Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 92
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 56TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
UNNAR AXELSDÓTTUR
Víðilundi 24, Akureyri.
Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun fær
starfsfólk á Reynihlíð og dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri og starfsfólk lyfjadeildar FSA.
Jónína Axelsdóttir
Guðrún Bergþórsdóttir Jón Magnússon
Sigurður Bergþórsson Hrafnhildur Eiríksdóttir
Þórhallur Bergþórsson Ásdís Rögnvaldsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR JÓNSSON
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
mánudaginn 27. maí. Útförin fer fram
frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 11. júní
kl. 15.00.
Bergþóra Jensen
Jóhanna Gunnlaugsdóttir Árni Árnason
Sigríður Gunnlaugsdóttir Ægir Breiðfjörð
Steinunn Gunnlaugsdóttir Brjánn Árni Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Af heilum hug þökkum við samhug, hlýjar
hugsanir og virðingu, sem þið sýnið
minningunni um hana Láru okkar.
Dísa, Valur, Eva, Bjarni Valur, Anna,
Valdimar Helgi og systrabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÓSKAR JÓNSSON
Bjarnastöðum, Hvítársíðu,
verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju
laugardaginn 8. júní kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Ljósið,
Langholtsvegi 43.
Hrefna Halldórsdóttir
Jófríður Guðmundsdóttir Davíð G. Sverrisson
Arndís Guðmundsdóttir Sigurður R. Gunnarsson
Hrafnhildur Guðmundsdóttir Jóhannes Kristleifsson
börn og barnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför okkar ástkæra
HILMARS GUÐLAUGS
JÓNSSONAR.
Elísabet Jensdóttir
Jens Hilmarsson
Jón Rúnar Hilmarsson
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hrafnista, dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, var opnuð við Brúnaveg í
Reykjavík 2. júní árið 1957, á tuttugasta
sjómannadegi Íslendinga. Hún var til
sýnis almenningi þann dag og var ein
stærsta íbúðarbygging landsins á þeim
tíma, „Tólf þúsund teningsmetrar að
rúmmáli“ eins og Henry A. Hálfdánsson,
formaður fulltrúaráðs sjómannadagsins,
orðaði það við vígsluna.
Hornsteinn hafði verið lagður að
dvalarheimilinu árið 1954. Upphaflega
var það einungis ætlað sjómönnum
á eftirlaunum og konum þeirra og í
þessari fyrstu byggingu voru 70 her-
bergi, flest eins manns en einnig nokkur
hjónaherbergi. Byggingarkostnaður var
11,5 milljónir króna. Margir höfðu gefið
stórfé til byggingarinnar, þar á meðal
einn ónafngreindur maður sem gaf
andvirði tíu herbergja, og einnig höfðu
safnast peningar með útgáfu happ-
drættis og skemmtunum. Strax var gert
ráð fyrir tveimur álmum til viðbótar á
sömu lóð, með sextíu rúmum í hvorri.
ÞETTA GERÐIST: 2. JÚNÍ 1957
Hrafnista var vígð í Reykjavík
„Ég ákvað að fara í þetta fjalla-
mennsku nám af því að ég hef verið
svo mikið að ferðast á fjöllum og
jöklum alveg frá því að ég man eftir
mér og langaði að auka þekkingu
mína og reynslu á því sviði,“ segir
Sólveig A. Sveinbjörnsdóttir, sem var
meðal þeirra sjö nemenda við FAS á
Hornafirði sem útskrifuðust nýlega af
tveggja anna fjallamennskubraut. Hún
segir FAS eina skólann á landinu sem
býður upp á nám á framhaldsskólastigi
þar sem jafnmikil áhersla er á fjalla-
mennsku og útivist en í haust taki ný
fjallamennskudeild til starfa við Keili
og hún verði á háskólastigi.
Hvað var síðan skemmtilegast við
námið? „Að vera á jöklum í skóla. Bók-
legu áfangarnir voru áhugaverðir en
verklega námið enn skemmtilegra.
Það eru forréttindi að vera í stærstu
kennslustofu landsins einhvers staðar
á Vatnajökli.“
En hver kennir þau fög sem nem-
endum er boðið upp á í fjallamennsku?
„Aðalkennarinn heitir Ragnar Þór
Þrastarson. Hann hefur lokið tveggja
ára diplómanámi í kanadískum skóla
sem heitir Thompson Rivers Univers-
ity, hefur verið í björgunarsveitum og
verið leiðsögumaður hjá Arctic Advent-
ures. Hann gat miðlað okkur heilmiklu
og þegar við fórum í verklegu kúrsana
fengum við aukaleiðbeinendur.“
Sólveig segir þrjár tíu daga ferðir
hafa verið hluta af náminu og oftast
hafi verið gist í tjöldum. „Fyrsta ferðin
var í Öræfin, þar sem við æfðum kletta-
klifur og straumvatnsbjörgun. Önnur
var í Þórsmörk, þar löbbuðum við um
há fjöll og pældum í snjóflóðum og
æfðum sprungubjörgun á skriðjöklum.
Útskriftarferðin var í Skaftafell, þar
sem við vorum á skriðjöklum og gengum
á Öræfajökul og gistum undir Dyrhamri.
Svo það var ýmislegt brallað.“
Sólveig er þegar komin í atvinnu sem
fjallaleiðsögumaður hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum og kveðst aðal-
lega verða á Sólheimajökli og Skafta-
fells- og Svínafellsjökli í sumar. „Þetta
nám gefur mér hellings möguleika og
það er mjög góður grunnur. Þá eru mér
allar leiðir færar til að halda áfram,“
segir hún og kveðst vera að skoða
námið í Thompson Rivers University
í Kanada. „Ég er búin að fá inni þar í
haust en er ekki viss um hvort ég fer.
Sá skóli er að opna útibú í Keili og ég er
að hugsa um að taka fyrra árið þar og
fara til Kanada seinna árið.“
Gallinn við fjallamennsku er að
sögn Sólveigar sá að allur búnaður er
dýr sem honum fylgir. Skyldi hún hafa
fengið brodda í stúdentsgjöf? „Nei,
ég fékk þá í fermingargjöf en ég fékk
nýjan svefnpoka í stúdentsgjöf.“
gun@frettabladid.is
Skemmtilegast að vera
á jökli í skóla
Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir varð stúdent frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaft afellssýslu
og útskrifaðist um leið af nýrri fj allamennskubraut. Hún er þegar farin að vinna við
áhuga málið sem fj allaleiðsögumaður og verður aðallega á jöklum í sumar.
MERKISATBURÐIR
1479 Kaupmannahafnarháskóli er stofnaður.
1495 Förumunkurinn John Cor skráir hjá sér fyrstu uppskriftina
að skosku viskíi.
1815 Napoleón Bónaparte sver eið að stjórnarskrá Frakklands.
1908 Fræðslulögin frá 1907 ganga í gildi og hefst þá skólaskylda
10 til 14 ára barna.
1908 Hafnarfjörður fær
kaupstaðarréttindi.
1943 Vegna skorts á
gúmmíi er fyrirskipuð
skömmtun á gúmmístíg-
vélum í stærðum sjö og yfir.
1968 Nýja sundlaugin í
Laugardal í Reykjavík tekur
til starfa og er þá gömlu
sundlaugunum þar lokað.
1976 Bretar viðurkenna 200 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland.
1990 George H. W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Mikhaíl Gor-
batsjev, leiðtogi Sovétríkjanna, skrifa undir samkomulag um að
hætta framleiðslu á efnavopnum.
SÓLVEIG „Það eru forréttindi að vera í stærstu kennslustofu landsins einhvers staðar á Vatna-
jökli,“ segir Sólveig, sem mun halda sig mest á jöklum í sumar sem fjallaleiðsögumaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM