Fréttablaðið - 09.08.2013, Síða 28
KYNNING − AUGLÝSINGAllt í skólann FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 20134
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir fimmtudaginn 22. ágúst
2013. Yngstu skólabörnin eru fædd 2007. Gert er ráð fyrir að nem-
endum í grunnskólum borgarinnar fjölgi lítillega haustið 2013 en
1. október 2012 voru þeir 13.332 og 642 nemendur í sjálfstætt starf-
andi grunnskólum (með fimm ára nemendum).
Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 42.320 haustið 2012
og höfðu ekki verið færri síðan árið 1997. Grunnskólanemendum
fækkaði um 45 frá fyrra ári, eða um 0,1%.
Grunnskólanemendur á Íslandi voru flestir haustið 2003, eða
44.809. Auk þess stunduðu 184 börn nám í fimm ára bekk síðast-
liðinn vetur. Þeir nemendur hafa aldrei verið fleiri frá því að
gagnasöfnun Hagstofunnar hófst haustið 1997.
Grunnskólum landsins fækkaði um þrjá frá síðastliðnu skólaári
vegna sameininga og eru nú 168 talsins.
Grunnskólanemendum með erlent ríkisfang og erlent móður-
mál fer fjölgandi.
Frá haustinu 2006 hefur erlendum nemendum fjölgað um 464
og voru 1.444 talsins haustið 2012. Haustið 2006 voru þessir nem-
endur 2,2% af grunnskólanemendum en voru orðnir 3,4% allra
grunnskólanemenda haustið 2012. Fjölmennastir voru nemendur
með pólskt ríkisfang (734) og nemendur frá Litháen (129), að því er
kemur fram á vef Hagstofunnar.
Nemendum grunnskóla
fækkaði í fyrravetur
Skólinn leggur mikla áherslu á tæknilega hluta ljósmynd-unar,“ segir Jón Guðmunds-
son, ljósmyndanemi í Medieskol-
erne í Viborg í Árósum. „Á fyrstu
önn eru nemendur nánast lokað-
ir inni í stúdíóum. Þá snúast verk-
efnin um lýsingu og ekkert annað.“
Hann segir nemendurna þann-
ig öðlast mikla þekkingu á ljós-
myndatækninni. Með hverri önn
er svo lögð meiri áhersla á úrlausn
verkefna í fullkláruðum ljósmynd-
um. „Markmiðið verður að fanga
áhorfandann, halda athyglinni og
vekja tilfinningar hjá honum,“ út-
skýrir Jón.
Ólík áhugasvið
Í ljósmyndadeild skólans eru engar
undirdeildir en áhugasvið nem-
endanna er misjafnt. „Sumir sér-
hæfa sig mikið en aðrir prófa nán-
ast allt,“ segir hann. „Bekkjarsystk-
ini mín hafa til dæmis sérhæft sig
í bílaljósmyndun, dýraljósmyndun
og matarljósmyndun.“
Verkefnin eru því af ýmsum toga.
„Sem dæmi um skemmtilegt verk-
efni má nefna eitt með fatahönn-
uðum úr öðrum skóla. Í samvinnu
við fyrirsætur og förðunarfræð-
inga gerðum við virkilega flottar
myndir.“
Verða að vera á samningi
Stór hluti námsins er verknám en
rúm tvö ár af þeim fjórum sem
námið tekur eru nemar á samningi
hjá lærðum ljósmyndara.
„Það er mjög misjafnt hvað
nemar fá að gera á samningi. Sumir
fá varla að snerta myndavél en aðrir
mynda heilu auglýsingarnar,“ segir
Jón. Flestir fá samning í Danmörku
en það má vera hvar sem er í heim-
inum. „Ég var svo heppinn að fá
samning hjá Lárusi Sigurðar syni
hér á Íslandi. Hann tekur að sér
mikið af spennandi verkefnum og
það er góð reynsla að taka þátt í
þeim.“
Nemendur þurfa að hafa samn-
ing við ljósmyndara til að komast
inn í skólann. Ef það gengur ekki
má byrja í undirbúningsnámi við
skólann í eina önn og freista þess
að komast á samning eftir það.
Viðskiptahluti ljósmyndara-
starfsins er einnig skoðaður í nám-
inu. „Við lærum ýmislegt varðandi
bókhald, endurskoðun og fleira
sem tengist því að reka fyrirtæki.“
Jón segir flesta vinna sjálfstætt eftir
námið og því sé mikilvægt að hafa
þekkingu á því sviði. „Besta kennsl-
an í tengslum við ljósmyndara-
starfið fer þó fram á samningnum,“
bætir hann við.
Með hugann við ljósmyndun
Jón er afar ánægður með námið í
heild sinni þótt áherslan á tækni-
hlutann sé heldur mikil. „Ég hef
Starfið frábrugðið áhugaljósmyndun
Jón Guðmundsson stundar nám í ljósmyndun við Medieskolerne í Viborg í Danmörku. Tuttugu nemendur eru teknir inn árlega.
„Í lok dags þarf alltaf að skila af sér góðum myndum, ekki bara þegar maður er í stuði,“ segir Jón Guðmundsson sem stundar nám í ljós-
myndun við Medieskolerne í Viborg.
lært hvernig er að vinna sem ljós-
myndari. Það er ansi frábrugðið því
að taka myndir sér til gamans. Í lok
dags þarf alltaf að skila af sér góðum
myndum, ekki bara þegar maður er
í stuði,“ segir hann og bætir við að
auk þess sé hjálplegt að hafa hug-
ann alltaf við ljósmyndunina, ekki
bara í frístundum.
Tekur brúðkaupsmyndir
Í sumar hefur Jón mest myndað
brúðkaup. „Það eru allir í góðu
skapi í brúðkaupum svo það er alltaf
gaman að mynda í þeim. Svo kemur
sér vel að vera nemi hjá Lárusi því
hann er klárlega með reynslumestu
brúðkaupsljósmyndurum lands-
ins,“ segir Jón.
Útskrifast í vor
Jón útskrifast með sveinspróf í ljós-
myndun í febrúar og svipast nú um
eftir hentugu húsnæði til að setja
upp stúdíó. Hann tekur glaður á
móti spurningum varðandi skólann
á netfangið jon@jongudmundsson.
com.
- hþó