Fréttablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 51
| FÓLK | 5
Nú stendur yfir alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Bíó Paradís. Sýndar eru
áhugaverðar kvikmyndir fyrir börn
sem hafa hlotið viðurkenningar um
allan heim. Markmiðið er að slík hátíð
verði haldin árlega en hún er hugsuð
til að vekja áhuga barna á kvik-
myndum og kvikmyndamenningu,
stuðla að tengslum við líf og umhverfi
annarra barna víða um heim og færa
börnum fjölbreyttari upplifun á hvíta
tjaldinu en þau hafa haft aðgang að
hingað til. Meðal þess sem boðið
er upp á í dag er verðlaunamyndin
Mrs. Miller en það er mynd sem bar
sigur úr býtum í yngri flokki Mynd-
vers grunnskólanna. Hún fjallar um
tvo krakka sem verða forvitnir um af-
drif heimsfrægrar kvikmyndastjörnu
(Mrs. Miller) og reyna að leysa tíu
ára gamla morðgátu sem leiðir til
óvæntra endaloka. Kvikmyndagerðar-
menn: Karólína Jack, Hekla Sól Haf-
steinsdóttir, Helga Björg Óladóttir,
Elísa Björg Tryggvadóttir og Una Mist
Óðinsdóttir.
■ SKEMMTUN
Hátíðin Sjóarinn síkáti í Grinda-
vík hefur verið ein vinsælasta
bæjarhátíð landsins en hún fer
ævinlega fram um sjómanna-
helgina. Fjölbreytt dagskrá
verður alla helgina og mikið er
lagt upp úr vandaðri barna-
dagskrá. Um 20 þúsund manns
tóku þátt í hátíða rhöldum í
fyrra. Bænum er skipt upp
í fjögur litahverfi til að búa
til skemmtilega stemningu.
Margir af fremstu listamönnum
þjóðarinnar koma fram á Sjóar-
anum síkáta að þessu sinni. Þar
má meðal annars nefna Magga
Eiríks og KK, Bubba Morthens,
Skálmöld, Matta Matt, Pál
Óskar, Rokkabillýbandið, Skíta-
móral, Gissur Pál Gissurarson
og Unni Eggertsdóttur.
Brúðubíllinn verður á staðnum
og sömuleiðis Skoppa og
Skrítla, hoppukastalar og
trúðar. Þá er hægt að fara í
skemmtisiglingar.
Guðbergsstofa verður form-
lega opnuð í Kvikunni á sunnu-
daginn kl. 16.00 og verður
jafnframt málþing til heiðurs
Guðbergi Bergssyni, rithöfundi
og heiðursborgara Grindavíkur.
Guðbergsstofa er safn og sýn-
ing um Guðberg en hann fædd-
ist í Grindavík og ólst þar upp.
SJÓARINN
SÍKÁTI
■ FUGLASKOÐUN
Fuglavernd býður upp á fugla-
skoðun í dag í samvinnu við
Norræna húsið. Gengið verður
um friðlandið í Vatnsmýrinni
og í kringum Tjörnina og leiðir
Aron Leví áhugasama í gegnum
fuglalífið á Hústjörn, Vatns-
mýrartjörn, Þorfinnstjörn,
Suður tjörn og Norðurtjörn.
Gangan hefst klukkan 16.
Lagt verður af stað frá anddyri
Norræna hússins og tekur
gangan um klukkustund.
Gangan er öllum opin og er
áhugasömum bent á að klæða
sig eftir veðri og hafa sjónauka
meðferðis.
Sjá www.norraenahusid.is.
FUGLALÍFIÐ
Í MÝRINNI
KVIKMYNDAHÁTÍÐ BARNA Í BÍÓ PARADÍS
Hjartasjúkdómar eru stundum eins og borgarísjakinn, að stórum
hluta dulinn og ósýnilegur nema skyggnst sé undir yfirborðið.
Með áhættumati er hægt að:
• greina áhættuþætti og meta líkurnar á kransæðsjúkdómi
• greina áður óþekktan kransæðasjúkdóm
• veita ráðgjöf um lífsstíl
• hefja meðferð við áhættuþáttum ef við á
• beina þeim sem þarfnast frekari sérfræðimeðferðar í réttan farveg
Þú átt eitt hjarta
... hugsaðu vel um það
Ekki bíða of lengi – pantaðu tíma í Áhættumat Hjartarannsóknar
í síma 535 1800 eða bókaðu tíma á www.hjarta.is