Fréttablaðið - 09.08.2013, Blaðsíða 50
9. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 26
PEPSI KVENNA 2013
ÚRSLIT Í GÆR
VALUR - BREIÐABLIK 2-1
1-0 Sjálfsmark (67.), 2-0 Sjálfsmark (71.), 2-1
Greta Mjöll Samúelsdóttir (90+3).
STJARNAN - ÞÓR/KA 3-0
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (69.), 2-0 Glódís Perla
Viggósdóttir (77.), 3-0 Harpa (90.+3).
SELFOSS - FH 0-0
ÞRÓTTUR R. - AFTURELDING 1-0
1-0 Eva Bergrín Ólafsdóttir (48.).
STAÐAN
Stjarnan 11 11 0 0 38-3 33
Valur 11 7 2 2 33-13 23
Breiðablik 11 7 1 3 25-13 22
ÍBV 10 6 1 3 28-18 19
Selfoss 11 5 2 4 15-17 17
Þór/KA 11 3 4 4 19-19 13
FH 11 3 4 4 23-26 13
Afturelding 11 2 1 8 7-27 7
HK/Víkingur 10 1 1 8 11-34 4
Þróttur R. 11 1 0 10 7-36 3
MARKAHÆSTAR
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 14
Elín Metta Jensen, Val 12
Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfossi 9
Danka Podovac, Stjörnunni 9
Valskonur tóku annað sætið af Blikum
BYRJAR VEL Landsliðskonan Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir lék sinn annan
leik með Valsliðinu í gær en Valur hefur unnið báða leikina. MYND/ARNÞÓR
1. DEILD KARLA 2013
ÚRSLIT Í GÆR
TINDASTÓLL - GRINDAVÍK 0-2
0-1 Jóhann Helgason (41.), 0-2 Jóhann Helgason
(69.).
FJÖLNIR - HAUKAR 4-1
1-0 Guðmundur Böðvar Guðjónsson (2.), 2-0
Aron Sigurðarson (51.), 3-0 Aron Sigurðarson
(60.), 3-1 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (89.), 4-1
Ragnar Leósson (90.).
KF - VÍKINGUR R. 2-2
0-1 Igor Taskovic (12.), 0-2 Aron Elís Þrándarson
(64.), 1-2 Teitur Pétursson (65.), 2-2 Halldór Logi
Hilmarsson (70.).
STAÐAN
Grindavík 15 8 3 4 33-21 27
Fjölnir 15 8 3 4 20-16 27
Víkingur R. 15 7 5 3 28-24 26
Haukar 15 7 4 4 28-23 25
BÍ/Bolungarv. 14 8 0 6 30-28 24
Leiknir R. 14 6 4 4 24-19 22
KA 14 6 4 4 20-20 22
Tindastóll 15 5 5 5 21-23 20
Selfoss 14 5 2 7 29-25 17
KF 15 3 6 6 17-19 15
Þróttur R. 14 4 2 8 15-23 14
Völsungur 14 0 2 12 10-34 2
FÓTBOLTI Stjarnan og Valur héldu
sigurgöngu sinni áfram í 11.
umferð Pepsi-deildar kvenna í
gærkvöldi.
Stjarnan vann 3-0 sigur á
Íslandsmeisturum Þór/KA og
ellefti deildarsigurinn í röð
skilaði liðinu tíu stiga forskoti á
toppi deildarinnar.
Stjörnukonur nutu líka góðs af
því að Valur vann 2-1 sigur á
Breiðabliki en Blikakonur voru
í öðru sætinu fyrir umferðina.
Valur tók annað sætið af Blikum
með þessum sigri. Blikar voru
sjálfum sér verstar því þær
klúðruðu víti í stöðunni 0-0 og
skoruðu síðan tvö sjálfsmörk. - óój
FÓTBOLTI „Við vorum töluvert betra
liðið í fyrri hálfleik og hefðum átt
að gera út um leikinn þá,“ segir
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðju-
maður Fylkis. Árbæingar lögðu
Stjörnuna 2-1 á miðvikudagskvöld-
ið en sigurinn var sá þriðji í röð.
Leikurinn er einnig þriðji leikur
Ásgeirs Barkar, sem sneri aftur í
Árbæinn eftir sextán vikna láns-
dvöl hjá Sarpsborg 08 í Noregi.
„Ég hafði auðvitað oft talað um
að það væri draumurinn að fara
í atvinnumennsku,“ segir Ásgeir
Börkur, sem oftast er kallaður
Börkur. Hann kunni vel að meta
tímann í Noregi. Eftir bekkjarsetu
í fyrsta leiknum fékk miðjumaður-
inn stórt hlutverk í liði nýliðanna í
úrvalsdeildinni og stóð sig vel.
„Þetta gekk framar vonum,
þjálfarinn hafði trú á mér og ég
spilaði meira en ég bjóst við. Ég
fór samt auðvitað út fullur sjálfs-
trausts og ætlaði mér sæti í lið-
inu,“ segir Börkur. Á þeim stutta
tíma sem hörkutólið Börkur spil-
aði í Noregi þurfti hann tvívegis
að taka út leikbann vegna gulra
spjalda, nokkuð sem hann þekkir
vel úr íslenska boltanum.
Var lagður í einelti
„Dómararnir hérna heima hafa
auðvitað lagt mig í einelti,“ segir
hann hlæjandi. „Það er mitt hlut-
verk í liðinu að brjóta niður sókn-
ir.“ Spjöldin fylgi oftar en ekki í
kjölfarið.
Það var að vonum svekkjandi
fyrir miðjumanninn þegar honum
var tilkynnt að Sarpsborg ætl-
aði ekki að kaupa hann frá Fylki
að lánstímabilinu loknu. Forráða-
menn báru fyrir sig slæman fjár-
hag félagsins.
„Þau voru skilaboðin sem ég
fékk,“ segir Börkur. Hann bætir
við að samningsstaða sín hjá
Fylki hafi líklega ekki hjálpað til.
Börkur á aðeins þrjá mánuði eftir
af samningi sínum og því ljóst að
Sarpsborg eða önnur félög geta
fengið hann frítt í lok leiktíðar.
„Það var smá súrt að geta ekki
haldið áfram í atvinnumennskunni
sem var frábær í alla staði.“
Væri annars ekki merkilegur
Einhverjir hefðu átt í erfiðleikum
með að gíra sig upp í leiki í Pepsi-
deildinni eftir heimkomuna. Ekki
Börkur, sem hefur verið frábær í
öllum þremur sigurleikjum Árbæ-
inga. Baráttan einkennir hans leik.
„Svona er ég bara. Ef ég myndi
ekki gefa mig í alla leiki og hlaupa
úr mér lungun væri ég ekki merki-
legur knattspyrnumaður. Maður
þarf
að gera það sem maður gerir vel
og leggja sig 100% fram,“ segir
Börkur. Þótt vonbrigðin hafi verið
mikil að snúa heim úr atvinnu-
mennskunni sá hann ljósa punkta
og ný markmið.
„Þá var tækifæri til þess að
hjálpa liðinu mínu, enda er ég mik-
ill Fylkismaður.“
Börkur hefur sinnt tónlist-
inni meðfram fótboltanum og
bæði sungið með hljómsveitinni
Shogun, sem vann Músíktilraunir
árið 2007, og Mercy Buckets, sem
hann söng með í vetur.
„Við spiluðum mikið í vetur og
sömdum á fullu,“ segir Börkur en
hljómsveitin tók sér hlé við brott-
för Barkar til Noregs. Æfing-
ar eru fyrirhugaðar á næstunni.
„Við ætlum að spila á tónleikum
og rokka í Reykjavík,“ segir Börk-
ur. Þá eru meðlimir Shogun einn-
ig komnir með hljóðfærin í hönd
og spila gömlu slagarana að sögn
Barkar.
Miðjumaðurinn 26 ára stefnir
ótrauður á að endurnýja kynnin
við atvinnumennskuna.
„Ekki spurning. Ég klára tíma-
bilið með fagmönnunum í Fylki og
stefni svo á að koma mér út í janú-
ar. Nú er ég búinn að fá smjörþef-
inn af þessu og hef séð að ég get
staðið í stóru köppunum í norsku
úrvalsdeildinni,“ segir Ásgeir
Börkur Ásgeirsson.
kolbeinntumi@365.is
Risastórt Fylkishjarta
Fylkir var án sigurs í deildinni þegar Ásgeir Börkur Ásgeirsson sneri heim í júlí.
17 dögum síðar hafa Fylkismenn unnið þrjá leiki í röð og Börkur farið á kostum.
UPP OG NIÐUR Síðan Ásgeir Börkur yfirgaf Sarpsborg hefur norska liðið tapað
báðum sínum leikjum. Börkur segir liðið hafa spilað vel en varnarleikurinn gengið
illa. Liðið hefur fengið á sig níu mörk í leikjunum tveimur án hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lið 14. umferðar
Fjalar Þorgeirsson Valur
Agnar Bragi Magnússon Fylkir
Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV
Brynjar Á. Guðmundsson FH
Lucas Ohlander Valur
Arnór Ingvi Traustason Keflavík
Ásgeir Börkur Ásgeirsson Fylkir
Davíð Þór Viðarsson FH
Óskar Örn Hauksson KR
Hörður Sveinsson Keflavík
Viðar Örn Kjartansson Fylkir
Ásgeir Börkur fékk félagsskipti í Fylki 18. júlí síðastliðinn og lék sinn fyrsta
leik með liðinu á móti Val þremur dögum síðar.
Ásgeir Börkur breytir miklu í Árbænum
FYRIR KOMU ÁSGEIRS BARKAR
4 stig í 11 leikjum
Markatala: -10 (10-20)
EFTIR KOMU ÁSGEIRS BARKAR
9 stig í 3 leikjum
Markatala: +6 (8-2)
Breiðablik var 1-0 yfir á móti Aktobe frá Kasakstan í 3.
umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu þegar
flautað var til leiksloka á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Finnur Orri Margeirsson skoraði eina mark venjulegs leik-
tíma á 27. mínútu eftir frábæra sókn. Breiðablik lék sig
frábærlega í gegnum vörn Aktobe vinstra megin og Kristinn
Jónsson átti frábæra sendingu út í teiginn sem Ellert
Hreinsson lét fara fyrir Finn Orra sem skorar.
Liðsmenn Aktobe unnu 1-0 sigur í fyrri leiknum ytra með
marki úr vítaspyrnu á lokamínútu venjulegs leiktíma og því
þurfti að framlengja leikinn. Framlengingunni var ekki
lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi
en þetta var tólfti leikur Blika á aðeins sex
vikum. Það er hægt að finna allt um úrslitin og
viðbrögð Blika inn á Vísi.
Framlengt hjá Blikum í gærkvöldi
SPORT