Fréttablaðið - 09.08.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 09.08.2013, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGAllt í skólann FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 20132 Algengustu mistökin eru að fólk kaupir of stóra tösku á börnin sem eru að byrja í 1. bekk. Ég ráðlegg fólki að hafa þau með í búðina og máta töskuna,“ segir Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi við Glerárskóla á Akureyri. Hún hefur undanfarin haust verið til aðstoðar foreldrum við val á tösk- um á Akureyri. „Töskurnar eiga einnig að geta enst í þrjú til fjögur ár og því skiptir útlit töskunnar líka máli. Barninu verður að líka litur- inn og munstrið þegar það eldist,“ segir Birna og bætir við að ekki sé skynsamlegt að eltast við tískumerki. „Fólk er ekki endi- lega öruggt með að hafa góða tösku í höndunum þótt hún kosti mikið.“ Grunnskólabörn mega bera tíu prósent af eigin þyngd á bak- inu. Birna segir fólk yfirleitt meðvitað um þetta með yngstu börnin en að eldri krakkarnir gleymist. Ekki sé óalgengt að krakkar í efstu bekkjum grunnskólanna beri sex til tíu kíló í töskunum en séu þá jafnvel farnir að nota íþróttapoka eða hliðar töskur á annarri öxlinni. „Sjálf myndum við aldrei fara í fjallgöngu með tíu kíló á bak- inu í þunnum, lélegum poka, enda get ég staðfest að unglingar eru margir með vöðvabólgu vegna þessa,“ segir Birna. Hún segir einnig líklegt að yngri börn finni fyrir verkjum í baki og öxlum en tengsl milli þess og notkunar skólataska hafi ekki verið rannsökuð sérstaklega hér á landi. Þó séu til banda- rískar rannsóknir sem sýna tengsl milli þungra skólataska og verkja hjá skólabörnum. Þá sé oft erfitt fyrir foreldra að átta sig á hversu mikla þyngd krakkarnir beri daglega enda misjafnt eftir skólum og stunda- töflum hversu mikið þarf að bera hvern dag. „Þau minnstu, sem eru að byrja, geta verið niður í 18 kíló að þyngd og þá mega þau ekki bera meira en 1,8 kíló í töskunni. Ef taskan sjálf vegur um og yfir 600 grömm og barnið er með nesti og íþróttaföt með sér auk bókanna fara grömmin fljótt að telja,“ segir Birna. „Þá hlaupa krakkarnir oft með töskurnar á bakinu og eiga mislangt að sækja skólann. Þetta þarf allt að hafa í huga.“ Unglingarnir vilja gleymast Þungar skólatöskur geta valdið vöðvabólgu í öxlum og verkjum í baki. Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi við Glerárskóla á Akureyri, segir mikilvægt að velja rétta stærð af tösku. Þá virðist oft gleymast að passa upp á unglingana sem oft eru farnir að bera hátt í tíu kíló í hliðartöskum eða þunnum íþróttabakpokum. Ekki er sama hvernig tösku börn og unglingar bera á bakinu. Á vef Landlæknis er að finna ráðleggingar iðjuþjálfa um val á skólatöskum. Einkenni eins og bakverkir og vöðvabólga þekkjast hjá grunnskólabörnum en tengsl milli þessa og notkunar skólataska hafa ekki verið rannsökuð sérstaklega hér á landi. Eftirfarandi punktar eru unnir upp úr Leiðbeiningabæklingi frá iðjuþjálfum á vef Landlæknis eftir Erlu Björk Sveinbjörnsdóttur, Hólmdísi Freyju Methúsalemsdóttur og Kristjönu Ólafsdóttur iðjuþjálfa. ● Velja skal tösku með vel bólstruð- um axlarólum. Í öxlum og hálsi eru margar æðar og taugar. Ef of mikill þrýstingur er á þessi svæði getur hann valdið sársauka og dofa í hálsi, handleggjum og höndum. ● Báðar axlarólarnar skulu ávallt not- aðar. Ef aðeins önnur ólin er notuð gæti barnið hallað sér meira út á hlið og sett sveigju á hrygginn. ● Stillið axlarólarnar svo taskan liggi þétt við bak barnsins og notið mittisól ef hún er til staðar til að dreifa þunganum jafnt á líkamann. ● Neðsti hluti töskunnar ætti að hvíla við mjóbakið og taskan skal ekki ná lengra en tíu sentimetra niður fyrir mitti. ● Skólataskan með innihaldi ætti ekki að vega meira en tíu prósent af líkamsþyngd barnsins. ● Þyngstu hlutirnir skulu fara aftast í töskuna, næst baki barnsins. ● Gætið þess að barnið taki einungis með sér í töskunni það sem þarf þann daginn. ● Þungar bækur mætti bera í fang- inu til að minnka álagið á bakið. LEIÐBEININGAR VIÐ VAL Á GÓÐRI TÖSKU SkeifunNi 11 • 108 Reykjavík • Sími 5331010 • Opið AlLa daga til kl. 19 komdu og gerðu frábær kaup!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.