Fréttablaðið - 19.07.2013, Blaðsíða 18
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Listir. Áslaug Magnúsdóttir. Litríkt hár. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 19. JÚLÍ 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
Diskógoðið Nile Rodgers hélt tónleika í Silfur-
bergi í Hörpunni á miðvikudagskvöldið. Hann
hélt uppi stuðinu með hljómsveitinni Chic en
Moses Hightower og Sísý Ey spiluðu einnig
á tónleikunum. Þar sást til Elínrósar Líndal
fatahönnuðar dilla sér í takt við hressa tóna.
Stemningin var vægast sagt stórkostleg. Jakob
Frímann lét sig ekki vanta og Rakel Garðars-
dóttir, framkvæmdastjóri Vesturports, skemmti sér
einnig vel í góðra vina hópi.
„Ég er ótrúlega glöð og lán-
söm að hafa fengið þetta
tækifæri nánast upp í
hendurnar. Ég setti bara
teikningar sem ég var að
gera á Facebook og fólk tók
svo vel í þetta. Máttur inter-
netsins er ótrúlegur,“ segir
Heiðdís Helgadóttir sem er
með BA-próf í arkitektúr
frá Listaháskólanum. Á
dögunum ferðaðist Heiðdís
til London til að læra meiri tækniteikningu
og segir hafa sótt námskeiðið til þess að
víkka sjóndeildarhringinn og teikna eitt-
hvað annað en uglur. Uglurnar hafi verið
áhugamál og óvart orðið vinsælar. Nám-
skeiðið mun hafa verið mjög lærdómsríkt
en hún segist hafa lært heilmikla tækni af
kennaranum í myndskreytingu frá Central
Saint Martins sem fræddi nemendur sína
um borgina í leiðinni. „Ég fór á námskeið
þar sem við löbbuðum um borgina í róleg-
heitum og teiknuðum byggingar en ég elska
Hafnarfjörð og mig langar svo að teikna
litlu fallegu húsin þar. Hús heilla mig enda
lærði ég arkitektúr.“
Krefjandi vinna
Heiðdís segir litla vinnu að fá
í þessum geira og því sé hún
þakklát fyrir áhugann á mynd-
unum. Hún segist þurfa að
vera öguð og vakna snemma
á morgnanna til að byrja að
teikna. „Þetta er alveg 300%
vinna. Ég þarf eiginlega fleiri
klukkustundir í sólarhringnum
núna því það er brjálað að gera
hjá mér og ég hef ekki undan
við að teikna til að anna eftir spurninni. Ég
er raunverulega farin að vanrækja vini og
vandamenn,“ segir hún hlæjandi.
Spennandi tímar fram undan
Það er margt í deiglunni á næstunni. Meðal
annars, samstarf við skartgripahönnuðina
Siggu og Timo. Þau hafa sýnt áhuga á að fá
Heiðdísi til að teikna myndir sem þau nota
sem hugsmíðaafl í hönnun sína. „Mér skilst
að Sigga hafi séð einhvern pakka inn mynd
eftir mig í blómabúð og henni fannst þetta
svo nýtt og ferskt. Mér finnst þetta ótrúlega
spennandi tækifæri en þau hafa aldrei áður
fengið utanaðkomandi í svona samstarf.“
LIST UGLUR VEKJA ATHYGLI OG GÆÐA
SKARTGRIPAHÖNNUN SIGGU OG TIMO LÍFI
Heiðdís Helgadóttir arkitekt er þakklát fyrir áhugann.
Teikniblokkin var alltaf nálægt.
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir keppti á sjö módelfitness-
mótum á síðasta ári og varð meðal annars heims-
meistari í Búdapest. Hún hugsar vel um heilsuna með
mikilli hreyfingu og segir að mataræðið skipti öllu máli.
„Til að ná árangri í fitness eða einfaldlega til að kom-
ast í form þá skiptir mataræði alveg 80% máli. Mér
þykir rosalega gaman að baksa með hollar uppskriftir.
Stundum útbý ég ferska frostpinna sem er svo sniðugt
að eiga heima til að grípa í til að svala þörfinni án
þess að fá samviskubit.“ Aðalheiður Ýr segist vera dug-
leg að búa til ýmiss konar búst daglega en hún mælir
eindregið með Froosh-drykkjunum því þeir innihalda
tvo ávexti í hverri flösku og það eru engin viðbætt efni
í drykkjunum.
Þeir eru einfaldir og mjög sniðugir í partý og barna-
afmæli. Hægt er að fylgjast með Aðalheiði á iFitness.is.
HOLLUR OG GÓÐUR FROSTPINNI
Aðalheiður Ýr, einkaþjálfari í World Class og módelfi tnesskeppandi,
mælir með heimatilbúnum frostpinna.
Froosh-drykk hellt í íspinna-
form og sett í frysti (best að
gera kvöldið áður en á að
nota).
Hægt er að bæta
við ferskum
ávöxtum til að
gera þá litríkari.
Gríska jógúrt
má einnig nota
með til að lag-
skipta pinnanum.
Skreyta með 74%
bræddu súkkulaði
og kókos.
FROOSH FROSTPINNAR
Abstrakt línuteikningar eru hennar hugarfóstur. Víkingur með fjaðraskegg.Heiðdís teiknaði ýmiss konar hús í London.
vörumerkið hættir
50-70% afsláttur!
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk S:694-7911 .
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
www.facebook.com/spennandi
MC PLANET
Save the Children á Íslandi