Fréttablaðið - 09.08.2013, Side 54

Fréttablaðið - 09.08.2013, Side 54
9. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30 Hljómsveitin Samaris hefur fengið góða dóma erlendis fyrir samnefnda plötu sína sem kom nýlega út víðs vegar um Evrópu á vegum One Little Indian. Breska blaðið NME gefur henni átta í einkunn af tíu mögulegum. Þar segir gagnrýnandinn að hljóm- sveitinni takist að forðast alla tilgerð og spili vit- ræna tónlist sem er aldrei fráhrindandi. Hann bætir við að söngkonan Jófríður Ákadóttir færi leyndar- dóma inn í lögin. „Fáguð og óvenjuleg plata. Þetta er gimsteinn,“ skrifar hann. Vefsíðan Musicomh.com gefur plötunni þrjár og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. „Sumt fólk mun elska Samaris, tríó sem einhvern veginn tekst að hnoða öllu sem er í tísku á poppjaðrinum inn í lögin sín,“ segir gagnrýnandinn og telur að hljómsveitin gæti orðið mjög góð í framtíðinni. Clashmusic gefur Samaris sex af tíu í einkunn og segir plötuna lofa góðu fyrir framtíðina en lögin skorta góðar melódíur. Breska vefsíðan Thelineofbestfit er jákvæðari og gefur plötunni átta af tíu mögulegum og segir klarinettuleik Áslaugar Rúnar Magnúsdóttur gefa tónlistinni heillandi blæ. - fb Hrífast af fyrstu plötu Samaris Fyrsta breiðskífa Samaris fær góða dóma hjá erlendum gagnrýnendum. SAMARIS Hljómsveitin hefur fengið góða dóma hjá erlendum gagnrýnendum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ➜ Samaris heldur tónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg í kvöld klukkan 18. „Ég sé um útsetningu tísku- sýningar grænlenska fata- hönnuðarins Bibi Chem- nitz, sem sýnir í ráðhúsinu í kvöld. Chemnitz er fyrsti Grænlendingurinn sem tekur þátt í tískuvik- unni hér í Kaupmanna- höfn og hún hefur feng ið sva k a lega mikla athygli,“ segir Ellen Loftsdóttir stíl- isti, sem tekur þátt í tískuvikunni þessa stundina. Ellen er að vonum ánægð með verk- efnið og er hún í óða önn að undirbúa sig fyrir kvöldið. Mikið umstang er í kringum sýn- inguna í ráðhús- inu og búist er við miklum fjölda fólks. Aðspurð segir Ellen að tískuvikan fari ört stækkandi og þá sérstaklega hvað varðar litlu merkin frá Skandinavíu. „Tískuvikan hefur upp á svo margt að bjóða og þá sérstaklega fyrir verslunareigend- ur. Hér eru öll flottustu merkin frá Evrópu, til dæmis Asger Juel, Stine Goya og Henrik Vibskov,“ segir hún. Eftir tísku- vikuna ætlar Ellen að taka sér langþráð sumarfrí en það bíða hennar mörg spennandi verkefni að því loknu. „Ég er að fara að gera nýtt tónlistarmyndband með Narvi Creative, sem er fram- leiðslufyrirtæki mitt og kærasta míns, Þorbjörns Ingasonar. Svo ætla ég að skella mér á tískuvik- una í London í september,“ segir hún að lokum. asa@365.is Stíliserar sýningu á tískuvikunni í Köben Ellen Loft sdóttir stíliserar tískusýningu grænlenska hönnuðarins Bibi Chemnitz, en sú er jafnframt fyrsti Grænlendingurinn sem tekur þátt í tískuvikunni. „Um helgina er ég að fara austur á Kirkjubæjarklaustur að hitta stórfjölskylduna mína. Einnig ætla ég að stelast til að nota helgina í að halda áfram skipulagningu Reykjavík Dance Festival sem hefst 23. ágúst.“ Tinna Lind Gunnarsdóttir, skipuleggjandi Reykjavík Dance Festival. HELGIN Fatahönnuðurinn Bibi Chemnitz hefur fengið mikla fjölmiðlaathygli fyrir það að vera fyrsti Grænlendingurinn sem sýnir á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Mikil spenna er fyrir sýningu hennar í ráðhúsinu í kvöld en viðburðurinn er sá stærsti á tískuvikunni. Chemnitz, sem er 29 ára gömul, flutti til Kaupmannahafnar þegar hún var 13 ára en hefur hægt og rólega verið að stimpla sig inn í tískuheiminn. Fyrsti Grænlendingurinn á tískuviku „Við erum að vinna fyrir Reykjavíkur- borg þar sem okkar hlutverk er að lífga upp á Vitatorg, sem er á horni Vitastígs og Hverfisgötu,“ segir Katla Rós Ásgeirsdóttir myndlistarkona, sem vinnur að endurnýjun torgsins, ásamt Birnu Einarsdóttur og Ragnari Má Nikulássyni. „Verkefnið er inn- grip í almenningsrými og svæðið sem um ræðir er svokallað biðsvæði, en það eru þau svæði sem eru í millibilsástandi hvað varð- ar framtíðarskipulag og notkun. Svæðin eru tilvalinn vettvangur fyrir tilraunastarf- semi og þróun á nýjum hugmyndum.“ Aðspurð segir hún að hugmyndin um að byggja kúluhús úr timbri hafi komið til meðal annars vegna þess að torgið sé svo stórt og því mikið svæði sem þurfti að fylla upp í. Verkefnið þróast frá degi til dags. „Við erum í stanslausri hugmyndavinnu og spjalli við nágranna og vegfarendur sem eiga leið hjá. Við erum að smíða fleiri bekki og einnig höfum við verið að rækta alls kyns salat og krydd sem hangir á veggjum torgsins fyrir gesti og gangandi til þess að gæða sér á. Í lok sumars stefnum við svo að því að vera með harmóníkudansleik af bestu gerð, það verður án efa mjög mikið fjör,“ segir Katla Rós Ásgeirsdóttir að lokum. - áo Listamenn lífga upp á Vitatorg með kúluhúsi Listafólkið Katla Rós, Ragnar Már og Birna lífgar upp á Vitatorg, sem hefur fengið á sig nýja og betri mynd. FLOTT Ellen Loftsdóttir stílisti er á fullu að undirbúa tískusýningu. LISTAFÓLK Katla Rós, Ragnar Már og Birna breyta ásýnd Vitatorgsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 ÚTSALA SHABBY HERA MURCIA ASPEN DOCK JOERI PÚPAR ÁÐUR KR. 418.300 - NÚ KR. 313.700 ÁÐUR KR. 232.400 - NÚ KR. 185.800 ÁÐUR KR. 36.400 ÁÐUR KR. 14.900 ÁÐUR KR. 59.900 ÁÐUR KR. 372.800 NÚ KR. 27.300 NÚ KR. 8.900 NÚ KR. 38.900 NÚ KR. 298.200 20-50% AFSLÁTTUR LAMPI KOLLUR KISTA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.