Fréttablaðið - 17.08.2013, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 20136
Flestir Íslendingar sem stunda nám erlendis nema í Danmörku. MYND/GETTY
Fjöldi Íslendinga hefur síðustu
á r at u g i s t u nd að h á s kól a-
nám erlendis, bæði grunn- og
f ra m ha ld sná m. Sa m k v æmt
upplýsing um f rá Lá nasjóði
íslensk ra námsmanna, LÍN,
stunduðu 2.162 Íslendingar
nám erlendis árið 2011. Sem
fyrr eru Bandaríkin, England og
Norðurlöndin vinsæl en sam-
kvæmt gögnum LÍN stunda flestir
Íslendingar nám erlendis í Dan-
mörku eða rúmlega 800 manns.
Banda ríkin, Svíþjóð og England
eru næst á listanum. Tæplega 300
nemendur eru í Banda ríkjunum,
206 í Svíþjóð og 180 í Englandi.
Rú m lega hel m i ng u r þei r ra
Íslendinga sem stunda nám
erlend i s nem a á Norðu r-
löndunum þremur, Danmörku,
Svíþjóð og Noregi.
Næstu lönd á listanum eru
Holland, Ungverjaland og Þýska-
land með 70-100 nemendur hvert
land. Flestir sem stunda nám í
Ungverjalandi nema læknisfræði,
eða rúmlega 90% nemenda.
Um 200 nemendur sækja nám
í Evrópulöndunum Sviss, Spáni,
Skotlandi, Ítalíu, Grik k landi
og Frakklandi og tæplega 50
nemendur stunduðu nám í
Kanada árið 2011.
Íslendingar sækja varla nám
utan Evrópu, Bandaríkjanna og
Kanada en einungis 32 nemendur
sóttu nám til annarra heimsálfa
árið 2011. Þar af voru 18 þeirra í
Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Einn
Íslendingur sótti nám í Argentínu
og einn í Brasilíu árið 2011 og
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin, Jamaíka og Japan áttu
hvert einn fulltrúa þjóðarinnar
sama ár.
Þessar tölur ná eingöngu til
þeirra sem þiggja lán frá LÍN en
aðrar upplýsingar um námsmenn
erlendis liggja ekki fyrir.
Heimild: LÍN og Hagstofa
Íslands.
Býr Íslendingur hér?
Námsgagnaveitan 123skoli.is er sprottin af hugsjón og þörf,“ segir Kristjana
Friðbjörnsdóttir grunnskóla-
ken na r i, sem í félag i v ið
starfssystur sínar og grunnskóla-
kennarana Auði Báru Ólafsdóttur
og Þórunni Elídóttur stofnaði
vefsíðuna 123skoli.is í ársbyrjun
2011.
„Þá höfðum við Auður og
Þórunn verið að fóta okkur
í þróun kennsluaðferða sem
nýtast öllum börnum og prófa
okkur áfram með verkefni sem
eru lífleg, áhugavekjandi og fjöl-
breytt, en þó afmörkuð og unnin
út frá markmiðum. Markmið
okkar er því ekki að klára bækur
heldur að aðstoða nemendur
við að ná markmiðum sínum
í námi,“ útskýrir Kristjana um
megintilgang námsgagna-
veitunnar sem strax var vel tekið.
Kristjana segir námsgagna-
veituna spara kennurum mikla
vinnu.
„Það er þægilegt að geta farið
í verkefnabanka og sótt verkefni
sem eru tilbúin til útprentunar eða
amboð sem nýtast vel í skólastof-
unni og við bekkjarstjórnun. Allt
efnið er prófað og þróað í kennslu
og verkefnin reyna á nemendur.“
Fram að þessu hafa verkefni
veitunnar tengst íslenskunámi á
grunnskólastigi en í haust verður
líka boðið upp á stærðfræði.
„Íslenskuverkefnin snúa að
öllum þáttum námsins; allt frá
léttlestrarbókum og lesskilnings-
verkefnum til stafsetningar, mál-
fræði og þjálfunar í framsögn og
tjáningu,“ segir Kristjana um fjöl-
breytt verkefnin sem eru hugsuð
fyrir nemendur í 1. til 7. bekk.
„Ve r k e f n i n n ý t a s t þ ó
nemendu m á f ra m ef t i r 7.
bekk, sem og í sérkennslu og
einstaklingsmiðuðu námi. Allt er
það góð viðbót, því vöntun hefur
verið á fjölbreyttu efni sem kemur
til móts við nemendur sem fara á
ólíkum hraða í gegnum nám sitt,“
útskýrir Kristjana.
N á n a r i u p p l ý s i n g a r á
www.123skoli.is
Auðlind fyrir kennara
Þrír kennarar stofnuðu námsgagnaveituna 123skoli.is sem er verkefnabanki á
vefnum fyrir kennara og foreldra sem vilja liðsinna börnum sínum.
Námsgagnaveitan 123skoli.is var upphaflega hugsuð fyrir kennara en hefur einnig nýst foreldrum vel, ekki síst foreldrum íslenskra
barna í útlöndum. Frá vinstri standa þær Kristjana Friðbjörnsdóttir, Þórunn Elídóttir og Auður Bára Ólafsdóttir. MYND/STEFÁN
BROT ÚR SÖGU MENNT
UNAR KVENNA Á ÍSLANDI.
1874 Kvennaskólinn í Reykjavík
stofnaður.
1886 Konur öðlast rétt til æðri
menntunar.
1892 Ingibjörg H. Bjarnason
lýkur leikfimiprófi fyrst Íslendinga
frá Poul Petersens institut í
Kaupmannahöfn.
1904 Ný reglugerð veitir stúlkum
rétt til náms við Menntaskólann í
Reykjavík.
1910 Ásta Kristín Árnadóttir lýkur
iðnmeistaraprófi í Kaupmanna-
höfn, fyrst íslenskra kvenna.
1911 Konur fá rétt til menntunar,
styrkja og embættisstarfa til jafns
við karla.
1917 Kristín Ólafsdóttir lýkur
embættisprófi í læknisfræði frá
Háskóla Íslands, fyrst kvenna.
1926 Björg Caritas Þorláksson ver
doktorsritgerð sína í lífeðlisfræði
við Sorbonne-háskóla í París.
1945 Geirþrúður Hildur Bernhöft
lýkur guðfræðiprófi frá Háskóla
Íslands, fyrst kvenna.
www.kvennasogusafn.is