Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 32
19. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 20 SPARBÍÓ DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS RIPD 3D KL. 3.20 - 5.50 - 8 - 10.10 10 RIPD 3D LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10 SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3D KL. 3.20 - 5.40 L SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 2D KL. 3.20 L WORLD WAR Z KL. 8 -10.30 12 THE HEAT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.20 L PACIFIC RIM 3D KL. 6 - 9 12 RIPD 3D KL. 5.50 - 8 - 10.10 10 THE HEAT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 16 WHITE HOUSE DOWN KL. 10.35 14 RIPD KL. 6 - 8 - 10.10 12 THIS IS THE END KL. 6 16 THE HEAT KL. 8 - 10.10 12 D.M.S, MBL NEW YORK POST EMPIRE Miðasala á: og R.I.P.D. 3D 4, 6, 8, 10 SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 2D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 3D THE HEAT 8, 10.30 WORLD WAR Z 10.20 THIS IS THE END 8 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. EKKERT EYÐILEGGUR GOTT PARTÝ EINS OG HEIMSENDIR! -Empire -Entertainment Weekly 5% EGILSHÖLLÁLFABAKKA PACIFIC RIM KL. 2D: 2 3D: 5:15 - 8 - 10:45 PACIFIC RIM VIP 2D KL. 2 - 5:15 - 8 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL 3D KL. 1 - 3:20 - 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL 2D KL. 1 - 2 - 3:20 - 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL 2D KL. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 WORLD WAR Z KL. 2D: 5:30 3D: 8 - 10:30 WORLD WAR Z VIP KL. 10:45 THE LONE RANGER KL. 8 - 11 MAN OF STEEL 2D KL. 8 - 11 KRINGLUNNI PACIFIC RIM 2D KL. 5:15 - 8 - 10:45 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 1 - 3:20 - 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL2D KL. 1 - 2 - 3:20 - 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL3D KL. 8 - 10:20 WORLD WAR Z 2D KL. 10 THE BIG WEDDING KL. 8 PACIFIC RIM 3D KL. 2:30 - 5:15 - 8 - 10:45 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL 3D KL. 12:45 - 3 - 5:30 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL 2D KL. 1:10 - 3:30 MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL 3D KL. 8 - 10:20 WORLD WAR Z KL. 2D: 5:30 3D: 8 - 10:30 THE LONE RANGER KL. 2:30 - 8 - 10:55 THE BIG WEDDING KL. 6 NÚMERUÐ SÆTI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á AKUREYRI PACIFIC RIM 3D KL. 8 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL2D KL. 5:40 WORLD WAR Z KL. 2D: 8 3D: 10:45 THE LONE RANGER KL. 10:20 KEFLAVÍK PACIFIC RIM 3D KL. 2D: 5:20 3D: 8 MONSTERS UNIVERSITY ÍSLTAL3D KL. 5:40 MONSTERS UNIVERSITY ENSTAL2D KL. 8 WORLD WAR Z 3D KL. 10:45 THE HEAT KL. 10:20 TÓNLIST ★★★★ ★ Nile Rodgers og Chic Eldborg Tónleikar Chic í Hörpu voru með allra líflegasta móti og augljóst var að þeir sem þá sóttu urðu ekki fyrir vonbrigðum. Sjálf hafði ég takmarkaðar vænt- ingar til tónleikanna, hélt sjálfa mig ekki mikla diskómanneskju að upp- lagi, illa þekkti ég mig þar. Ég skemmti mér konunglega og söng með flestum laganna. Hver smellurinn rak annan enda er Neil Rodgers gullnáma hittaranna. Lög eins og I‘m coming out, Get lucky, Like a virgin og Let‘s dance voru á meðal þeirra sem ómuðu um troð- fullan salinn við brjálaðan fögnuð. Það var gaman að fylgjast með áhorfendum lifa sig inn í „sjóvið“ og taka fullan þátt í því sem fram fór á sviðinu. Það var góð tilbreyting frá tónleikum Franks Ocean kvöldinu áður þar sem enginn dansaði, söng né dillaði sér þar sem áhorfendur voru allir of uppteknir af því að horfa á tónleikana í gegnum snjall- símann sinn. Chic-bandið var þétt og missti aldrei dampinn sem gerði það að verkum að athyglin hélst allan tím- ann. Þar báru tvær manneskjur af. Nile sjálfur, augljóslega, og svo önnur söngkvennanna, sem hafði dáleiðandi framkomu og rödd sem bræddi hjörtu. Það eina sem hefði mátt betur fara í Silfurbergssal Hörpu eins og áður var hljóðið. Það hefði mátt heyrast miklu meira í skemmtikröftunum. María Lilja Þrastardóttir NIÐURSTAÐA: Flottir, hressir og klárlega með líflegri tónleikum sem haldnir hafa verið hér á landi í mörg ár. Bandið var gallalaust en leið fyrir slæmt hljóð. Chic í Hörpunni var stuð í gegn STUÐ Í GEGN Tónleikar Chic fá fjórar stjörnur fyrir gott partý. SKEMMTU SÉR VEL Sigga Mæja, Aðal- heiður og Hrönn skemmtu sér vel. FLOTTIR GÆJAR Logi Pedro og Sveinn Rúnar voru flottir á því. GLAÐBEITTUR HÓPUR Þetta fólk var brosmilt á tónleikunum. Í nóvember var ég fenginn sem gestur í Kastljós ásamt kollega mínum til að tjá mig um dómsmál sem var þá áberandi í fréttum. Þessi heimsókn varð gamalli blaðakonu tilefni til vangaveltna á Face- book um það hvort „aldursmörk“ íslenskra fjölmiðlamanna væru almennt lægri en gerist erlendis. Við vorum þá 28 og 33 ára. BLAÐAKONAN fyrrverandi stillti sig um að nota hnjóðsyrði sem uppfinninga- samir áhugamenn um íslenska fjölmiðla smíðuðu ekki alls fyrir löngu og sést nú æ oftar í umræðunni: „Fréttabörn.“ Upp- runi orðsins er ekki þekktur en það er mest notað á bloggvefjum tveggja fyrr- verandi fréttajöfra sem hafa sterkar skoðanir á deginum og veginum og finnst fáir standast þeim snúning í stíl og almennri snilligáfu. Orðið lepja svo kommentörar fréttavefja upp eftir þeim linnulítið. FRÉTTABARNIÐ, samkvæmt óformlegri skilgreiningu, er óþroskað, ekki á pari við gömlu meistarana, kann ekki íslensku og þekkir ekkert til umheimsins. Og er auðvitað ungt. Það er varla furða að fólk óttist að ungviðið sé að ná fótfestu í íslenskri blaðamennsku. NEMA að þetta barnalega uppnefni er tómt rugl. Ég hef, þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur, öðlast ríflega sjö og hálfs árs reynslu af fjölmiðlastörfum og hún hefur kennt mér að það er síður en svo bein fylgni á milli aldurs fréttamanna og gæða. Margt hæfileikaríkasta fólk sem ég hef kynnst í þessum bransa er kornungt – jafn- vel mun yngra en ég. OG vel að merkja; Eiður Guðnason hóf sjálfur störf á dagblaði 23 ára – 28 ára var hann orðinn ritstjórnarfulltrúi. Jónas Kristjánsson varð fréttastjóri Vísis 24 ára og ritstjóri 26 ára. En þeir voru auðvitað óvenjubráðgerir og miklir yfirburðamenn. ÞAÐ er eins og þessir höfðingjar haldi að vond blaðamennska hafi fyrst orðið til um það leyti sem þeir hættu sjálfir afskiptum af henni. Ég get fullvissað þá um að svo er ekki. Eins og er oft heilmikið til í aðfinnslum þeirra þá hefðu þær líklega mun meiri áhrif ef þær væru ekki svona yfirlætisfullar og dónalegar. Allt fjas um „fréttabörn“ er til óþurftar. Ég, fréttabarnið BAKÞANKAR Stígs Helgasonar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.