Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 23
T
ICEPRAKT KYNNIR
Ellen-tíðatapparnir hafa reynst konum sem
glíma við vandamál vegna kláða, ólyktar og
ertingar sérstaklega vel. Þeir hafa einnig
fyrirbyggjandi tilgang.
Hver tíðatappi inniheldur 100 milljónir
mjólkursýrugerla en gerlarnir eru þekktir
fyrir þá eiginleika að bæta og styrkja eðli-
lega bakteríuflóru í leggöngunum. Níu af
hverjum tíu konum finna fyrir óþægindum
á kynfærasvæðinu einhvern tímann á
lífsleiðinni og margar fá síendurteknar
sveppasýkingar. Með notkun Ellen-tíða-
tappanna er eðlilegu pH-gildi haldið við,
sem getur fyrirbyggt óþægindi.
Tapparnir eru ekki eingöngu hugsaðir
fyrir konur með óþægindi heldur er
mælt með því að allar konur noti þá
til að stuðla að eðlilegri gerlaflóru og
fyrirbyggja vandamál. Þá fæst krem
frá sama framleiðanda sem mælt er
með að nota samhliða en það inni-
heldur líka mjólkursýrugerla. Það er
auk þess mjög rakagefandi og hefur
reynst vel eftir rakstur og vax á kyn-
færasvæðinu.
Kvensjúkdómalæknar um al la
Evrópu mæla með notkun mjólkur-
sýruvaranna frá Ellen. Þeir hafa
einnig bent á að kremið inni heldur
ekki vatn, sem þykir mikill kostur.
Fáar vörur fyrir þetta svæði eru
á markaði og hefur þeim verið
tekið fegins hendi um allan heim.
Kremin og tíðatapparnir frá Ellen
fást í öllum helstu apótekum.
Hvernig virkar varan
Raki sem myndast í tíðatapp-
anum virkjar mjólkursýru-
gerlana inni í honum en þeir
vernda yfirborð slímhúðarinnar gegn óæski-
legum bakteríum. Mjólkursýrugerlarnir
streyma frá tappanum í leg-
göngin og viðhalda
pH-jafnvæginu.
Gerlarnir
Ellen-tapparnir og
-kremið inn iha lda
mjólkursýrugerlana
L.gasser i LN40, L.
fermentum LN99 og
L.rhamnosus LN113.
Notkun og stærðir
Tíðatapparnir koma í
þremur stærðum. Þeir eru
þægilegir og veita sömu
vörn og venjulegir tíða-
tappar. Mikilvægt er að
nægilegur raki komist í
hvern tappa svo hann
nái fullri virkni. Því getur
verið gott að nota mismun-
andi stærðir af töppum eftir
því hvort blæðingar eru litlar
eða miklar. Mælt er með því að
nota að minnsta kosti þrjá Ellen-
tíðatappa á dag á meðan á blæð-
ingum stendur í að minnsta kosti
þrjá daga. Full virkni hefur átt sér
stað eftir 90 mínútna notkun.
Ellen-kremið
Kremið er gott að nota samhliða
töppunum en einnig á öðrum tíma
mánaðarins. Það inniheldur líkt og
tapparnir mjólkursýrugerla, er raka-
gefandi og mýkir húðina. Það er því
upplagt á viðkvæma og erta húð á kyn-
færasvæðinu. Það kemur í
veg fyrir þurrk og veitir
öfluga vörn gegn óæski-
legum bakteríum. Kremið
hentar konum á öllum ævi-
skeiðum, líka þeim sem eru
á breytingaskeiðinu.
Helstu eiginleikar
Inniheldur ekki vatn
Smýgur vel inn í húðina
Drjúgt og auðvelt í notkun
Án ilmefna
Án rotvarnarefna
Án estrógens
TÍÐATAPPAR OG KREM SEM KOMA
JAFNVÆGI Á GERLAFLÓRUNA
Tíðatappar með mjólkursýrugerlum eru nýjung á íslenskum markaði. Þeir heita Ellen og koma jafnvægi á gerlaflóruna í leggöngunum. Tapp-
arnir, sem eru framleiddir í Svíþjóð, henta öllum konum sem vilja vernda og viðhalda jafnvægi í leggöngunum og stuðla að eðlilegu pH-gildi.
Mjólkur-
sýrugerlarnir
st reyma frá
tíðatappanum
í leggöngin og
viðhalda pH-jafn-
væginu.
Heildsalan Iceprakt, sem flytur
inn Ellen-vörurnar, er líka með
skjótvirkt kælikrem sem gerir
kraftaverk gegn verkjum.
Perozin er kraftmikið kæli-
krem sem er nú loksins fáan-
legt á Íslandi. Það er unnið úr
virkum náttúrulegum efnum, er
án parabena og er sérstaklega
skjótvirkt. Perozin smýgur auð-
veldlega inn í húðina þegar það
er borið á aum svæði og dregur
samstundis úr verkjum án allra
aukaverkana.
Perozin virkar vel á:
■ Verki í liðamótum
■ Gigtarverki
(slitgigt og liðagigt)
■ Bólgur
■ Vöðvaverki
■ Bakverki
■ Pirring í fótum
■ Tognanir
■ Íþróttaáverka
Kírópraktorarnir hjá
Kírópraktorstofu Íslands
n o t a o g m æ l a m e ð
Perozin-kælikreminu.
DREGUR
SAMSTUNDIS
ÚR VERKJUM
Ellen-vörurnar
fást í öllum
helstu apótekum.
MYND/VALLI
Perozin smýgur auð-
veldlega inn í húðina
og dregur samstundis
úr verkjum.
Tapparnir fást í þremur stærðum; mini, normal og super.
Tapparnir hafa reynst konum vel sem
glíma við vandamál vegna kláða, ólyktar
og ertingar en þeir hafa einnig fyrir-
byggjandi tilgang.
Kvensjúkdómalækn-
ar um alla Evrópu
mæla með notkun
mjólkur sýruvaranna
frá Ellen.