Fréttablaðið - 11.07.2013, Síða 32
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, ivarorn@365.is, s. 512 5429
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Konráð Vilhjálmsson hafði alla tíð mikinn áhuga á vinnuvélum, var fróður um þær og laghentur við-
gerðarmaður. Frá 1986 starfaði hann nær
alfarið sem vélamaður, aðallega á jarð-
ýtum hjá fjölskyldufyrirtæki sínu Arnar-
felli. Tveimur árum fyrr hafði hann fest
kaup á fyrsta safngrip sínum, sem var
jarðbor.
„Pabbi hafði lengi safnað vinnu vélum á
borð við jarðýtur, víragröfur, hjóla skóflur,
veghefla, gamla steypubíla og allra-
handa vinnuvélar en ákvað árið 2009 að
stofna formlega safn,“ segir Þór Konráðs-
son, sonur Konráðs sem Konnasafn heitir
eftir. „Þegar hann féll frá í febrúar 2011
var hann búinn að segja okkur börn-
um sínum hvernig ætti að þróa hlutina
áfram og var meira að segja búinn að ráða
safnstjóra, Brynjólf Snorrason frá Mið-
Samtúni,“ segir Þór.
Konnasafn er í dag staðsett á athafna-
svæði Skútabergs, fyrirtækis í eigu Þórs,
að Sjafnarnesi 2-4 á Akureyri. Framtíðar-
staðsetning þess verður hins vegar á
Skútum í Hörgárbyggð en þar er ætlunin
að reisa nokkrar skemmur undir starf-
semina. „Við vonumst til að geta flutt
safnið að Skútum á næsta ári,“ upp lýsir
Þór, en beðið er eftir samþykkt á breyttu
deiluskipulagi. „Við erum því hér á meðan
fyrir náð og miskunn Akureyrar bæjar
enda hafa gamlar vinnuvélar aldrei þótt
neitt augnayndi,“ segir hann glettinn.
Safnið er opið virka daga frá 8 til 17,
ekki er rukkaður aðgangur en gestir eru
beðnir að kvitta í gestabók. „Safnið er
mjög merkilegt fyrir áhugamenn. Margir
gera sér sér ferð til okkar enda er hér að sjá
muni sem hvergi eru til annars staðar. Til
okkar hafa komið útlendingar sem segjast
sjá hjá okkur vélar sem þeir hafi hvergi
annars staðar séð í vinnuvéla söfnum í
Evrópu,“ segir Þór og bendir á að ljós-
myndarar hafi einnig mikinn áhuga á að
taka myndir af þessum gömlu risum.
Vélar frá öllum
landshornum
Konnasafn er vinnuvélasafn á Akureyri sem stofnað var af Konráð
Vilhjálmssyni heitnum. Þar gefur að líta um sjötíu vélar af ýmsu tagi og sífellt
fleiri bætast við. Í framtíðinni fær safnið samastað að Skútum í Hörgárbyggð.
Áhugamenn um vinnuvélar koma um langan veg til að skoða safnið.
Áætlað er að byggja um tíu þúsund fermetra húsnæði að
Skútum í Hörgárbyggð.
Brynjólfur safnstjóri við eina af þeim vélum sem voru í sérstöku
uppáhaldi hjá Konráði Vilhjálmssyni.
Safnið er einkaframtak Konráðs heitins og niðja hans.
Vélarnar í safninu koma alls staðar að af landinu. Mörgum hefur
verið bjargað frá niðurrifi. MYNDIR/AUÐUNN
KYNNING − AUGLÝSINGVinnuvélar FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 20132
og fleiri vinnuvélar og vörubíla.
Útvegum uppgerð og ný olíuverk í
flestar gerðir véla og bíla.
Tökum einnig að okkur viðgerðir á
öllum vélum og bílum.
EIGUM
VARAHLUTI Í
JCB
DAF
MAN
IVECO
NEW HOLLAND
B.Sturluson ehf • Sala á atvinnutækjum • Vagnhöfði 9
110 Reykjavík • 577 11 89 – 774 11 88 • www.trucks.is
Hafðu samband og
fáðu tilboð í tækið
sem þig vantar.
Traust og góð þjónusta.
Sérhæfum okkur
í sölu og
innflutningi
á vinnuvélum,
vörubílum
og dráttarvélum.
Vantar þig nýtt
eða notað
atvinnutæki ?