Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 49

Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 49
 | FÓLK | 3 Hay Max er áhrifaríkur, lífrænn og lyfjalaus frjókornatálmi fyrir þá sem þjást af frjó- kornaofnæmi. Hann hefur fengið fjölda viðurkenninga, meðal annars frá bresku astma- og ofnæmissam- tökunum. Hay Max er einfaldur í notkun og kemur í veg fyrir að frjókorn komist inn í líkamann. Hay Max er framleiddur úr hágæða líf- rænum efnum; bývaxi, ilmkjarna- olíum, aloe vera og sólblómaolíu. Salvinn er vottaður fyrir grænmetis- ætur. Með því að koma í veg fyrir að of mikið magn frjókorna berist inn í líkamann er hægt að forð- ast einkenni ofnæmisins, svo sem hnerra og kláða í augum, hálsi og eyrum. Hay Max hentar ófrískum konum, konum með barn á brjósti og börnum. Salvinn er borinn vand- lega á svæðið umhverfis hvora nös nokkrum sinnum á dag á meðan á frjókornatímabilinu stendur. Einnig má setja salvann aðeins inn í nasir og í kringum augu. ALLT ANNAÐ LÍF Erna Guðrún Björnsdóttir er mikið innan um hesta og stundar útivist af kappi. „Ég var alltaf með með nef- rennsli og hnerraði endalaust. Ég vaknaði á hverjum morgni hnerrandi með nefrennsli og ekkert virkaði á mig. Móðir mín heyrði af Hay Max- salvanum og gaf mér. Ég smurði Hay Max á húðina fyrir neðan nefið og á nokkrum dögum leið mér betur þegar ég notaði salvann. Núna nota ég alltaf Hay Max áður en ég fer að sofa.“ BÆTT LÍF Birna Birgisdóttir segist hafa verið með frjókornaofnæmi, með tilheyr- andi kláða og leiðindum nánast alla tíð. „Hvert einasta sumar hef ég leitað að hinu fullkomna ofnæmislyfi sem gerir eitthvað gagn en slævir mann ekki. Ég hafði komist að þeirri niðurstöðu að þetta lyf væri ekki til. Síðan kynntist ég Hay Max-salvanum og síðustu tvö sumur hef ég notað hann með ofnæmislyfjunum sem hafa hingað til ekki gert nægilega mikið gagn á slæmum dögum. Þessi sumur hafa verið þau bestu sem ég hef upplifað lengi,“ segir Birna. „Ég hef borið Hay Max-salva á mig á morgnana og er svo með hann á mér og tek hann upp þegar ég finn að það fer að styttast í ofnæmis- kast. Hann virkar hratt og örugglega og kemur í veg fyrir slæmt kast. Ég mæli því hiklaust með Hay Max-salv- anum því hann hefur gert mikið fyrir mig í baráttunni við frjókornin.“ HAY MAX VIRKAR FYRIR SONINN „Annar tvíburinn minn var alltaf hnerrandi og ég var komin á þá skoðun að þetta væri ofnæmi. Þegar við fórum í frí var hann stöðugt hnerrandi og með hor,“ segir Sonja Dögg Ólafsdóttir. „Ég ákvað að fara apótek til að athuga hvort eitthvað væri til handa svona litlum krílum með ofnæmi. Mér var sagt að það væri ekkert nema Hay Max og sá að til voru þrjár gerðir. Ég valdi Hay Max með aloe vera. Ég bar þetta á soninn og það var eins og hendi væri veifað, hnerrinn hætti. Ég er núna alltaf með Hay Max í töskunni og ber á báða strákana þegar við erum úti í náttúrunni.“ ÞVÍLÍKUR MUNUR „Sonur minn, Emil Ingi, 13 ára, hefur verið með frjókornaofnæmi frá barnæsku. Í fyrrasumar byrj- aði hann að nota Hey Max-salvann og þvílíkur munur,“ segir Íris Rut Árnadóttir, móðir Emils. „Hann er allt annar drengur, hann getur verið úti á sumrin, spilað golf og gert allt það sem hann vill gera utan- húss. Frjókornaofnæmið var svo slæmt að þegar við fórum í sumar- bústað þurfti hann að vera innan- húss mestallan tímann. Emil ber Hay Max-salvann vel undir augu og nef og þetta svínvirkar. Hann notar Hay Max-salvann með ofnæmislyfjum og líður miklu betur en áður.“ ALLTAF MEÐ HAY MAX Jón Páll Pálmason, þjálfari í knatt- spyrnu, hefur góða reynslu af notkun Hay Max. „Þar sem ég er að þjálfa fótbolta er ég mikið úti á sumrin. Ég hef verið mjög slæmur, alltaf pirraður í augunum þegar frjókornin eru sem mest í loftinu. Ég ákvað að prófa Hay Max og smurði því í kringum augun og við nasirnar. Það var eins og við manninn mælt, ég fann mikinn mun á mér og er núna alltaf með dósina á mér þegar ég er úti. Ég mæli hiklaust með Hay Max gegn frjókornaofnæmi.“ Hay Max-salvinn er lyfjalaus sem þýðir að syfja er ekki ein aukaverkana öfugt við mörg ofnæmislyf. ÞJÁISTU AF FRJÓKORNAOFNÆMI? ICECARE KYNNIR Hay Max er náttúruleg lausn sem hentar öllum. Hay Max er lífrænn salvi sem fyrirbyggir frjó- kornaofnæmi. Fólk hnerrar minna og fær minni ofnæmisviðbrögð við frjókornum. ÁNÆGÐ Erna Guðrún Björns- dóttir er mjög ánægð með Hay Max og finnur fyrir bættri líðan. MYND/GVA MIKILL MUNUR Jón Páll Pálmason þjálfari hefur mjög góða reynslu af því að nota Hay Max. ALLTAF MEÐ DÓSINA Þar sem ég er að þjálfa fótbolta er ég mikið úti á sumrin. Ég hef verið mjög slæmur, alltaf pirraður í augunum þegar frjókornin eru sem mest í loftinu. Ég ákvað að prófa Hay Max og smurði því í kringum augun og við nasirnar. Það var eins og við manninn mælt, ég fann mikinn mun á mér og er núna alltaf með dósina á mér þegar ég er úti. Ég mæli hiklaust með Hay Max gegn frjó- kornaofnæmi.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.