Fréttablaðið - 11.07.2013, Side 44
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Plata
1 Emmelie de Forest Only Teardrops
2 Capital Cities Safe and Sound
3 Margaret Berger I Feed You My Love
4 Robin Thicke / T.I. / Pharrell Blurred Lines
5 Olly Murs Dear Darling
6 Imagine Dragons Demons
7 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
8 Bruno Mars Treasure
9 Hjaltalín Halo
10 Kaleo Vor í Vaglaskógi
Sæti Flytjandi Plata
1 Sigur Rós Kveikur
2 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
3 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
4 Ýmsir Einnar nætur gaman með Sigga Hlö
5 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
6 Samaris Samaris
7 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
8 Ljótu hálfvitarnir Ljótu hálfvitarnir (2013)
9 Ýmsir Acoustic Iceland
10 Ýmsir Pottþétt 59
4.7.2013 ➜ 10.7.2013
Hlandlyktin er enn í nösunum á mér eftir nýafstaðna Hróarskelduhátíð,
sem var mín fyrsta þrátt fyrir háan aldur. Ég hef sótt aðrar tónlistar hátíðir
en einhverra hluta vegna aldrei þessa stærstu hátíð Norðurlandanna
sem hundruð Íslendinga sækja árlega. Ég sveik að vísu föðurlandið og lét
tónleika íslensku listamannanna mæta afgangi, en nýsjálenskir ferðafélagar
mínir létu vel af þeim öllum.
Að vanda lék mikill fjöldi skemmti-
krafta listir sínar á hátíðinni og aldursbil
þeirra var jafn breitt og áhorfenda. Hinir
ungu og framsæknu voru margir hverjir
heillandi en að mínu mati voru það
gömlu sleðarnir sem áttu þessa hátíð og
þrennt sem stóð upp úr.
Gráhærði pönkarinn og leikarinn
Henry Rollins kom alls fjórum sinnum
fram. Hann bauð ekki upp á tónlist
heldur magnaðar ferðasögur í bland
við þrælfyndnar þrumuræður þar sem
rasismi, hommafælni og karlremba
fengu á baukinn. Það er erfitt að setja
hinn 52 ára Rollins í kassa. Uppistandari
er hann ekki, en samt er hann fyndnari
en fjölmargir uppistandarar. Ég tímdi
ekki öðru en að sjá hann í öll fjögur skiptin og sá ekki eftir því þar sem
engin tvö voru eins.
Heimamaðurinn Lars Ulrich var síðan í góðu stuði á laugardagskvöldinu
ásamt félögum sínum í Metallica, en liðsmenn sveitarinnar eru allir um
fimmtugt. Væntingar mínar til þeirra voru undir meðallagi en sveitin reynd-
ist vera í gríðarlega góðu spilaformi og hljómurinn var óaðfinnanlegur, að
minnsta kosti þar sem ég stóð. Þessar þunnhærðu hetjur tóku öll sín bestu
lög, skutu upp flugeldum og drituðu strandboltum yfir áhorfendaskarann
sem allur söng með. Ég hafði gleymt því fyrir löngu hvers vegna Metallica er
vinsælasta þungarokkshljómsveit allra tíma. Ég man það núna.
En allt sem ég sá á hátíðinni bliknaði í samanburði við sjálft lokaatriðið,
hina goðsagnakenndu Kraftwerk. Ralf Hütter, forsprakki sveitarinnar, er
66 ára en tónlistin er hins vegar algjörlega tímalaus. Glæsileg þrívíddar-
tölvugrafíkin á bak við hljómsveitina lyfti tónleikunum upp í hæstu hæðir,
og í tvær klukkustundir varð hlandblautt túnið fyrir framan stóra sviðið að
besta nýlistasafni í heimi. Líklega er erfitt að finna starfandi hljómsveit sem
hefur haft jafn mikil áhrif á poppsöguna og Kraftwerk. Það eru því forrétt-
indi að fá að sjá hana spila og þeir sem eiga miða á tónleikana í Hörpu í
vetur eiga von á virkilega góðu.
Áður en þið farið svo að stríða mér á gamlingjablætinu vil ég taka það
fram að hinn tæplega áttræði Kris Kristofferson var hundleiðinlegur.
Gömlu góðu sleðarnir
TÓNNINN
GEFINN
Haukur Viðar Alfreðsson
Jay-Z - Magna carta... Holy Grail
Kanye West - Yeezus
Empire of the Sun - Ice on the Dune
Í spilaranum
Platan Uncovered Queens of the
Stone Age kom út á dögunum og á
henni spreyta tólf söngkonur sig
á tólf lögum bandarísku rokk-
sveitarinnar Queens of the Stone
Age (QOTSA). Íslenska söng-
konan Emilíana Torr-
ini er á meðal söng-
kvennanna tólf en
það er Olivier Libaux,
liðsmaður frönsku
hljómsveitarinnar
Nouvelle Vague,
sem heldur utan
um verkefnið.
Libaux
segist hafa
gengið lengi
með hugmynd-
ina í maganum
þar sem hann
teldi að hrá
og hávær tón-
list QOTSA
yrði dásam-
leg í mjúkum og
rólegum flutningi
söngkvenna. „Ég
bjó til lista yfir
allar uppáhalds-
söngkonurnar mínar og
sendi ógrynni tölvu-
bréfa. Til allrar
hamingju fékk
ég jákvæð
viðbrögð frá
mörgum,“
segir
hann
í
samtali við Wall Street Journal.
Torrini syngur lagið Go with
the Flow af plötunni Songs For
the Deaf frá árinu 2002, en hún er
almennt talin besta plata Queens
of the Stone Age. Af öðrum söng-
konum á plötunni má nefna Kath-
arine Whalen, Inara George,
Gaby Moreno og Alela Diane.
Josh Homme, aðalsprauta
QOTSA, lagði blessun sína yfir
verkefnið og er að eigin sögn í
skýjunum yfir útkomunni, en
sveitin sendi á dögunum frá
sér breiðskífuna … Like
Clockwork, sem hefur
fengið góðar viðtökur frá
gagnrýnendum jafnt sem
almenningi. haukur@frettabladid.is
Fara mjúkum
höndum um rokkið
Emilíana Torrini er í hópi söngkvenna sem fl ytja lög rokkhljómsveitarinnar
Queens of the Stone Age á nýrri ábreiðuplötu.
Nouvelle Vague er samstarfsverkefni Frakkanna Olivier Libaux og Marc
Collin sem staðið hefur yfir í um áratug. Þeir hafa sent frá sér nokkrar
plötur þar sem þeir fá ýmsar söngkonur til að spreyta sig á gömlum pönk-
og nýbylgjuslögurum sem settir hafa verið í bossa nova-útsetningar að
hætti 7. áratugarins. Hljómsveitir eins og Joy Division, Dead Kennedys,
Buzzcocks og XTC hafa verið heiðraðar af Nouvelle Vague, og enn í dag
má stundum heyra þessar óvenjulegu útgáfur á millifínum veitingahúsum
borgarinnar.
Breyta pönki í dinnertónlist
ÍSLENSK RÖDD Á PLÖTUNNI Emilíana Torrini er ein tólf söngkvenna sem fá að spreyta sig á lögum Queens of the Stone Age á
nýrri ábreiðuplötu sveitarinnar.