Fréttablaðið - 11.07.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 11.07.2013, Síða 4
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 STJÓRNSÝSLA Eðlilegt væri að gera sömu kröfur til þeirra sem Alþingi skipar í bankaráð Seðlabanka Íslands og stjórnarmanna í fjár- málafyrirtækjum að mati sérfræð- ings í stjórnsýslu. Lögfestar hafa verið kröf- ur um hæfi stjórnenda og stjórnarmanna fjármálafyrir- tækja, og hefur Fjármálaeftir- litið eftirlit með að þær kröfur séu uppfylltar. Meðal annars er krafist háskóla- menntunar sem nýtist í starfi, starfsreynslu og þekkingar á starfsemi fyrir- tækisins. Engar slíkar kröfur eru gerð- ar til þeirra sem Alþingi skipar í bankaráð Seðla- bankans. Þess er einungis krafist að þeir starfi ekki fyrir fjár- málastofnanir sem eiga við- skipti við Seðla- bankann. Ó m a r H . Kristmunds- son, prófessor við stjórnmálafræði- deild Háskóla Íslands og sérfræð- ingur í opinberri stjórnsýslu, segir þetta óeðlilegt. Hann segir hugsanlega skýringu á því hvers vegna slíkar kröfur eru ekki gerðar þá, að lög um Seðla- bankann eru frá árinu 2001. Kröf- ur um hæfi stjórnenda og stjórn- armanna fjármálafyrirtækja voru lögfestar á síðasta kjörtímabili. Ómar segir eðlilegt að setja slík- ar kröfur um bankaráðsmenn þegar lög um Seðlabankann verða endur- skoðuð. Þangað til reyni þingmenn væntanlega að nota reglur um fjár- málafyrirtæki sem viðmið þegar þeir velja fulltrúa í bankaráðið. Málefni Seðlabankans heyra undir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frosti Sigurjónsson, þing- maður Framsóknarflokksins og for- maður nefndarinnar, segir að þær kröfur sem ákveðið hafi verið að gera til stjórnenda og stjórnar- manna fjármálafyrirtækja hafi verið framför, og það sé réttmætt að velta upp þeirri spurningu hvort gera ætti sömu kröfur til banka- ráðsmanna Seðlabankans. „Það gæti verið til bóta, þó ég efist ekki um að það fólk sem þar situr sé hæft,“ segir Frosti. Nýtt bankaráð var skipað í lok síðustu viku. Af sjö aðalmönnum í ráðinu eru sex með háskólapróf í hagfræði, lögfræði og viðskipta- fræði, þó ómögulegt sé að segja til um hvort það eitt dugi til þess að viðkomandi myndu standast kröf- ur Fjármálaeftirlitsins til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja. Pólitískt hlutverk bankaráðs Björn Valur Gíslason, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, sker sig nokkuð úr þeim hópi, en hann er með skipstjórnarpróf og kennslu- réttindi. Hann sker sig þó ekki sér- staklega úr hópi fjölmargra forvera hans í ráðinu, en allir flokkar hafa á undanförnum árum komið fólki í ráðið sem ekki myndi uppfylla kröfur sem gerðar eru til stjórnar- manna fjármálafyrirtækja í dag. „Það eru ekki gerðar aðrar kröf- ur en að þeir séu taldir hæfir af þeim sem skipa í ráðið og njóta trausts þeirra. Þetta er pólitískt skipað ráð og hefur þar af leiðandi pólitískt hlutverk líka,“ segir Björn Valur. Hann segist treysta sér til setu í ráðinu. „Ég vona að ég standi undir þessu trausti. Það á eftir að koma í ljós. Ef ekki hlýt ég að víkja fyrir einhverjum öðrum.“ Björn Valur var fulltrúi Vinstri grænna í fjárlaganefnd Alþingis í fjögur ár, sem hann segir hafa verið mikla eldskírn. „Það var mitt mat og þeirra sem skipuðu mig að ég hefði nægilega burði til að sitja í bankaráði Seðlabankans.“ Spurður hvort honum þætti eðlilegt að auka kröfur til banka- ráðsmanna segir Björn Valur að vissulega mætti hugsa sér að gera ákveðnar kröfur til bankaráðs- manna, þótt hann sé ekki hrifinn af því að sérfræðingavæða þjóð- ina. „Þetta snýst líka um pólitíska stjórnun og það verður ekki allt gert af sérfræðingum.“ brjann@frettabladid.is Allir geta setið í bankaráði Engar hæfniskröfur eru gerðar til fólks sem Alþingi kýs í bankaráð Seðlabankans. Eðlilegt væri að gera sömu kröfur til bankaráðsmanna og til stjórnarmanna í fjármálafyrirtækjum segir stjórnsýslusérfræðingur við HÍ. Hlutverk bankaráðs Seðlabankans margþætt. Ráðsmönnum er meðal annars ætlað að gera eftirfarandi: ■ Bankaráð hefur eftirlit með því að bankinn starfi í samræmi við lög. ■ Bankaráð ákveður laun seðlabankastjóra, aðstoðarseðlabankastjóra og fulltrúa í peningastefnunefnd. ■ Bankaráð hefur umsjón með innri endurskoðun bankans. ■ Bankaráð fylgist með starfsháttum peningastefnunefndar Seðlabankans. ■ Bankaráð staðfestir ársreikning bankans. Tryggir að bankinn starfi eftir lögunum ÓMAR HLYNUR KRISTMUNDSSON SÖMU KRÖFUR Eðlilegt væri að gera sömu kröfur til þeirra sem skipa bankaráð Seðlabanka Íslands og stjórnarmanna hjá fjármálafyrirtækjum, að mati sérfræðings í stjórnsýslumálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BJÖRN VALUR GÍSLASON FROSTI SIGURJÓNSSON AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ 366 manns sættu fangelsis-refsingu á árinu 2011. Þar af flestir fyrir fíkniefnabrot eða 109 manns, af þeim voru aðeins átta konur. Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Fremur hægur vindur. VÆTA með köflum mun einkenna veðrið á landinu næstu daga og þá sérstaklega sunnan- og vestanlands. Eitthvað mun þó sjást til sólar inn á milli skúra. Norðaustan til verður áfram hlýjast og sólríkast þótt þar falli einnig einhver væta. 12° 2 m/s 10° 3 m/s 11° 3 m/s 11° 5 m/s Á morgun Hægur eða fremur hægur vindur. Gildistími korta er um hádegi 10° 9° 10° 12° 12° Alicante Aþena Basel 29° 32° 31° Berlín Billund Frankfurt 21° 22° 24° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 25° 20° 20° Las Palmas London Mallorca 26° 21° 31° New York Orlando Ósló 28° 31° 24° París San Francisco Stokkhólmur 23° 18° 19° 11° 3 m/s 11° 4 m/s 18° 1 m/s 11° 3 m/s 15° 1 m/s 11° 2 m/s 9° 4 m/s 11° 11° 11° 14° 11° FJÖLMIÐLAR Hilmari Björnssyni, dagskrárstjóra Skjás eins, var sagt upp störf- um í gær. Hann hafði verið dag- skrárstjóri frá því um mitt ár 2011 og þar áður sjónvarps- stjóri á sjón- varpsstöðinni Sýn og á Stöð 2 Sport. Hilmar segir miður að farið hafi sem fór, en segist stoltur af starfi sínu hjá Skjá einum og þætti sínum í uppbyggingu stöðvar- innar. Ástæðu uppsagnarinnar segir Hilmar vera ágreining á milli hans og framkvæmdastjóra Skjásins, Friðriks Friðrikssonar, um útsendingarrétt á golfefni sem félag í eigu Hilmars hefur haft réttindi á og sýnt hefur verið á stöðinni Skjár golf. - ósk Breytingar á Skjá einum: Hilmari Björns- syni sagt upp HILMAR BJÖRNSSON STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra segir að skipuð verði nefnd til að bregð- ast við skýrslu um Íbúða lánasjóð og meta framtíð húsnæðis mála. Nefndin fær ekki aðeins það verk- efni að vinna úr skýrslunni held- ur einnig leiðrétta villur sem eru í henni. Forsætis ráðherra hefur ýmsar athugasemdir við efni skýrslunnar og telur framsetn- inguna gagnrýniverða. „Framsetningin kom mér svo- lítið á óvart. Meðal annars með hvaða hætt i menn áætluðu tap. Þeir tóku reyndar fram ítrekað í skýrsl- unni að þetta væru tölur sem byggðu á laus- legum áætlun- um og mætti ekki taka of hátíðlega. En bi l ið þarna , til dæmis að einn liðurinn skuli vera 0 til 103 milljarðar, er býsna breitt,“ segir hann. Bent á tvær augljósar villur í skýrslunni. Þar er annars vegar um að ræða einhliða frásögn þing- mannsins fyrrverandi, Þórs Saari, um margra ára gamalt samtal sitt við Eirík Guðnason, fyrrver- andi seðlabankastjóra, en hún var kveðin í kútinn af Seðlabankan- um. Hins vegar staðhæfingu um að starf kynningarstjóra Íbúða- lánasjóðs hafi ekki verið auglýst á sínum tíma, sem var gert. - þþ, ósk Sigmundur Davíð boðar nefnd til að vinna úr og leiðrétta skýrslu ÍLS: Framsetningin gagnrýniverð SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON SVÍÞJÓÐ Stofnendur skráardeili- síðunnar The Pirate Bay eru að senda frá sér samskiptaforritið Heml.is, sem á að vera njósna- helt. „Okkur fannst þörf á nýrri samskiptaþjónustu í ljósi njósna- hneykslanna sem nýverið komust í hámæli,” segir Linus Olsson, annar stofnendanna , í viðtali við sænska fréttavefinn The Local. Nafngiftin, með lénsending- unni .is, er valin sérstaklega vegna dálætis Sundes og með- stofnanda Pirate Bay, Linus Ols- son, á Íslandi. „Við erum hrifnir af Íslandi. Hugsunarhátturinn þar hentar okkur og svo fellur lénsendingin vel að nafninu.“ - gb Sjóræningjar stofna heml.is: Þróa njósnahelt samskiptaforrit KÍNA, AP Allt að fjörutíu manns grófust undir aurskriðu í bænum Zhongxing í Sichuan-héraði í Kína í gærmorgun. Meira en 100 björgunarmenn eru mættir til að leita að fólki sem kynni að vera á lífi. Mikið úrhelli hefur verið á þessum slóðum í vestanverðu Kína undanfarna daga, með tíðum skriðuföllum og miklum flóðum. Sums staðar hefur fólk ekki kynnst jafn miklum flóðum í meira en hálfa öld. - gb Mestu flóð í hálfa öld: Tugir grófust undir aurskriðu ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.