Fréttablaðið - 11.07.2013, Blaðsíða 6
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hver er formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands?
2. Hvers konar hatt var Bin Laden
vanur að hafa á höfði þegar hann fór
út í garð við hús sitt í Pakistan?
3. Hver er formaður atvinnuvega-
nefndar Alþingis?
SVÖR
1. María Rut Kristinsdóttir
2. Kúrekahatt
3. Jón Gunnarsson
VEISTU SVARIÐ?
Göngutjald T empest 200
2,9 kg - 5000mm vatnsheldni
Venom 300
dúnpoki, 900gr
Vat hns eldar Cargo töskur
frá Vango 45 -120L
verð frá
20% afsláttur af
Mammut fatnaði
Margar gerðir
af prímusum
Verð frá
Vango og Mammut
göngudýnur
Verð frá
Vango bakpoki-
Transalp 30L
Göngustafir frá
Allir gönguskór
með 20% afslætti
ATVINNUMÁL Stjórnendur fiskeld-
isfyrirtækja á Vestfjörðum segja
uppbyggingu í geiranum vera fasta
í óskilvirku kerfi. Í ár verður slátr-
að um 3.400 tonnum af eldisfiski á
svæðinu en ef áform fyrirtækjanna
næðu fram að ganga yrði framleiðsl-
an um 17.000 tonn. Til samanburð-
ar má geta þess að botnfiskafli sem
var landað og unninn á Vestfjörðum
árið 2011 var rúm 28.000 tonn.
Í ársbyrjun 2011 óskaði Hrað-
frystihúsið Gunnvör á Ísafirði eftir
leyfi fyrir stækkun á fiskeldi sínu
úr 2.000 tonnum í 7.000 tonn. Það
er umfangsmesta leyfismál sem hið
opinbera hefur á sínu borði. Í apríl
síðastliðnum komst Skipulagsstofn-
un að þeirri niðurstöðu að slíkt leyfi
skyldi ekki háð umhverfismati.
Málið var kært og þá sent til
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála sem ógilti ákvörðun
Skipulagsstofnunar sem hefur nú
fengið málið aftur til afgreiðslu.
Sigmar Arnar Steingrímsson, sér-
fræðingur á umhverfissviði Skipu-
lagsstofnunar, segir að ákvörðunar
sé að vænta á næstu dögum.
Guðbergur Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva, segir líklegt að þá
verði málið sent á byrjunarreit eða
í algjöra óvissu.
„Við vitum ekkert hvenær þetta
kemst á klárt,“ segir Kristján G.
Jóakimsson, vinnslu- og markaðs-
stjóri Hraðfrystihússins Gunn-
varar. „Stjórnsýslan virðist ekki
vera í stakk búin til að takast á við
svona mál,“ bætir hann við.
Nýlega komst Hafrannsókna-
stofnun, sem er umsagnaraðili við
afgreiðslu leyfismála, að þeirri
niðurstöðu að stækkun eldisstöðva
Fjarðarlax í Arnarfirði skyldi háð
umhverfismati þótt önnur leyfi af
sama umfangi hafi verið veitt án
þess að gangast undir slíkt mat.
Annað vestfirskt fyrirtæki sem
bíður afgreiðslu hjá Skipulags-
stofnun er Dýrfiskur. Höskuldur
Steinarsson, framkvæmdastjóri
Fjarðarlax, segir að Hafrannsókna-
stofnun hafi ekki þekkingu til að
taka á leyfismáli Fjarðarlax og sópi
því þess vegna í umhverfismat.
Hann segir það enn fremur
gremjulegt að erfiðasti ljár í þúfu
þessara fyrirtækja skuli vera
stjórnvöld. „Eftir hrun hafa stjórn-
völd verið að kalla eftir auknum
gjaldeyristekjum en Fjarðarlax,
Dýrfiskur og Gunnvör eru nú í
þeirri stöðu að strögla við stjórn-
völd um að fá að gera það sem
stjórnvöld báðu um að gera.“
Í dag munu fulltrúar frá Lands-
sambandi fiskeldisstöðva fara á
fund Sigurðar Inga Jóhannsson-
ar, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra. Að sögn Guðbergs
Rúnars sonar, framkvæmdastjóra
landssambandsins, verður ráðherra
gerð grein fyrir mikilvægi þess að
einfalda kerfið og auka skilvirkni
þess. jse@frettabladid.is
Uppbygging fyrir
vestan föst í kerfinu
Stjórnvöld eru að kæfa fiskeldisfyrirtæki með óskilvirku kerfi segja stjórnendur
fiskeldisfyrirtækja. Leyfi fyrir 7.000 tonna fiskeldi er nú fast í kerfinu. Ef áform
þriggja fyrirtækja ganga eftir fer fiskeldi á Vestfjörðum að slaga upp í botnfiskafla.
VIÐ VINNSLU Erfiðasti ljár í þúfu fiskeldisfyrirtækja er stjórnvöld, segir framkvæmdastjóri Fjarðarlax. MYND/FJARÐARLAX
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur
þegar hafist handa við að gjörbylta kerfinu sem nú er notað
við leyfisveitingar í fiskeldi. Ekki er þó unnt að segja hve-
nær breytingin kemur til framkvæmda. Stærsta breytingin
felst í því að leyfisveitingin fer í skipulagsferli í stað
flókins umsagnar- og leyfisferlis sem fer frá Skipulags-
stofnun til Fiskistofu og Umhverfistofnunar með viðkomu
hjá mörgum umsagnaraðilum.
„Ég get sagt það að núverandi kerfi er algjörlega ónot-
hæft,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, „sem sést best á því að
nú eru nokkur mál komin í algjört öngstræti.“
„Markmiðið er að skipuleggja nýtingu ólíkra
svæða til ólíkrar notkunar. Það gæti verið
fiskeldi, veiði, nú eða til dæmis útivist. Þá
myndu þessar leyfisveitingar fara í gegnum
skipulagsferli þar sem menn fá ákveðnum
svæðum úthlutað í staðinn fyrir þetta
umsagnarferli þar sem umsækjendur þurfa
að ganga stofnana á milli og rekast á
hvern vegginn á fætur öðrum.“
Ætlar að bylta núverandi kerfi
■ Skipulagsstofnun ákveður hvort
umhverfismats er þörf
■ Umhverfisstofnun veitir starfs-
leyfi
■ Fiskistofa veitir rekstrarleyfi
■ Umsagnaraðilar eru meðal
annars viðkomandi sveitarfélög
og Hafrannsóknastofnun
➜ Ferlið fyrir leyfi
EVRÓPUSAMBANDIÐ Evrópusam-
bandið hyggst leggja meira fé til
menningar og lista á sama tíma og
flest Evrópuríki skera niður fjár-
framlög til málaflokksins. Menn-
ing skapar hagvöxt og störf, segir
framkvæmdastjórn sambandsins.
Androulla Vassiliou, menningar-
fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar,
hefur gert áætlun um það hvernig
listamenn geta lagt sitt af mörkum
til þess að blása lífi í hagvöxt innan
sambandsins. „Hin skapandi menn-
ingarlega hlið Evrópu hefur ekki
aðeins afgerandi áhrif á fjölbreytni
í listalífinu. Hún felur einnig í sér
stórt framlag til félagslegrar- og
efnahagslegrar þróunar,“ segir hún.
Framlag menningargeirans
er allt að 4,5 prósent af tekjum
Evrópu ríkja. Vassiliou telur að
þessi tala gæti verið enn hærri ef
listamönnum yrði veittur greiðari
aðgangur að fjármunum.
Framkvæmdastjórinn stefnir
á að hækka framlög Evrópusam-
bandsins til menningarmála um
níu prósent á árunum 2014-2020. Þá
myndu framlögin nema 1,36 millj-
örðum evra.
Dennis Abbott, talsmaður Andro-
ullu Vassiliou, segir aukin framlög
bæði þjóna þeim tilgangi að styðja
við listir og skapa fleiri störf.
„Vegna atvinnuleysis, til dæmis í
hópi ungmenna, eru þær lausnir
sem skapa störf og auka hagvöxt
mjög mikilvægar,“ hann segir þetta
þó ekki vera einu ástæðuna fyrir
auknum fjárframlögum: „Það er
ekki munaður að fjárfesta í listum
heldur nauðsyn.“ - nej
Ætla að ráða bót á atvinnuleysi og auka hagvöxt á annan hátt en Evrópuríki:
ESB eykur fjárstuðning við listamenn
STYÐUR VIÐ LISTIR Androulla
Vassil iou, menningarfulltrúi
framkvæmdastjórar ESB, hyggst leggja
listamönnum lið fjárhagslega.