Fréttablaðið - 09.08.2013, Qupperneq 24
FRÉTTABLAÐIÐ Saga Sig. Handverkið lifir. Heilbrigður lífsstíll. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
6 • LÍFIÐ 9. ÁGÚST 2013
Ég held að það sé
samt mjög mikil-
vægt að vera ein á
einhverjum tíma-
punkti í lífinu og
ég er mjög tilbú-
in til þess núna.
Ég hef aldrei
verið hrædd við
að vera ein eða
við að taka stórar
ákvarðanir.
Þ
egar Saga Sig var yngri
dreymdi hana um
að verða stjarneðlis-
fræðingur og síðar meir
læknir. Á einhverjum
tímapunkti í náminu við MR fékk
hún sterka tilfinningu fyrir því
að vera á rangri hillu og færði
sig um set yfir í Verzlunarskól-
ann. Áhugi hennar á ljósmyndun
kviknaði þegar hún tók myndir
fyrir Verzlunarskólablaðið.
Hvar ólstu upp og hvernig
voru fjölskylduhagir þínir?
„Fyrstu ár lífs míns ólst ég upp
í Skálholti þar sem pabbi var
rektor í Skálholtsskóla. Frá fimm
ára aldri bjó ég á Þingvöllum
þar sem mamma var þjóðgarð-
svörður og sóknarprestur. Ég
flutti svo í Skaftártungu í Vest-
ur-Skaftafellssýslu um tíu ára
og bjó þar til fimmtán ára ald-
urs en þá flutti ég til Reykjavík-
ur. Í sveitunum kynntumst við
frábæru fólki sem sagði okkur
magnaðar þjóðsögur og drauga-
sögur. Ég og systkini mín lærð-
um að hafa ofan af fyrir okkur og
búa til leiki og ævintýri í hraun-
inu á Þingvöllum eða í hólmun-
um í Öxará. Mér finnst ég vera
ótrúlega heppin að hafa alist upp
á þessum sögufrægu og fallegu
stöðum því það hefur mótað mig
sem einstakling.“
Hvar lærðir þú ljósmyndun
og af hverju varð hún fyrir val-
inu? „Ég hef tekið myndir síðan
ég fékk fyrstu myndavélina mína
aðeins átta ára gömul. Þá heillað-
ist ég af samspili ljóss og skugga
og geri enn. Ljósmyndun fyrir
mér er líka söfnunartæki. Ég
er að safna minningum, litum,
formum og áferð. Ég útskrifaðist
af stærðfræðibraut í Verzlunar-
skólanum og var ljósmyndastjóri
Verzlunarskólablaðsins. Sú vinna
fannst mér ótrúlega skemmti-
leg og ég áttaði mig á því að ég
vildi vinna við ljósmyndun sem
listform. Ég fór í eitt ár í list-
fræði í Háskólanum en flutti svo
út til London. Ég lærði tískuljós-
myndun í London College of Fas-
hion og útskrifaðist fyrir tveim-
ur árum.“
Er ekki á heimleið
Hvernig er svo að búa í London?
Muntu flytja heim aftur? „Ég
verð alltaf jafn glöð þegar ég
kem aftur til London þegar ég
er búin að vera heima á Íslandi
og upplifi þessa „heima“-tilfinn-
ingu. Í London er fullt af falleg-
um görðum og ég elska öll lista-
söfnin og bókabúðirnar og svo
allt frábæra skapandi fólkið sem
ég hef kynnst. Ég bý með Bretum
og hef kynnst svo mörgu fyrir-
taks fólki frá öllum heimsálfum
þarna úti. Svo er ég líka í sam-
bandi við Íslendinga eins og Ísak
Frey förðunarsnilling og Katr-
ínu Öldu, sem hannar undir vöru-
merkinu Kalda, og fleiri. Lond-
on getur stundum verið smá erfið
líka, það er dýrt að búa þar og
lífsgæðastaðallinn er ekki sá
sami og á Íslandi. Ég sé fram á
að flytja um set eftir nokkur ár
en ekki þó til Íslands.“
Saknarðu þó stundum
Íslands? „Já, ég fæ oft Íslands-
þrá. Ég held að þegar maður
hefur alist upp úti á landi sé það
svo sterkt í manni að vilja kom-
ast út í náttúruna. Ég sakna þess
mjög að sjá ekki sjóinn og svo
sakna ég vina og fjölskyldu.“
Starfaði fyrir Vogue Japan
Hvað er stærsta verkefni sem
þú hefur tekið að þér sem tísku-
ljósmyndari? „Að vinna fyrir
Topshop var mikilvægt fyrir
mig þar sem það hjálpaði mér
mikið á mínum ferli. Ég gerði
verkefni fyrir Burberry og
Harpers Bazaar Arabia, sem
var ótrúlega flott að fá að gera.
Stærsta nafn sem ég hef unnið
SAGA SIG ÉG HEF ALLA TÍÐ VERIÐ
MJÖG DRÍFANDI MANNESKJA
Hún er ekki einungis fögur og ljúfari en allt. Saga Sig er einnig hrífandi ungur tískuljósmyndari á hraðri uppleið í bransanum. Lífi ð ræddi við Sögu um
uppvöxtinn á sögufrægum stöðum, búsetuna í London, sambandsslitin og hinn brennandi áhuga á að láta draumana rætast.
Saga Sig er hæfileikarík og drífandi ung kona sem er óhrædd við að vinna mikið til að ná markmiðum sínum.
ALDUR 26 ára
STARF Ljósmyndari
HJÚSKAPARSTAÐA
Einhleyp
með er sennilega Nike Women,
ég vann beint með listrænum
stjórnanda þeirra í Bandaríkj-
unum og það var eitt skemmti-
legasta verkefni sem ég hef gert.
Fyrir nokkrum vikum myndaði
ég svo fyrir LEICA, sem er eitt
virtasta myndavélafyrirtæki í
heimi, en ég myndaði fyrir blað-
ið þeirra, LEICA S. Ég fékk einn-
ig birtar myndir í Vogue Japan
og í Dazed and Confused sem
var mjög mikilvægt fyrir mig.
Svo hef ég kennt ljósmyndun í
St. Martins-háskólanum í Lond-
on og í Ljósmyndaskólanum hér
heima en það finnst mér mjög
gefandi.“
Hvern eða hvað er svo
skemmtilegast að mynda?
„Verkefnin geta verið skemmti-
leg á ólíkan hátt. Það getur verið
af því að ég vinn með fólki sem
er vinir mínir eða vegna þess
að ég fæ að ferðast til annarra
landa, eða jafnvel vegna þess
hve krefjandi verkefnið er og
ég fæ fullt frelsi til að gera það
sem ég vil. Mér finnst gaman að
mynda portrettmyndir. Á síðasta
ári tók ég myndir fyrir Inspired
by Iceland og mér fannst ótrú-
lega skemmtilegt að taka mynd-
ir af fólki í íslenskri náttúru.
Það eru mikil forréttindi að fá
að ferðast í tengslum við vinn-
una en ég hef til dæmis ferðast
mikið innan Evrópu, til New
York og Peking í Kína.“
Hvatningarverðlaun forsetans
Það eru ekki margir íslensk-
ir ljósmyndarar sem hafa náð
sömu velgengni og þú á svo
skömmum tíma. Hver er drif-
krafturinn?
„Ég hef alla tíð verið mjög dug-
leg og allir sem þekkja mig vita
að ég vinn mjög mikið. Ég setti
mér markmið þegar ég flutti
út og fylgdi þeim eftir og gefst
aldrei upp þótt á móti blási. Ég
hef gert mistök, tekið ábyrgð á
þeim og haldið áfram. Ég hef
alltaf verið mjög drífandi. Ég tek
yfirleitt hlutina alla leið. Þegar
ég var yngri var ég mikill bóka-
ormur og las svo mikið af bókum
að ég fékk hvatningarverðlaun
forseta Íslands. Í Hagaskóla var
ég svo dugleg í náminu að ég
dúxaði. Ég verð alltaf heltekin
20%
afsláttur