Fréttablaðið - 11.07.2013, Qupperneq 42
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30
? Ég er með spurningu sem er smá persónuleg. Ég geng
með mitt fyrsta barn og ég þarf
mögulega að fara í keisara en
það er enn óvíst þar sem ég er
bara gengin 33 vikur og barnið
er sitjandi. Mig langar svolítið
að reyna að fæða en ég er samt
hrædd við það og hef heyrt svo
margar hræðilegar sögur af
sitjandafæðingu. En ég er líka
hrædd við að fara í uppskurð en
mér finnst eins og það sé það
eina í boði fyrir mig. Mig lang-
aði bara aðeins að heyra þína
reynslu af þessu.
● ● ●
SVAR Málefni sem er mér afar
hugleikið, sitjandi keisari að
skjótast út um lítið gat. Ef barnið
er sitjandi og þig langar til að
fæða þá getur þú farið í vend-
ingu á Landspítalanum. Þá er
reynt að snúa barninu með hand-
afli utan frá. Mér fannst það ekki
sárt en það var heldur ekkert
kósí, bara eitt af því sem mögu-
lega gat hjálpað. Mér skilst að
það virki í um helmingi tilfella,
jafnvel sjaldnar. Ef barnið snýr
sér ekki en þú vilt samt reyna
að fæða þá getur þú látið mæla í
þér grindina til að vita hvort sitj-
andafæðing sé möguleg fyrir þig.
Mælingin er gerð með röntgen-
mynd. Séu málin hagstæð fyrir
fæðingu og barnið hefur enn
ekki snúið sér þá er um að gera
að finna sér fæðingarlækni og
ljósmóður sem hafa tekið á móti
sitjandi barni og munu sína þér
stuðning í því. Það er æskilegt að
barnið sé ekki þyngra en fjögur
kíló. Því getur tíminn skipt svo-
litlu máli en það verður vel fylgst
með þér. Hvað varðar sársauka
þá held ég að það sé alltaf frekar
sárt að fæða og ekkert hægt að
segja að þetta sé verri fæðing en
hver önnur.
Ef þú ferð í keisaraskurð þá
færðu dagsetningu í hann og
góða fræðslu um hvernig hann
ber að. Þú mætir fastandi í upp-
skurðinn og ert lögð inn á stofu
þar sem þú bíður eftir að röðin
komi að þér. Mér skilst að skorið
sé upp á þriðjudögum og fimmtu-
dögum svo mögulega færðu að
velja afmælisdag barnsins þíns.
Þú trítlar upp á skurðstofu og
færð mænurótardeyfingu. Mér
fannst það lítið mál og það tók
stutta stund. Svo mætir her
af sérfræðingum sem hver er
öðrum blíðari, fæðingarfélag-
anum er boðið að vera með, svo
er skorið, barninu lyft upp og þú
saumuð saman. Eftir þetta ferðu
á vöknun og svo inn á þína stofu.
Persónulega fannst mér
líkam inn lengur að ná sér eftir
keisarann en það er eflaust ögn
persónu bundið. Að mínu mati þá
er það sem skiptir máli að standa
með sjálfri þér í þessu ferli en
einnig að taka tillit til mats sér-
fræðinga. Þú þarft bara að koma
þessu barni í heiminn og sinna
svo foreldrahlutverkinu af ein-
lægni og alúð. Gangi þér ofsa-
lega vel.
Sitjandafæðing
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
HÆGT AÐ FARA Í VENDINGU Sigga
Dögg segir að ef barnið sé í sitjandi
stöðu dugi oftast að fara í vendingu
uppi á Landspítala.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2013
Tónleikar
21.00 Hljómsveitin Samaris fagnar
útgáfu samnefndrar plötu sinnar með
tónleikum á Volta í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 21. Aðgangseyrir er kr. 1000.
Fríar vöfflur í boði fyrir gesti.
Tónlist
12.00 Lára Bryndís Eggertsdótttir, org-
anisti, heldur tónleika í Hallgrímskirkju
í dag kl. 12. Hún leikur fjölbreytta orgel-
tónlist. Aðgangseyrir er kr. 1.700.
Vígsla
16.30 Suðurhluti Dalsbrautar verður
vígður á Akureyri kl. 16.30. Klippt
verður á borða við gangbrautarljósin
við Lundarskóla og síðan verður haldið
fylktu liði suður götuna. Bifreiðar frá
Fornbílaklúbbi Akureyrar verða fremstar
í flokki.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is.
HLJÓM-
SVEITIN
SAMARIS
Áslaug Rún
Magnús-
dóttir,
Jófríður
Ákadóttir og
Þórður Kári
Steinþórs-
son.
MENNING
„Þetta er þriðja árið í röð sem dans-
skólinn SalsaIceland reynir að slá
þátttökumet í þessum skemmtilega
fjöldadansi, rueda de casino. Fyrsta
árið mættu sjötíu manns til leiks og
í fyrra bættum við metið verulega
þegar níutíu manns mættu og döns-
uðu saman.“ segir Hanna Harpa,
danskennari hjá SalsaIceland. Hún
segir rueda-dansinn hafa náð mikl-
um vinsældum hjá salsadönsurum
um allan heim enda sé skemmtana-
gildi hans mikið og sköpunargleðin
fái að njóta sín.
En hvernig dans er rueda de cas-
ino? „Dansinn þróaðist í Havana,
höfuðborg Kúbu, seint á sjötta ára-
tugnum og heitir eftir Casino-hjól-
inu. Það er þannig að tvö eða fleiri
pör mynda hring og dansa og fylgja
skipunum eins stjórnanda. Flestar
dansflétturnar fela í sér að skipt
er um dansfélaga og þannig skap-
ast skemmtilegt flæði þar sem allir
dansa við alla. Ef fólk nær ekki
skipunum stjórnandans hermir það
bara eftir næsta manni.“
En þarf það ekki að kunna salsa
til að taka þátt? „Nei, þetta er það
einfaldur dans. Við verðum með
upphitun á Austurvelli klukkan hálf
sjö og þar kennum við einföldustu
sporin. Því fyrir utan að vilja slá
fjöldametið erum við líka að koma
þeim skilaboðum á framfæri hversu
einfalt er að dansa salsa.“
Hanna segir áhuga á salsa alltaf
að aukast hér á landi. „Íslending-
um finnst gaman að svona salsa-
sveiflu,“ fullyrðir hún og segir
það eiga við um bæði kyn. „Þátt-
taka karla hefur stóraukist á síð-
ustu árum. Á síðasta byrjendanám-
skeiði voru í fyrsta skipti fleiri
karlmenn,“ upplýsir hún og ótt-
ast ekkert að þeir láti sig vanta á
Austurvöll. „Við erum margar stelp-
urnar sem kunnum karlasporin
svo við getum hoppað inn í ef með
þarf.“ Hún segir hefð hafa skapast
fyrir því víðs vegar um heiminn að
setja fjöldamet í dansinum og telur
heimsmetið vera rúmlega 350 pör.
Það verður sem sagt ekta kúb-
önsk stemning á Austurvelli í kvöld
en skyldi grasið þola áganginn? „Já,
ég mæli með að fólk mæti í æfinga-
skóm eða stígvélum en ekki háum
hælum,“ segir hún og bætir við.
„Þetta er fjölskylduviðburður og
vinir og vandamenn eru velkomnir
að koma og fylgjast með.“
gun@frettabladid.is
Ekta kúbönsk sveifl a
á Austurvelli í kvöld
Salsadansarar og annað dansáhugafólk mun reyna við nýtt fj öldamet í kúb-
verska hringdansinum Rueda de Casino í kvöld klukkan 19 á Austurvelli. Hanna
Harpa Agnarsdóttir hjá dansskóla SalsaIceland er fróð um fyrirbærið.
LÍF OG FJÖR Skemmtanagildi rueda-dansins er mikið því þar fær sköpunargleðin að njóta sín að sögn Hönnu Hörpu.