Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 28

Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 28
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Ólafur: „Ég var 38 ár á sjó og man ekki til að hafa lent í verulegri hættu en auðvitað eru náttúruöflin sterk. Það var oft brim við Grindavík sem lítið bar á. Ég var einu sinni á leið inn á eðlilegum hraða þegar báturinn lyftist upp að aftan og skutlaðist undan bárunni á svakalegri ferð og það var ekki fyrr en við vorum rétt lentir uppi í fjöru sem báran braut loksins fram með bátnum. Þar sluppum við með skrekkinn.“ Þórdís: „Já, það geta komið upp ískyggilegar aðstæður. Ég horfði einu sinni á Tómas Þorvaldsson GK 10 fá á sig brotsjó í snarvitlausu veðri og hverfa í öldudali. Mér stóð ekkert á sama. Við vorum að koma inn til Hafnarfjarðar og fórum út til að draga hann í land því hann varð vélarvana. En það eru strang- ar öryggiskröfur gerðar til sjó- manna og það skilar sér. Sem þátt- takanda finnst mér sjómenn ekki lifa við háska dags daglega.“ Ólafur: „Það hafa orðið alveg gífur legar breytingar á veiðum, veðurspám, skipum og siglingatækj- um frá því ég byrjaði á sjó 1955. Það er bara eins og svart og hvítt. Þá var ekkert annað en dýptar mælir – og búið. Svo komu radar arnir og það varð allt annað líf.“ Missti mann út Ólafur. „Menn voru líka óþarflega sókndjarfir, miðað við aðstæð- ur. Ég held að það hafi ekki verið vit í því stundum. Skipstjóra þótti afleitt að vera í landi ef aðrir voru á sjó. Þegar ég reri frá Þingeyri var veiðisvæðið 27 mílur út af Dýrafirði, á Barðanum. Ég man að við vorum búnir að keyra einn og hálfan tíma upp að landinu þegar við fórum að stíma framhjá ensku togurunum sem voru við 12 mílna mörkin. Vorum bara á 50 tonna bát, fimm saman. Það var oft barningur á landleiðinni.“ Þórdís: „Fyrst þú segir barn- ingur hefur ábyggilega verið snar- vitlaust veður.“ Ólafur: „Það þýddi ekkert annað en að vera í glugganum og fylgjast með þegar brotin voru að koma og slá af. Í tunglsljósi sá maður þau hvítfyssandi í fjarska.“ „Varðstu aldrei vitni að slysi á sjó?“ Ólafur: „Jú, ég missti einu sinni mann. Hann tók út á útleiðinni og hvarf í sjóinn. Það var rosalegt áfall. Ég var lengi að ná mér eftir það. En það tókst betur til í annað sinn þegar einn skipverjinn fór út með netunum og hvarf. Við héldum að við sæjum hann ekki meira en sonur minn, sem var stýrimaður um borð, henti sér á eftir honum og náði honum, við hífðum hann inn og svo kom þyrla og sótti hann. Þetta skeði fljótt en lánaðist. Það var eigin lega kraftaverk.“ Síldveiðarnar skemmtilegastar Hvað varstu gamall þegar þú byrj- aðir á sjó, Ólafur? Ólafur: „Ég byrjaði átján ára á togara frá Patreksfirði sem hét Gylfi. Við sigldum á Þýskaland. Síðan fór ég á Þorbjörn, bát frá mínum heimabæ, Þingeyri, og fór aldrei á togara aftur. Svo fór ég í sjómannaskólann, útskrifaðist 1964 og var orðinn skipstjóri 1966, það starf entist mér út starfsævina. Var með eigin útgerð frá 1974, fyrst frá Grindavík, svo Hafnarfirði. Keypti bát í Grindavík sem hét Arnfirð- ingur. Bróðir minn var með mér í þessu. En lánin voru óhagstæð svo við seldum Arnfirðing og keyptum 50 tonna trébát og fórum að gera hann út. 1988 lét ég smíða nýjan bát í Póllandi, Sandafellið. Svo var hann seldur 2002 og þá hættum við.“ Þórdís, smitaðist þú af pabba þínum? Þórdís: „Kannski er þetta í blóð- inu. Er fædd og uppalin í sjávar- plássinu Þingeyri og langaði allt- af á sjó. Fór líklega fyrst 10 eða 11 ára, þá á smokkfiskveiðar í Dýra- firði. Um nótt. Við fengum að fara nokkrar stelpur með einum sjó- manninum. Ég gleymi því aldrei, það var svo gaman. Sem sjómaður fór ég fyrst nokkra túra 1995, þá var ég að leysa af sem kokkur á rækju- veiðum á Haferninum. Svo var ég að leysa af á Sandafellinu eina ver- tíð 1999, bróðir minn var þar skip- stjóri. En ég byrjaði á Hrafni GK 111 árið 2000 og er búin að vera á honum síðan. Er þar gæðastjóri. Hrafn er frystitogari svo það er 28 til 30 daga útivera í senn. Ég vann í fiski sem unglingur og finnst bara gaman að vinna við sjávarútveginn. Svo eru tekjurnar góðar.“ Ólafur: „Ég man það núna að ég fór líka á svona smokkfiskveiðar í Arnarfirðinum. Ég var á öllum veiðum en mér fannst síldveiðarnar skemmtilegastar. Það var einhver ævintýraljómi yfir þeim. Ég var tvö sumur í Norðursjónum og mörg úti fyrir Aust fjörðum, við fórum alla leið norður að Svalbarða. Fylltum bátinn þar og vorum á fjórða sólarhring í land. Fengum brjálað veður og urðum að sleppa síldinni af dekkinu til að létta bát- inn. Tveir bátar sem voru á undan okkur komu á hliðinni í land. Svona var þetta.“ Þreytan hellist yfir Þórdís: „Það er orðin allt önnur aðstaða um borð í skipum í dag en áður var, að minnsta kosti um borð í frystitogurum. Í Hrafnin- um erum við með ljósabekk, lítinn líkamsræktarsal og sjoppu. Þar er góður matur sem skiptir mjög miklu máli því við erum alltaf að hugsa um mat. Svo er annað sem skiptir miklu máli, það er hvernig útgerðin hugsar um sína sjómenn. Mín reynsla af Þorbirni í Grindavík er góð. Það er allt gert til að okkur líði vel um borð.“ Finnst ykkur þið ekki missa af sumrinu á sjó? Þórdís: „Jú, en frystitogara- sjómennskan er þannig að ég er úti í fjórar vikur og svo fjórar í landi. Stundum fer ég tvo túra í röð og hef farið þrjá. Það sem mér finnst erfiðast eru sex tíma vaktirnar, að sofa sex tíma og vinna sex tíma í þrjátíu sólarhringa er slítandi og maður nær aldrei að vera úthvíld- ur. En svo venst það. Um leið og ég kem um borð er ég dottin inn í rútínuna og finn ekki mikið fyrir þreytu fyrr en túrinn er búinn. Þegar ég stíg frá borði og kem heim þá hellist hún yfir mig.“ Hafið þið feðgin verið til sjós saman? Þórdís: „Nei, bróðir minn var með Sandafellið þegar ég var á því. Mér fannst gaman að róa með honum. Annar bróðir minn var eitt ár á Hrafninum og dóttir mín fór einn túr sem háseti. Það var gaman líka. Ég er eina konan núna af 26 skipverjum á Hrafninum en það hafa komið stelpur í afleysingar. Ég byrjaði sem háseti en er núna gæðastjóri í vinnslunni. Framan af gátum við ekki horft á sjónvarp, bara spólur. Nú er komið síma- og netsamband í alla klefa.“ Ólafur: „Lengi var ekkert hægt að hringja í land nema í gegnum radíó. En í sjávarþorpum voru allir með útvarp og hlustuðu á báta- bylgjuna. Eftir hvern veðurfrétta- tíma fóru skipstjórarnir í talstöð- ina og lýstu stöðunni. Stundum þegar spáð var vondu veðri og flotinn stímdi í land þá var Ríkinu lokað þegar þrír bátar voru komn- ir inn.“ Auðvitað eru náttúruöflin sterk Feðginin Ólafur Finnbogason og Þórdís Hafrún Ólafsdóttir tilheyra bæði hetjum hafsins þó að Ólafur sé hættur á sjó fyrir nokkru og farinn að bjástra við bústað lengst inni í landi. Hann var í kaupstaðarferð nýlega og heimsótti dóttur sína. Þar báru þau saman bækur sínar um sjómennskuna, sem heillaði þau bæði. Hann var skipstjóri. Hún er gæðastjóri. Alls hefur hafið tekið 833 íslenska sjómenn frá árinu 1950. Fram til 1975 voru þeir 597. Flestir fórust árið 1959, 59 talsins, en frá árinu 1997 hefur verið um eins stafs tölu að ræða á ári. Tvö ár hafa verið slysalaus frá 1950, árin 2008 og 2011. Rúmlega 1.300 íslenskum sjómönnum hefur verið bjargað úr sjávarháska með gúmmíbjörgunarbátum frá árinu 1950. Hér er getið nokkurra atriða sem hafa haft veruleg áhrif í fækkun sjóslysa. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is TILDRÖG OG SAGA SLYSAVARNA Á SJÓ Þyrlusveitin eflist þegar TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar kemur til landsins. Björgunar- búningar voru lögleiddir. 1950 1957 1960 1968 1985 1986 1989 1994 Gúmmíbjörgunarbátarnir komu fyrst til sögunnar og tveimur árum síðar björguðust fyrstu sex sjómennirnir í gúmmíbát. Gúmmíbjörgunar- bátarnir urðu skyldu- búnaður um borð í íslenskum skipum. Þyrlur koma til sögunnar á Íslandi sem björgunartæki. Tilkynningarskylda íslenskra skipa sett á laggirnar. Skipverjar þurftu að gera grein fyrir staðsetningu skipa sinna á vissum tímum. 1994 tekur sjálfvirkur sendibúnaður við því hlutverki. Slysavarnaskóli sjómanna var settur á fót. Síðan hafa 38.000 manns sótt námskeið við skólann. Farsímakerfið tekið í notkun og skip fóru að geta hringt í land. Reglugerð skyldar sjómenn til að sækja öryggisfræðslu. FEÐGIN Þórdís og Ólafur hafa verið á sjó hvort á sínum tíma og hafa upplifað ólíka hluti en eiga áhugann á sjónum sameiginlegan. Ég vann í fiski sem unglingur og finnst bara gaman að vinna við sjávarútveginn. Þórdís Hafrún Ólafsdóttir FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V AL LI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.