Fréttablaðið - 11.07.2013, Blaðsíða 2
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
11
91
9
Glæsilegt úrval og góð
aðstaða til að velja
fullkomna hringa
fyrir stóra daginn.
Skoða, máta, velja,
setja upp … hringana
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
MANNLÍF Björn Pétursson var í vor
hlaðinn lofi, gjöfum og þökkum
við mikla athöfn enda lét hann þá
af störfum sem skólastjóri Mela-
skóla. Honum þótti tilstandið þó
helst til mikið því að hann er ekkert
á förum þótt hann gæti sest í helg-
an stein með eftirlaun sín. Á kom-
andi skólaári mun skóla stjórinn
fyrrverandi nefnilega sinna starfi
skólaliða í skólanum.
„Ég er búinn að vera í Mela-
skólanum í 42 ár, sex ár sem
nemandi og þrjátíu og sex sem
starfsmaður,“ segir Björn. „Skýr-
ingin á þessu liggur bæði hjá Mela-
skólanum og svo hjá mér sjálfum.
Hvað varðar Melaskólann þá er
þetta staður þar sem fólk kemur
til að vera. Starfsmannaveltan
er mjög lítil. Margir kennaranna
eru líka gamlir nemendur skól-
ans. Þetta helgast af því að það
er mjög góður andi þarna. En það
sem að mér snýr ber merki þess að
eflaust er ævintýraþráin af skorn-
um skammti.“
Björn tekur við nýju hlutverki af
mikilli auðmýkt. „Ég held að þetta
verði skrítnara fyrir alla aðra en
mig,“ segir hann. „Enda var það
svo að þegar ég greindi kollegum
mínum frá þessu þá var það eins og
í Njálu, ég varð að segja þeim það
þrem sinnum,“ segir hann kankvís.
„Það verður eflaust undarlegt fyrir
starfsmenn og eldri nemendur að
sjá mig í nýju hlutverki.“
Þegar Björn er inntur eftir
starfslýsingu á nýja starfinu virð-
ist danski titillinn „altmuligman“
eiga einna best við. „Tveir veiga-
mestu þættirnir eru að vera á
verði í frímínútum og fylgjast
með svo að allt gangi vel og svo
er það að hjálpa til í matsalnum,
bæði við skömmtun og frágang.
Svo er það ýmislegt tilfallandi,
það er nú svo margt í skóla starfinu
sem ekki verður fyrir séð. Ég gæti
til dæmis þurft að vera við bað-
vörslu í íþrótta húsinu. Svo er það
eiginlega í hendi nýs skólastjóra
að ákveða hvernig hann vill nota
krafta mína. Þar sem maður er
orðinn svo gamall og hokinn af
reynslu getur maður nú gengið
í öll störf. Til dæmis ef einhver
kennaranna er vant við látinn get
ég auðveldlega stokkið inn.“
Björn þekkir reyndar til flestra
þessara verka enda taldi hann það
ekki eftir sér, í skólastjóratíð sinni,
að bretta upp ermar og gera það
sem gera þurfti. Til dæmis tók
hann að sér matarskömmtun eftir
hrun þegar að kreppti í skólanum.
Hann ber engan kvíðboga fyrir
því að verða undirmaður fyrr-
verandi undirmanna sinna. „Nei,
reyndar er ég afar ánægður með
það hvernig nýr skólastjóri, Dagný
Annasdóttir, tók þessu. Það væru
kannski ekki allir ánægðir með
að hafa mig þarna enn þá en hún
varð hin kátasta. Eins gæti það
orðið skrítið fyrir umsjónarmenn
að þurfa að segja mér, gamla yfir-
manninum, til en fyrir mig verður
það bara ánægjuleg tilbreyting.“
jse@frettabladid.is
Skólastjórinn verður
að skólaliða í haust
Melaskólinn er svona staður þar sem fólk kemur til að vera, segir fyrrverandi skóla-
stjóri, sem verður skólaliði þar næsta haust. „Verður skrítnara fyrir alla aðra en
mig,“ segir hann. Ekkert mál að verða undirmaður fyrrverandi undirmanna sinna.
■ Kennari 1977 til 1994
■ Aðstoðarskólastjóri 1994 til 2007
■ Skólastjóri 2007 til 2013
■ Skólaliði 2013
➜ Ferill Björns
í Melaskóla:
ÞEIR EIGA SAMLEIÐ Björn segist hugsanlega verða skólaliði næstu þrjú til fimm
árin. „Ef skólastjórinn telur að ég standi mig,“ segir hann af auðmýkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
MENNING Enginn af umsækjendum
um stöðu tónlistarstjóra Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands þótti hafa
næg alþjóðleg tengsl og yfirsýn
til þess að sinna starfinu. Því var
Bengt Arstad endurráðinn sem
ráðgjafi í starfið. Þetta staðfestir
Arna Kristín Einars dóttir, verð-
andi framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Fimm manns sóttu um stöðuna,
sem var auglýst í lok maí. Að sögn Örnu voru
þrír umsækjenda metnir hæfir en skorti yfirsýn
og alþjóðleg tengsl, að mati þeirra sem um
umsóknirnar fjölluðu.
Hún segir, að þess vegna hafi verið ákveðið að
taka aftur upp ráðgjafasamning við Bengt Arstad,
en hann hafi starfað með hljómsveitinni síðast-
liðin ár. Athygli vekur að hann uppfyllir ekki þær
hæfniskröfur sem gerðar eru til umsækjenda um
íslenskukunnáttu. Bengt Arstad var heldur ekki í
hópi umsækjenda um starfið.
Þá hafi það skipt máli að verið sé að leita að
nýjum aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníunnar, þar sem
Ilan Volkov núverandi aðalhljómsveitarstjóri hættir
eftir næsta starfsár. Staða tónlistarstjóra verði
svo auglýst aftur og þá hugsanlega með breyttum
áherslum. - ósk
Enginn umsækjenda um stöðu tónlistarstjóra við Sinfóníuna fékk starfið:
Skorti yfirsýn og alþjóðleg tengsl
ÞRÍR UPPFYLLTU HÆFNISKRÖFUR Bengt Arstad var ekki í
hópi umsækjenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ARNA KRISTÍN
EINARSDÓTTIR
SÝRLAND, AP Stærstu samtök sýrlenskra
uppreisnarmanna, Sýrlenska þjóðar-
bandalagið, vísar algerlega á bug ásök-
unum Rússa um að uppreisnarmenn hafi
notað eiturgasið sarín í árás skammt frá
borginni Aleppo í mars.
Vítalí Tsjúrkín, sendiherra Rússa hjá
Sameinuðu þjóðunum, fullyrti þetta á
mánudag og afhenti jafnframt Ban Ki-
moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, 80 blaðsíðna skýrslu um málið.
Tsjúrkín sagði að sýrlensk stjórnvöld
hefðu beðið Rússa um að rannsaka atvikið,
en efnavopnasérfræðingar á vegum Sam-
einuðu þjóðanna höfðu þá reynt að komast
inn í landið til að rannsaka árásina, en
fengu ekki heimild til þess.
Árásin kostaði 26 manns lífið, þar af
sextán hermenn sýrlensku stjórnarinnar
og 86 manns að auki særðust.
Uppreisnarmenn hafa sakað stjórnar-
herinn um þessa árás. Hvorki Bretar né
Bandaríkjamenn segjast hafa séð nokkuð
það sem sanni að uppreisnarmennirnir
beri ábyrgð á henni. - gb
Sýrlenskir uppreisnarmenn hafna ásökunum Rússa um að þeir hafi notað eiturgasið sarín:
Neita að bera ábyrgð á árás með eiturgasi
Á SJÚKRAHÚSI Í ALEPPO Læknar sinna fólki eftir
árásina í mars. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN Fulltrúadeild ríkisþingsins í Texas hefur samþykkt
reglugerð sem takmarkar rétt kvenna til fóstureyðinga. Gera má ráð
fyrir að þessi reglugerð verði að lögum innan skamms. Málið verður
tekið fyrir í öldungadeild ríkisins í dag, þar sem það fær líklega braut-
argengi.
Í reglugerðinni er lagt blátt bann við fóstureyðingu ef móðirin er
gengin tuttugu vikur eða meira og gerðar eru ríkari kröfur um aðstöðu
lækna sem taka að sér fóstureyðingar. Reglugerðin mætir mikilli and-
stöðu, einkum á þeirri forsendu að þær knýi fóstur eyðingalækna til
að loka stofum sínum og þar með neyðist ófrískar konur, sem ekki
eru reiðubúnar í móðurhlutverkið, að leita til lækna sem starfa án til-
skilinna leyfa. Það geti stofnað lífi kvennanna í hættu. - ósk
Öldungadeild ríkisþingsins í Texas fær umdeild lög til sín:
Skerða líklega rétt til fóstureyðinga
STYÐJA TAKMARKAÐAN RÉTT Hér sjást stuðningsmenn nýrrar reglugerðar um
takmarkaðan rétt kvenna til fóstureyðinga í borginni Austin í Texas-ríki. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Héraðsdómur Austur-
lands sýknaði í gær konu af
líkams árás og broti gegn barna-
verndarlögum gagnvart átta ára
gömlum nemanda. Konan var
ákærð fyrir að hafa í október í
fyrra fært drenginn með ofbeldi,
yfirgangi og með ruddalegum
hætti úr matsal skólans og meitt
hann.
Konan var sýknuð þar sem
framburður vitna veitti ekki
nægar upplýsingar háttsemina. - vg
Lögbrot talið ósannað:
Kona sýknuð af
árás á barn
BANDARÍKIN Stjórnendur banda-
rísku efnahagsþróunarstofnunar-
innar gripu til þess þegar í ljós
kom að nokkrar tölvur voru sýkt-
ar af óværu að láta eyða miklu
magni af tölvum, tölvuskjáum,
prenturum, lyklaborðum og
músum til að stöðva útbreiðsluna.
Um 2,7 milljónum dala, and-
virði nærri 350 milljóna króna,
var eytt í eyðinguna, nýjar tölvur
og ráðgjöf. Rúmt ár tók að koma
tölvukerfinu í samt lag. - bj
Eyddu tölvum fyrir milljónir:
Óttuðust veirur
í tölvukerfinu
„Svavar, varst þú að spila með
yfirvöld?“
„Já, ég var að spila póker.“
Svavari Kjarrval Lútherssyni, meðlimi í
lífsskoðunarfélaginu Vantrú, er nú heimilt,
samkvæmt Ríkissaksóknara, að spila bingó
á helgidögum þrátt fyrir að kveðið sé á um
annað í lögum.