Fréttablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 67
| ATVINNA |
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lausar stöður í leikskóla
Álfaberg (555 3021 alfaberg@hafnarfjordur.is)
• Leikskólakennari
Álfasteinn (555 6155 alfasteinn@hafnarfjordur.is)
• Matreiðslumeistari
• Leikskólakennari
• Þroskaþjálfi
Brekkuhvammur
(565 4493/555 0198 brekkuhvammur@hafnarfjordur.is)
• Leikskólakennari
Hlíðarendi (555 1440 hlidarendi@hafnarfjordur.is)
• Deildarstjóri (á deild barna frá 18 mánaða til þriggja ára)
• Leikskólakennarar
Hraunvallaskóli (590 2800 sigrunk@hraunvallaskoli.is)
• Sérkennslustjóri
• Leikskólakennarar og þroskaþjálfi
Hvammur (565 0499 hvammur@hafnarfjordur.is)
• Leikskólakennarar
Norðurberg (555 3484 nordurberg@hafnarfjordur.is)
• Þrjár stöður þroskaþjálfa
til að sinna kennslu og halda utan um börn á einhverfurófi.
Stekkjarás (517 5920 stekkjaras@hafnarfjordur.is)
• Leikskólakennarar
• Deildarstjóri
Vesturkot (565 0220 vesturkot@hafnarfjordur.is)
• Leikskólakennari
• Þroskaþjálfi
til að sinna kennslu og halda utan um börn á einhverfurófi
Allar upplýsingar veita leikskólastjórar viðkomandi skóla.
Umsækjendum er bent á heimasíður skólanna til að kynna
sér stefnur og starfsemina nánar.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2013.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Helstu verkefni starfsmanns:
Ábyrgð á kerfisþróun og viðhaldi skráningarkerfisins Sarps.
Verkefnastjórnun.
Ábyrgð á ytri vef Sarps www.sarpur.is, þróun og viðhald hans.
Umsjón með gagnasafninu, uppbyggingu og viðhald
grunntaflna, gæðaeftirlit með skráningum.
Samskipti við þjónustuaðila vegna þróunar kerfis og hýsingar
gagnasafns.
Samskipti við notendur, kennsla og notendaþjónusta.
Kynning á Sarpi, öflun nýrra notenda.
Samskipti við samstarfsaðila innanlands og utan.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking á safnastarfi og skráningarmálum safna nauðsynleg.
Menntun eða reynsla tengd skráningarkerfum og
upplýsingatækni (t.d. gagnasafnsfræði) æskileg.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
Góð almenn tölvukunnátta nauðsynleg.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Þjónustulund nauðsynleg.
Reynsla af markaðs- og kynningarmálum er kostur.
Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Tungumálakunnátta nauðsynleg, góð færni í ensku.
Um 100% starf er að ræða frá 1. september 2013.
Fagstjóri
Rekstrarfélag Sarps auglýsir laust starf fagstjóra Sarps
Rekstrarfélag Sarps rekur Sarp sem er menningarsögulegur gagnagrunnur og veflægt skráningarkerfi.
Helstu eignaraðilar Rekstrarfélagsins eru ýmis söfn og stofnanir í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga.
Félagið leitar að öflugum sérfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf.
Starfsstöð starfsmanns er hjá Landskerfi bókasafna hf., Katrínartúni 2, Reykjavík á grundvelli þjónustusamnings Landskerfis
bókasafna og Rekstrarfélags Sarps. Umsóknarfrestur er til og með 21. júní. Nánari upplýsingar veitir Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Rekstrarfélags Sarps, í síma 411-6307 og netfangið: gudny.gerdur.gunnarsdottir@reykjavik.is.
Umsókn með ferilskrá, afritum prófskírteina og meðmælum eða upplýsingum um meðmælendur berist til formanns stjórnar RS,
á netfangið: gudny.gerdur.gunnarsdottir@reykjavik.is.
NetPartner er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í öruggum
netlausnum fyrir miðlungs til stór fyrirtæki og stofnanir.
Hjá okkur eru lausar tvær stöður.
Netsérfræðingur og forritari:
Starfið snýr að því að þróa áfram netstjórnunarbúnað
NetPartner og styðja erlenda samstarfsaðila í uppsetningu
og notkun hugbúnaðarins.
Forritunarkunnátta og góður skilningur á netkerfum er krafa
ásamt góðri ensku kunnáttu.
Netsérfræðingur og öryggisráðgjafi:
Staðan snýr að því að vinna með öryggislausnir NetPartner
sem snúa að uppsetningum á netgáttum (eldveggjum) og
netkerfum með ríka áherslu á uppfyllingu staðla og öryggis.
Uppsetningar á eftirlitsbúnaði og öryggislausnum NetPartner
sem snúa að stjórnun snjalltækja ásamt dulkóðun gagna og
tölvusamskipta.
Báðar stöðurnar krefjast góðra samskipta- og skipulagsei-
ginleika, jákvæðni og þjónustulund með sterka tæknilega
kunnáttu sem bakland.
Allar fyrirspurnir skulu sendast á work@npi.is ásamt
umsóknum sem ber að merkja sem “Umsókn - Þitt nafn”.
Aðeins skal senda CV, við óskum eftir frekari gögnum þar
sem það á við.
Öllum umsóknum verður svarað.
www.netpartner.is
HJARTAVERND
Hjartavernd leitar að einstaklingi til að starfa við rann-
sóknir á mannerfðafræði flókinna sjúkdóma. Starfið felur í
sér úrvinnslu erfðagagna úr stórum gagnabanka Hjarta-
verndar.
Hæfniskröfur:
Framhaldsmenntun á viðeigandi sviði, t.d. tölfræði, erfða-
fræði, stærðfræði eða tölvunarfræði og reynsla í líftöl-
fræðilegri úrvinnslu stórra gagnabanka. Reynsla í notkun
tölfræðiforrita (t.d. R, S-plus, SAS) er nauðsynleg, og færni
í einu eða fleiri forritunarmáli/forritun. Reynsla í líftölfræði-
legri úrvinnslu stórra gagnabanka er æskileg.
Umsjón með ráðningu hefur Valur Emilsson í
valur@hjarta.is eða 595 1855
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2013.
Umsóknum skal skilað til Hjartaverndar, Holtasmára 1,
201 Kópavogi merkt Mannerfðafræði eða á netfangið
atvinna@hjarta.is
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lausar stöður í grunnskólum
skólaárið 2013 - 2014
Áslandsskóli (585 4600 leifur@aslandsskoli.is)
• Íþróttakennsla
• Íslenska á unglingastigi
Hraunvallaskóli (590 2800 lars@hraunvallaskoli.is)
• Almenn kennsla á yngsta stigi (byrjendalæsi kostur)
Setbergsskóli
• Sérkennsla (100%)
• Kennari með upplýsingatækni sem sérsvið
• Skólaliði
• Skólaliði í íþróttahús (baðvarsla)
Víðistaðaskóli (595 5800 sigurdur@vidistadaskoli.is)
• Almenn kennsla á yngsta stigi
• Þroskaþjálfi (afleysing í eitt ár)
Öldutúnsskóli
(555 1546 (erla.gudjonsdottir@oldutunsskoli.is)
• Stærðfræði- og náttúrufræðikennsla á unglingastigi
• Tölvuumsjón
Allar upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar
viðkomandi skóla. Sjá einnig heimasíður skólanna.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2013.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
LAUGARDAGUR 1. júní 2013 15