Fréttablaðið - 09.08.2013, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGAllt í skólann FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 20138
HEILSUEFLANDI GRUNNSKÓLAR
Ráðstefna um heilsueflandi grunnskóla verður haldin á vegum Landlækn-
is þann 16. ágúst klukkan 8.30 í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Starfsfólk þeirra skóla sem eru nú þegar þátttakendur í verkefninu og þeir
sem hafa áhuga á að sækja um að starfa í anda heilsueflandi grunnskóla
eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Heilsueflandi grunnskólar setja sér heildræna stefnu í heilsu- og vel-
ferðarmálum sem snýr að nemendum og starfsfólki í samstarfi við heimili
og nærsamfélag. Í nýrri Aðalnámskrá um grunnskóla er heilbrigði og vel-
ferð einn af grunnþáttum menntunar og mun verkefnið um heilsueflandi
grunnskóla auðvelda skólum að setja sér viðmið og markmið til að efla sig
í þeim þætti.
Á ráðstefnunni verður boðið upp á fyrirlestra og fræðsluerindi. Auk þess
verða kynntar viðbætur og breytingar í endurskoðaðri Handbók heilsu-
eflandi grunnskóla og kynnt verður vefsvæði sem mun auðvelda skólum að
fylla út gátlista, setja sér markmið og verkefnaáætlanir. Boðið verður upp á
umræður og kynningar frá skólum sem hafa reynslu af vinnu sem heilsu-
eflandi grunnskólar.
MARGIR SOFA OF LÍTIÐ
Margir foreldrar hafa áhyggjur
af því að unglingar og jafnvel
börn sofi ekki nægilega mikið. Í
rannsókn sem gerð var í Banda-
ríkjunum kom í ljós að unglingar
sofa aðeins í sjö tíma að meðaltali
en mælt er með því að þeir fái níu
til tíu klukkustunda svefn.
Of stuttur svefntími getur haft
slæm áhrif á heilsu og frammi-
stöðu í daglegu lífi. Stór hópur
nemenda mætir í skólann að
morgni þreyttur og ósofinn. Þessi
þreyta hefur áhrif á skap, náms-
hæfileika og viðbragðshæfni.
Regluleg líkamleg hreyfing,
reglubundinn háttatími, myrkur
í herbergi og rétt hitastig hefur
góð áhrif á svefninn. Koffíndrykkir,
mikið sjónvarpsgláp og hreyf-
ingarleysi getur
hins vegar haft
slæm áhrif á
svefninn.
LEITIÐ RÁÐA
Hafi foreldrar áhyggjur af ein-
hverju er varðar skólagöngu
barna þeirra geta þeir meðal
annars leitað til þjónustumið-
stöðvar Heimilis og skóla. Þar er
leitast við að hjálpa fólki að finna
heppilega leið til að leysa málin.
Ekki þarf að segja til nafns frekar
en fólk vill.
Heimili og skóli – landssamtök
foreldra eru frjáls félagasamtök
sem starfa óháð stjórnmála-
flokkum eða trúfélögum. Hlutverk
þeirra er að veita ráðgjöf til for-
eldra og foreldrasamtaka og gefa
út tímarit og ýmiss konar efni um
foreldrastarf.
Aðaláherslurnar í starfseminni eru
að veita foreldrum og félags-
mönnum stuðning og liðveislu
og miðla upplýsingum til foreldra
svo að þeir geti betur sinnt upp-
eldi barna sinna og skólagöngu
þeirra. Einnig að koma sjónar-
miðum foreldra á framfæri við
yfirvöld og vinna að því að auka
áhrif foreldra á skólastarf. Þá er
samtökunum ætlað að efla starf
foreldrafélaga og leggja þeim lið.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.heimiliogskoli.is.
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
NÚ ENN MEIRA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
STÖÐ 2 VILD
Það eina sem þarf að gera er að skrá kreditkort heimilisins á stod2.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
amstarfsaðila
SKEMMTI-
GARÐURINN
5O% afsláttur af fjölskyldukortum Skemmtigarðsins.
Þú borgar 3.000 kr. en færð 6.000 kr. inneign.
SKEMMTI-GARÐURINN
50% afsláttur af ævintýra-minigolfi. Þú borgar aðeins 600 kr. fyrir 36 minigolf-brautir.
Þú fær hjá fjölda s
AFSLÁTT
UR
AFSLÁTTUR
Í GRAFARVOGI
WORLD CLASS
30% afsláttur af stökum tímum í baðstofu.
30% afsláttur af þriggja mánaða korti í baðstofu og heilsurækt.
LIFANDI MARKAÐUR
AFSLÁTT
UR
AFSLÁTTUR
. ð sjálfkrafa afslátt
25%
afsláttur af
öllum fatnaði
12%
afsláttur ef verslað
er fyrir 2.000 kr.
eða meira Sækja þarf um Olís greiðslulykil til að
fá afslátt
Kynntu þér
tilboðin á
stod2.is/vild
KYNNTU ÞÉR
FLEIRI SPENNANDI
TILBOÐ Á STOD2.IS
25%
afsláttur ef verslað
er fyrir 2.000 kr.
eða meira
40%
afsláttur af
bílaþvotti að utan
20%
afsláttur af
fatahreinsun
20% afsláttur af öllum vörum við fyrstu kaup.Tilboðið gildir út ágúst aðeins í Fákafeni 11.