Fréttablaðið - 11.07.2013, Side 54
11. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42
Það er ekki eins
og við séum bilað reyndir
í Evrópukeppni.
Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði Blika
FÓTBOLTI Mikið hefur verið rætt
um brottvísun Eyjamannsins
Aarons Spear í bikarleik gegn KR
á sunnudaginn. Þá ýtti Spear við
Gunnari Þór Gunnarssyni, leik-
manni KR, sem féll til jarðar með
tilþrifum.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari
ÍBV, var afar ósáttur með dýfu
Gunnars Þórs en Rúnar Kristins-
son, þjálfari KR, sér hlutina í öðru
ljósi.
„Þú getur metið það hvort leik-
maðurinn leiki sér að því að detta
eða hrindingin sé þess eðlis að
menn geti ekki staðið í lappirnar,“
segir Rúnar. Hann segir leikmenn
ekki eiga að bjóða upp á þetta.
„Þeir eru að bjóða upp á vanda-
mál og þeir setja dómarann í þessa
stöðu. Dómararnir þekkja regl-
urnar og valdið er þeirra,“ segir
Rúnar. Hann minnir á að for maður
dómaranefndar KSÍ hafi tekið af
allan vafa um hvernig dómarar
skuli bregðast við í atvikum sem
þessum.
„Ég hélt að menn hefðu kannski
hlustað á það og áttað sig á því
að það mætti ekki ýta eða leggja
hendur á aðra menn. Þú býður
hættunni heim með því að láta
svona.“
Hannes Þór Halldórsson ýtti við
Ragnari Péturssyni seint í leikn-
um. Ragnar stóð hrindinguna af
sér en ólíkt Spear fékk Hannes
aðeins gult spjald. Hefði Rúnar
verið svekktur við Gunnar Þór
hefði hann einnig staðið af sér
hrindinguna?
„Nei, ég hefði alls ekki verið
svekktur yfir því. Það er ekki
þannig að við séum að biðja okkar
leikmenn um að detta ef þeir
eru snertir, það kæmi aldrei til
greina,“ segir Rúnar.
„Við förum inn á völlinn til þess
að spila fótbolta og vinna fótbolta-
leiki. Það er það eina sem við
hugsum um. Við leggjum ekki upp
með neinn dónaskap eða leiðindi í
okkar leik.“ - ktd
Biðjum leikmenn ekki að detta
Rúnar Kristinsson segir leikmenn bjóða hættunni heim með hrindingum.
REGLURNAR SKÝRAR Rúnar Kristins-
son segir leikmenn KR aðeins einbeita
sér að því að vinna leiki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI „Það var bara eitt lið á
vellinum í sjötíu mínútur í Eyjum,“
segir Hermann Hreiðarsson, þjálf-
ari ÍBV. Eyjamenn gerðu 1-1 jafnt-
efli gegn HB frá Færeyjum í fyrri
leiknum þrátt fyrir mikla yfir-
burði. Af íslensku liðunum þrem-
ur má segja að staða Eyjamanna sé
fyrir fram verst sé horft til úrslita
í fyrri leiknum.
„Það var okkar klúður að ganga
ekki frá fyrri leiknum og viður-
eigninni í heild sinni. Það verður
bara sætara að klára seinni leik-
inn,“ segir Hermann boru brattur.
Eyjamenn flugu til Færeyja í gær
og æfðu á keppnisvellinum um
kvöldið. Hermann segir mikið í
húfi fyrir ÍBV í kvöld og raunar
öll íslensku félögin.
„Íslensku félögin í heild sinni
þurfa að fara áfram og fá fleiri
stig til að komast ofar á styrk-
leikalista UEFA. Við ætlum áfram
í næstu umferð og það er mikill
hugur í okkur.“
Eigum fína möguleika
Aldrei áður hafa öll þrjú karlalið
Íslands lagt andstæðinga sína að
velli sama árið. Möguleikinn er
góður en KR-ingar eiga erfitt verk-
efni fyrir höndum í Belfast eftir
markalaust jafntefli við Glentor-
an í fyrri leiknum í Vesturbænum.
„Við erum mjög bjartsýnir og
vonumst til að geta komist áfram.
Við eigum fína möguleika en
þurfum að eiga góðan leik,“ segir
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
KR-ingar réðu gangi fyrri leiks-
ins en gekk bölvanlega að skapa
sér marktækifæri.
„Kannski koma þeir eitthvað
framar og þá gæti opnast eitthvað.
Úrslit fyrri leiksins eru alls ekki
svo slæm. Við þurfum að skora en
þeir líka,“ segir Rúnar.
KR mætti norður-írska liðinu
fyrir þremur árum við sama til-
efni. KR vann 3-0 sigur í heima-
leiknum en gerði 2-2 jafntefli úti.
Sömu úrslit myndu duga Vestur-
bæingum í kvöld.
Ekki bilaðslega reyndir
Breiðablik er komið með annan
fótinn og rúmlega það í aðra
umferð eftir 4-0 sigur á FC Santa
Coloma frá Andorra í fyrri leikn-
um.
„Við þurfum að fara auðmjúkir
í þetta þó svo að gengið hafi vel í
fyrri leiknum. Þessi leikur verður
tekinn tökum frá fyrstu mínútu,“
segir Finnur Orri Margeirsson,
fyrirliði Blika. Hann segir mark-
miðið að halda markinu hreinu og
fara í leikinn af miklum krafti.
„Menn geta ekkert leyft sér að
slaka á í Evrópukeppninni. Það er
ekki eins og við séum bilað reyndir
í Evrópukeppni.“
Leikurinn í Andorra hefst
klukkan 15.30, í Færeyjum verð-
ur flautað til leiks klukkan 18
og hálftíma síðar á Írlandi.
Fylgst verður með gangi
mála í öllum leikjunum á Vísi.
kolbeinntumi@365.is
Öll þrjú í dauðafæri
Breiðablik, ÍBV og KR verða í eldlínunni ytra í undankeppni Evrópudeildar UEFA
í kvöld. Blikar eru í vænni stöðu eft ir fyrri leik sinn en Eyjamanna og KR-inga
bíða erfi ð verkefni. Möguleiki á einstöku kvöldi í Evrópukeppni er fyrir hendi.
LEIKTÖF Liðsmenn Glentoran reyndu hvað þeir gátu að tefja í fyrri leiknum í
Vestur bænum. Uppskeran var markalaust jafntefli sem þeir þáðu með þökkum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Karlalið Hauka og
kvennalið Fram verða fulltrúar
Íslands í Evrópukeppnum þennan
veturinn. Karlalið Fram og ÍR auk
kvennaliðs Vals ákváðu að vera
ekki með af fjárhagslegum ástæð-
um.
„Þetta hefur verið þannig hjá
okkur í Haukum að við leikmenn
sjáum um helming kostnaðarins og
síðan sér félagið um hinn helming-
inn,“ segir Matthías Árni Ingimars-
son, leikmaður Hauka. Hann segir
mjög skemmtilega reynslu að taka
þátt í Evrópukeppni. Hefðbundnar
leiðir eru farnar í fjáröflun þar sem
seldur verður klósettpappír, efnt til
happdrættis og fiskur seldur, svo
fátt eitt sé efnt.
„Á síðasta tímabili gekk þetta allt
saman upp og við náðum að safna
fyrir okkar helmingi. Ég veit svo
sem ekkert hvernig fjárhagslega
staðan var á hlutunum hjá klúbbn-
um sjálfum.“
Bjarki Sigurðsson, þjálfari bikar-
meistara ÍR, segir að þótt um ævin-
týri sé að ræða geti Evrópukeppni
knésett félög.
„Ef þú ert heppinn geturðu dreg-
ist gegn nágrannaliði. Undan farið
hafa íslensku liðin fengið and-
stæðinga ansi langt í burtu,“ segir
Bjarki. Hann segist vita til þess að
hjá öðrum liðum fjármagni leik-
menn kostnaðinn að hluta, líkt og
hjá Haukum og kvennaliði Fram.
Kostnaður á hvern leikmann sé
engu að síður mikill.
„Það eru alltaf einhverjir sem
verða farþegar í svona söfnunum.“
- ktd
Farþegar í söfnunum
Haukar ætla til Evrópu en ÍR-ingar verða heima.
HEIMA OG ÚTI
Davíð Georgsson
(t.v.) og félagar
í ÍR munu
einbeita sér að
keppnum heima
fyrir á leik-
tíðinni. Matthías
Árni og félagar
ætla utan.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRJÁLSAR Hilmar Örn Jónsson,
kastari úr ÍR, hafnaði í 25. sæti af 34
keppendum í undankeppni kúlu-
varps á heimsmeistaramóti 17 ára og
yngri í frjálsum íþróttum í Donetsk í
gærmorgun.
Hilmar Örn kastaði 5 kg kúlunni
17,86 metra, sem er hans besti
árangur utanhúss. Hann átti áður
best 17,68 metra í greininni. Hann
keppir í sleggjukasti á morgun.
Aníta Hinriksdóttir, ÍR, keppir í
undanrásum í 800 m hlaupi í dag
og Ásgerður Jana Ágústsdóttir, UFA,
í undankeppni í kúluvarpi. Ásgerður
Jana keppir einnig í sjöþraut á
mótinu í Úkraínu. - ktd
Hilmar Örn bætti
sig í kúluvarpi
FÓTBOLTI Stjarnan og FH eigast við í
Pepsi-deild karla í kvöld, en þetta eru
liðin í 2. og 3. sæti deildarinnar. Sigri
FH kemst liðið í efsta sæti deildar-
inar, stigi á undan KR sem á nú leik til
góða á Hafnfirðinga.
Leikurinn er ekki síður mikilvægur
fyrir Stjörnumenn, sem eru fimm
stigum á eftir KR-ingum. Garð-
bæingar þurfa stig í kvöld til að missa
toppliðin tvö ekki of langt frá sér.
Stjörnumenn verða þó án mark-
varðarins Ingvars Jónssonar í kvöld
þar sem hann mun taka út leikbann
vegna rauða spjaldsins sem hann
fékk í bikarleiknum gegn Fylki um
helgina. - esá
Stórleikur í Garða-
bænum í kvöld
FRJÁLSAR Evrópumeistaramót 22
ára og yngri í frjálsíþróttum hefst í
Tampere í Finnlandi í dag og sendir
Ísland fjóra keppendur til leiks.
Tveir þeirra keppa strax á fyrsta
degi. Stefanía Valdimarsdóttir,
Breiðabliki, ríður á vaðið í undan-
rásum í 400 m grindahlaupi.
Síðar í dag keppir FH-ingurinn Blake
Thomas Jakobsson í kringlukasti.
Tvær efnilegar fjölþrautarkonur
keppa svo í sjöþraut um helgina. Það
eru Sveinbjörg Zophaníasdóttir, FH,
og María Rún Gunnlaugsdóttir, Ár-
manni, sem bættu báðar sinn besta
árangur á EM landsliða í fjölþraut um
þarsíðustu helgi. - esá
Fjögur keppa á EM
U22 í frjálsum
KEVIN
BACON
STJÖRNUM PRÝDDUR MATSEÐILL
«78
VELDU AF OSTGÆFNI
«80
«82
«93
GAGGALA—GÓMSÆTUR