Fréttablaðið - 09.08.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.08.2013, Blaðsíða 6
9. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 VEISTU SVARIÐ? Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) voru aðalumsækjandi í einu verkefni sem hafði fengið vilyrði um IPA-styrk að upphæð allt að 490.000 evrum og voru meðumsækjandi í einu öðru sem hafði komist á það stig. Aðalverkefni SSNV snerist um atvinnuuppbygg- ingu og menntun fyrir ungt fólk en í heildina tóku SSNV þátt í fjórum umsóknum. Katrín María Andrésdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, segir að þar á bæ sé ekki litið á málið sem tapað fé, enda hafi enn átt eftir að semja við ESB um lokaútfærslu verkefnanna og framlag. Þá sé mögulegt að halda áfram með marga þætti sem verkefnið tók til. „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi sett þetta inn í fjárhagsáætlanir sem fundið fé á næsta ári þannig að það er ekki tapað fé. Verkefnið sem við byggðum upp er í mörgum hlutum sem hægt er að halda áfram með með öðrum hætti.“ Hún bætir því við að þeir sem eru vanir því að sækja um styrki sem þessa ættu að vera vanir því að fá bæði höfnun og samþykki. „Það er enginn hérna sem lítur á vinnuna við umsóknina eða hugsanlegan styrk sem einhvers konar tap heldur er þetta ferli sem við höfum lært af. Það er núna statt á ákveðnum stað og maður getur farið í margar áttir með þau verkefni sem við höfum verið að vinna með. Upplýsingaöflun og greiningar- og hugmyndavinna hafa þegar nýst okkur við önnur verkefni. Við höfum ekki gengið þessa götu til einskis.“ Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð, segir að þróun mála muni sannarlega hafa áhrif. „Þetta snertir rekstur stofnunarinnar næstu tvö árin því að þetta eru verkefni sem gert var ráð fyrir að færu af stað. Við höfum hins vegar ekki lagt út í neinn kostnað fyrir utan þá vinnu sem við lögðum í verkefnin. Þetta voru annars metnaðarfull og spennandi verkefni sem hefðu verið mjög mikilvæg fyrir okkur og íslenskt atvinnulíf og því leitt að ekki verði af þeim.“ Aðspurð hvort stefnt sé að því að halda áfram með verk- efnin segir Berglind að ekki sé hægt að svara því að svo stöddu. „Við reynum auðvitað að halda góðum verkefnum til streitu en ég get ekki svarað með framhaldið núna.“ Helgi Thorarensen, prófessor og verkefnastjóri við Háskólann á Hólum, segir að bagalegt sé að ekki verði af styrkjunum þar sem verkefni þeirra, Futurefish, hafi snúist um að styðja við uppbyggingu í fiskeldi víða um land, en það sé vaxandi atvinnugrein. Óvíst sé með framhaldið. „Við höldum ekki áfram að óbreyttu en munum halda áfram að sækja um svona styrki og finna aðrar leiðir. Eins og stendur sé ég það samt ekki gerast í fljótu bragði.“ Þó segir Helgi að í ferlinu megi sjá afar góða stöðu rannsókna og nýsköpunar um allt land. „Það áhugaverða í þessu ferli er að sjá að úti um allt land er komin reynsla og þekking til þess að sækja um og byggja upp svona verkefni. Það má vera bæði ánægður og stoltur af því hvað er mikil gróska í þessum málum.“ Shiran Þórisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþró- unarfélags Vestfjarða, segir að þessi niðurstaða sé afar mikil vonbrigði fyrir stofnunina, enda hafi umsóknarferlið, sem laut að uppbyggingu í ferðaþjónustu á Vestfjörðum, útheimt talsverða vinnu og útgjöld. „Það er auðvitað bagalegt að vera kominn upp að endamarkinu þegar svona gerist. Þar fyrir utan kemur þetta illa við okkur því Vest- firðir hafa í gegnum tíðina borið skarðan hlut frá borði varðandi uppbyggingu atvinnulífsins og við vorum að vona að með þessum fjármunum gætum við lagt í stærri verkefni í ferðaþjónustu og sjávarútvegi.“ Shiran segir félagið ekki hafa bolmagn til að ráðast í verk- efnið eitt og óstutt og hyggst leita til stjórnvalda um framhald verkefnisins. 1 2 3 4 EVRÓPUMÁL Fjölmörg tilraunaverkefni um land allt eru í óvissu eða hafa jafnvel verið slegin út af borðinu með ákvörðun ESB um að veita ekki frekari IPA-styrki til verkefna hér á landi. Til stóð að veita allt að 3,5 milljarða til ýmissa verkefna í ár og á því næsta en Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti stjórn- völdum að ekki yrði samið um fleiri IPA- verkefni að óbreyttu eftir að hlé var gert á aðildarumræðum, þar sem það sé í raun skilyrði fyrir aðstoð að viðtökulandið stefni að inngöngu í sambandið. Hluti af fyrirhugaðri IPA-aðstoð var að styðja við tilraunaverkefni á sviði atvinnuþróunar- og byggðamála annars vegar og velferðar- og vinnumarkaðs- mála hins vegar. Alls átti að verja um átta milljónum evra til slíkra verkefna. Alls bárust 67 umsóknir og í vor var, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, búið að velja þrettán verkefni sem átti að ganga til samninga við. Þar á meðal voru þrjú verkefni á vegum Matís sem áttu að fá um 1,5 milljónir evra, tvö verkefni frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem áttu að fá um 1,6 milljónir evra og verkefni sem Vinnumálastofnun stóð fyrir og átti að fá eina milljón. Næstu skref hefðu verið að ganga til samninga við Framkvæmda- stjórn ESB um lokaútfærslu en það ferli hefur nú verið stöðvað. Í frétt blaðsins í gær var ranghermt að íslensk stjórnvöld væru að íhuga að fjár- magna sum verkefnin sjálf. Utanríkis- ráðuneytið hefur staðfest að ekki hafi verið rætt um slíkt á vettvangi ríkis- stjórnarinnar og öll verkefnin séu stopp. Margir viðmælendur Fréttablaðsins sem höfðu hlotið umrædd vilyrði segja bagalegt að svo sé komið, enda hafi verið lögð mikil vinna í umsóknirnar. Kristinn Kolbeinsson, fjármálastjóri Matís, segir meðal annars í samtali við Fréttablaðið að umsóknirnar hafi útheimt mikinn kostnað og bagalegt sé að málum sé nú svo komið. „Það eru miklir hags- munir að fara þarna forgörðum. Við höfum eytt mikilli vinnu í þessar umsókn- ir og þetta getur haft mikil áhrif á okkar starfsemi.“ Flestir aðstandendur verkefna sögðu að erfitt gæti reynst að halda verkefn- unum til streitu í ljósi þess að IPA-styrk- irnir berist ekki en þó eru sumir sem líta þannig á að umsóknarferlið hafi í sjálfu sér skilað miklu. Katrín María Andrésdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem áttu aðild að tveimur verkefnum sem höfðu fengið vil- yrði um styrk, segir að þar á bæ sé ekki litið á málið sem tapað fé. „Það er enginn hérna sem lítur á vinn- una við umsóknina eða hugsanlegan styrk sem einhvers konar tap heldur er þetta ferli sem við höfum lært af […].“ thorgils@frettabladid.is Megin breytingar frá gildandi aðalskipulagi: Þéttari og blandaðri byggð Minna landnám og minni landfyllingar Vistvænni samgöngur Ákveðnari verndun opinna svæða Húsnæði fyrir alla Skýrari kröfur um gæði byggðar Tillaga að nýju aðalskipulagi verður auglýst frá 9. ágúst til 20. september. Kynntu þér málið á adalskipulag.is AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR 2010-2030 Tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 4. júní, 2013 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, samkvæmt 31. gr. laga nr. 123/2010, ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006. Athugasemdir Skipulagsstofnunar, sbr. 3. mgr. 30 gr., voru teknar til umfjöllunar í borgarráði þann 25. júlí, 2013 ásamt minnisblaði umhverfis- og skipulagssviðs um viðbrögð Reykjavíkurborgar við athugasemdunum. Nýtt aðalskipulag tekur til tímabilsins 2010–2030 og er endurskoðun á aðalskipulaginu 2001–2024. Endurskoðunin hefur staðið yfir undanfarin ár og hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila. Aðalskipulagstillagan er kynnt samhliða breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, sem nauðsynlegt var að ráðast í vegna endurskoðunar á stefnu aðalskipulagsins. Athugasemdir Skipulags- stofnunar, dagsettar 16. júlí 2013, eru lagðar fram með aðalskipulagstillögunni, ásamt viðbrögðum Reykjavíkurborgar við þeim, dagsettum 22. júlí 2013. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgi- gögnum liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkur- borgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 9. ágúst 2013 til og með 20. september 2013. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi166, 3. hæð. Tillöguna og önnur kynningargögn má nálgast á vefsvæðinu adalskipulag.is Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 20. september 2013. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. RÚMENÍA, AP Sérfræðingar við þjóðminjasafnið í Rúmeníu hafa fundið leifar af málningu, sem einungis var notuð á 19. og 20. öld, í ösku úr ofni Olgu nokkurrar Dogaru. Hún er móðir manns sem grun- aður er um að hafa stolið dýr- mætum listaverkum í Hollandi á síðasta ári. Hún viðurkenndi í fyrstu að hafa brennt listaverkin til að vernda son sinn en neitaði því síðar að hafa gert það. Listaverkin sjö sem stolið var eru eftir Pablo Picasso, Henri Matisse, Claude Monet, Paul Gauguin, Meyer de Haan og Lucien Freud. - gb Móðir grunaðs ræningja: Brenndi stolin listaverk í ofni BRETLAND Um mitt síðasta ár voru Bretar orðnir 63,7 milljónir og hafði þá fjölgað um 419.900 frá miðju ári 2011. Bretum hefur því fjölgað hraðar en nokkurri ann- arri þjóð í Evrópusambandinu. Fæðingar í Bretlandi hafa auk þess ekki verið fleiri síðan 1972, eða 813.200 á tímabilinu frá júní 2011 til júní 2012. Þetta kemur fram í nýjum upp- lýsingum frá bresku hagstofunni, Office for National Statistics, sem BBC skýrir frá. - gb Bretar fjölga Evrópubúum: Bretum hefur fjölgað hraðast RANNSAKAR LEIFARNAR Svo virðist sem ómetanleg listaverk hafi orðið eld- inum að bráð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 13 IPA-UMSÓKNIR HÖFÐU HLOTIÐ VILYRÐI UM STYRK EN FÁ EKKI ➜ IPA (Instrument for Pre-Access- ion Assistance) er samheiti yfir fjölþætta aðstoð sem ESB veitir umsóknar ríkjum til að undirbúa aðild. Óvissa um þróunarverkefni Eftir að ESB lokaði á frekari IPA-styrki til verkefna á Íslandi ríkir óvissa um 13 tilraunaverkefni um allt land, meðal annars á sviðum atvinnu- og byggðamála. Óvíst er hvort hægt verði að halda áfram með mörg þeirra. 1 Ekki gengið til einskis SHIRAN ÞÓRISSON BERGLIND HALL- GRÍMSDÓTTIR KATRÍN MARÍA ANDRÉSDÓTTIR HELGI THORARENSEN 2 Spennandi verkefni 3 Bagalegt, en jákvæð merki um grósku 4 Leita til stjórnvalda Aðalumsækjandi Nýsköpunarmiðstöð Íslands Starf - vinnumiðlun og ráðgjöf Akraneskaupstaður Matís Atvinnuþróunarfélag Vestfj arða Vinnumálastofnun Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra Vatnajökulsþjóðgarður Ferðamálastofa Háskólinn á Hólum Verkefni ■ Menntun í verk- tækni- og raungreinum og nýsköpun í skólastarfi ■ Vistvænt eldsneyti á Íslandi ■ Gerð forrits fyrir atvinnuleitend- ur og atvinnurekendur ■ Málefni nýbúa ■ Vistvæn nýsköpun ■ Uppbygging þörungagarða á Reykjanesi og Suðurlandi ■ Vöruþróun í sjávarútvegi ■ Ný verkefni í ferðaþjónustu ■ Atvinnuverkefni fyrir ungt fólk ■ Atvinnu- og menntunarverkefni fyrir ungt fólk ■ Sjálfb ær þróun í ferðaþjónustu ■ Gæðakerfi í ferðaþjónustu ■ Framtíðarsýn í fi skeldi Upphæð styrks í milljónum króna 157 97 102 60 79 79 79 75 157 77 118 71 118 1. Hvað heitir framkvæmdastjóri SMÁÍS? 2. Tónleikar til heiðurs hvaða hljóm- sveit verða í Hörpunni 5. október? 3. Hvernig endaði leikur FH og Austria Vín á miðvikudag? SVÖR 1. Snæbjörn Steingrímsson 2. Hljómum 3. 0-0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.