Fréttablaðið - 11.07.2013, Side 16
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Fimm verslanir af 56 höfðu allar
efnavörur rétt merktar þegar
Umhverfisstofnun og heilbrigðis-
eftirlit sveitarfélaga gerðu könnun
á merkingum efnavara í matvöru-
verslunum og stórmörkuðum frá
nóvember 2011 til júní 2012. Alls
reyndust 355 af 3.915 þeirra efna-
vara sem skoðaðar voru vanmerkt-
ar. 91 prósent varanna var því rétt
merkt á íslensku.
Haukur Magnússon, sérfræð-
ingur hjá Umhverfisstofnun, segir
að upplýsingunum sé hins vegar
ekki alltaf komið almennilega til
skila og það sé ákveðið vandamál.
„Þótt merkingarnar séu rétt-
ar er ekki alltaf vandað til verka.
Aðrar upplýsingar á umbúðunum
sem neytandinn þarf á að halda
lenda þá undir merkingunni, eins
og til dæmis notkunarleiðbeining-
ar. Það skiptir máli fyrir neytand-
ann að allar upplýsingar séu rétt-
ar og þeim komið almennilega til
skila en ekki límdar með tilviljana-
kenndum hætti á umbúðir.“
Nokkrar þeirra verslana sem
verst komu út eiga það sameigin-
legt að leggja megináherslu á inn-
fluttar vörur. Flestar vanmerktar
vörur og jafnframt hæsta hlutfall
vanmerktra vara var að finna hjá
Europris í Kópavogi eða 59 pró-
sent. Á eftir komu Samkaup og
11-11 með 29 prósent.
Verslanir Bónuss komu almennt
best út úr könnuninni en hæsta
hlutfall vanmerktra vara þar var
8 prósent. Af þeim átta verslun-
um keðjunnar sem kannaðar voru
var enga vanmerkta vöru að finna
í þremur. Krónan og Víðir komu
einnig vel út úr könnuninni. Hjá
Víði var hlutfallið 6 prósent en 4
prósent hjá Krónunni.
Í skýrslu Umhverfisstofnunar
um könnunina er tekið fram að
hún hafi beinst að einstökum versl-
unum en ekki innflytjendunum
sem bera ábyrgð á að vörur fari
með réttum merkingum í verslan-
irnar. Af niðurstöðunum hafi þó
mátt greina að umsvifamestu inn-
flytjendurnir, sem dreifa vörum í
margar verslanir, komu yfirleitt
vel út. Innlendar vörur komu líka
vel út þótt stundum hafi einhverju
verið ábótavant. Til dæmis hafi
vantað áþreifanlega viðvörun og
öryggislok.
Haukur segir menn í raun ekki
hafa vitað við hverju þeir ættu að
búast. „Það eru rúm 10 ár síðan
svipuð könnun var gerð í matvöru-
verslunum og stórmörkuðum en
við höfum reglulega fengið niður-
stöður úr eftirliti heilbrigðis-
fulltrúa.“
Mörg þeirra brota sem koma
í ljós við eftirlit eru ítrekuð. Á
sumum stöðum virðist vanta að
komið sé á skýru verklagi um að
tryggja að merkingar verði réttar
þar sem sömu atriðin eru jafnan í
ólagi. Oft eru það sömu vörurnar
sem eru alltaf vanmerktar þrátt
fyrir ítrekuð tilmæli, að því er
segir í skýrslunni.
ibs@frettabladid.is
Efnavörur sem algengt er að fáist
í matvöruverslunum og stórmörk-
uðum eru hreinsiefni fyrir heim-
ili, til dæmis uppþvottalögur,
uppþvottavélaefni. tauþvottaefni
og efni á úðabrúsum svo sem
snyrtivörur, ilmefni og gervirjómi.
Aðrar vörur í slíkum verslunum
sem líklegar eru til að innihalda
hættuleg efni eru grillkveikilögur,
skordýraeitur, lampaolía, edik,
stíflueyðir og klór. Enn fleiri
tegundir voru kannaðar í ein-
staka verslunum.
Heimild: Umhverfisstofnun
Efnavörur sem
voru kannaðar
Aðeins 5 af 56 verslunum
merkja allar efnavörur rétt
Bónus, Krónan og Víðir komu best út í könnun Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Þótt
merkingar séu réttar er ekki alltaf vandað til verka. Mörg brotanna sem koma í ljós eru ítrekuð.
MATVÖRUVERSLUN Verslanir Bónuss komu almennt best út úr könnuninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Farþegar sem kaupa pakkaferðir
hjá ferðaskrifstofum eru betur
settir ef eitthvað ber út af en
þeir sem setja ferðina saman
sjálfir. Greint er frá þessu á vef
Túrista, turisti.is, þar sem þess
er getið að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ESB, vilji
auka skyldur ferðasala.
Bent er á að verði flugfélag
gjaldþrota sé hætta á að
mikill meirihluti farþega verði
strandaglópar og þurfi að koma
sér heim fyrir eigin reikning.
Þeir sem eigi ónotaða miða með
félaginu fái þá ekki bætta nema
gera kröfu í þrotabúið. Hins vegar
séu þeir farþegar sem til dæmis
hafi keypt flug og hótel saman í
einum pakka mun betur staddir.
Þeir fái borgaða heimferð sé
ferðalagið hafið og fái ónýtta
miða endurgreidda.
Á vef Túrista segir að fram-
kvæmdastjórn ESB ætli að beita
sér fyrir því að fleiri farþegar
njóti þeirra réttinda sem pakka-
ferðirnar bjóða upp á.
ESB vill bæta
réttindi þeirra
sem bóka á
netinu
FLUG Þeir sem kaupa flug og hótel í
einum pakka eru betur settir.
Fyrirtækið Luxottica í Mílanó á
Ítalíu er stærsti sólgleraugna-
framleiðandi heims og framleiðir
merki eins og Chanel, Bulgari,
Dolce & Gabbana, Oakley, Ver-
sace, Prada og Ray Ban. Sænska
blaðið Dagens Nyheter greinir
frá þessu og vitnar í tímaritið
Forbes. Fram kemur í fréttinni
að í fyrra hafi Luxottica framleitt
47 milljónir sólgleraugna.
Stofnandi fyrirtækisins,
Leonardo del Vecchio, er sagður
vera í 49. sæti á lista yfir ríkustu
menn heims. Hann stofnaði
fyrirtæki sitt á sjöunda áratug
síðustu aldar.
Helstu merkjasólgleraugun
framleidd af sama fyrirtækinu
Á TÍSKUSÝNINGU Ítalskt fyrirtæki
framleiðir 47 milljónir sólgleraugna á
ári.
„Bestu kaupin eru iPhone-inn minn. Þar er allt á einum stað,“ segir Eva
Laufey Kjaran, einn vinsælasti matarbloggari landsins. Hún segir símann
sinn ómissandi „Ég tek mikið af myndum með honum og skoða þar tölvu-
póstinn minn.“
Eva Laufey vinnur nú hörðum höndum að sinni fyrstu matreiðslubók,
en útgáfa er fyrirhuguð nú í haust. „Ég klára von-
andi skriflega efnið í vikunni. Svo fer ég í að taka
myndirnar í bókina,“ segir Eva en hún segist þó
ekki ætla að taka þær með snjallsímanum. „Ég
á líka Canon-myndavél sem er mjög fín og ég
tek myndirnar á hana. En það er þægilegra
að ferðast með snjallsímann.“
Verstu kaup Evu eru platform-skór
sem hún keypti á netinu og lét senda frá
útlöndum. „Þeir brotnuðu í miðju afmæli, það
var voða skvísulegt.“ Hún segist ganga mikið
á háum hælum en hefur eftir þetta atvik ekki
treyst sér til að versla þá á netinu. „Ég er svo
léleg í því, eins og sannaðist þarna í afmælinu.
Það er betra að máta þá í búð-
unum.“
Bók Evu Laufeyjar kemur út
snemma í haust. Þangað til geta
áhugasamir sótt til hennar upp-
skriftir á vefsíðuna evalaufey-
kjaran.com.
NEYTANDINN Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Skvísulegt að
brjóta skó í afmæli
Bogaklefar stærð: 80x80 & 90x90cm