leikinn gegn Slóveníu 7. júní.
KÖRFUBOLTI Miami getur í nótt
tryggt sér sæti í lokaúrslitum
NBA-deildarinnar með sigri
á Indiana í sjötta leik liðanna
í úrslitarimmu vesturdeildar-
innar. Sigurvegari rimmunnar
mætir San Antonio Spurs í loka-
úrslitunum.
Miami er ríkjandi meistari
og fyrir fram var ekki talið að
liðið myndi lenda í teljandi vand-
ræðum með Indiana. En síðar-
nefnda liðið var með undirtökin
framan af í leik liðanna í gærnótt
og stefndi í að liðið færi með 3-2
forystu í sjötta leikinn sem fer
fram í Indiana í kvöld.
En LeBron James sneri
leiknum sínum mönnum í vil með
frábærum kafla í þriðja leik-
hluta. Þá skoraði hann sextán af
30 stigum sínum í leiknum og var
aðalmaðurinn í 20 stiga viðsnún-
ingi. Miami vann, 90-79, og er því
í lykilstöðu fyrir leik kvöldsins.
- esá
LeBron sá
um sigurinn
ÓTRÚLEGUR LeBron James hefur sýnt
frábæra takta í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP