Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 110
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
„Ég er hreinlega ekki
farin að hugsa út í það,
það er svo svakalega
margt sem ég þarf að
huga að núna í kringum
stóra daginn.“
LEIKKONAN KATE BOS-
WORTH ER GREINILEGA EKKI
MJÖG STRESSUÐ YFIR STÓRA
DEGINUM. HÚN GENGUR UPP
AÐ ALTARINU EFTIR NOKKRAR
VIKUR TIL ÞESS AÐ GIFTAST
ÁSTINNI SINNI, LEIKSTJÓR-
ANUM MICHAEL POLISH.
MEÐ FATAMARKAÐ
Á KAFFIBARNUM
Í dag mun Ungmennaráð UN Women
kveðja sumarið með fatamarkaði á
Kaffibarnum. Markmið markaðsins
er að safna peningum fyrir starfið og
vekja athygli á málstað UN Women.
Skipuleggjendur viðburðarins eru
þær Anna Guðrún Aradóttir,
Elínborg Kolbeinsdóttir,
Auður Edda og Ásdís
Birna. Hægt er að
gefa fötin sín til
Ungmennaráðsins,
sem verður með
bás á staðnum.
Markaðurinn byrjar
kl. 15 og stendur yfir
til kl. 18.
- mmm
ROBBINS SPILAR Á KEXI
Miles Guthrie Robbins, sonur
Hollywood-parsins fyrrverandi
Tims Robbins og Susan Sarandon,
heldur tónleika á Kexi Hosteli í kvöld.
Robbins heimsótti Ísland fyrr í sumar
með móður sinni og heillaðist svo
mikið af Kexi að hann vildi endilega
fá að spila á staðnum. Góðfúslega var
orðið við þeirri beiðni en fregnir
herma að hann ætli
að gefa út plötu á
næstunni. Ármann
úr hljómsveitinni
Who Knew sér um
upphitun og
hefst giggið
upp úr klukkan
20. - fb
„Þetta er frábært starf. Hér er allt-
af eitthvað nýtt að gerast og enginn
dagur eins. Fyrir ári síðan var öllu
útliti blaðsins breytt og það hefur
líka verið ofboðslega skemmtilegt
að þróa það áfram,“ segir Þóra
Valdimarsdóttir, sem hefur starfað
sem aðstoðartískuritstjóri danska
tímaritsins Costume undanfarin
tvö ár.
Þóra er fædd á Íslandi en hefur
búið í Danmörku frá fjögurra ára
aldri. Hún stundaði nám í tísku-
viðskiptafræði við University of
the Arts London, en Central Saint
Martins og London College of
Fashion eru meðal annars undir
þeim hatti. Þóra flutti aftur frá
London til Danmerkur eftir fæð-
ingu sonar síns og hóf þá störf hjá
tískutímaritunum Eurowoman og
Euroman þar sem hún starfaði um
hríð áður en hún flutti sig um set
til Costume.
„Ég geri meðal annars tísku-
þætti og annað tískutengt efni fyrir
blaðið og skrifa svo stundum minni
greinar líka,“ segir Þóra þegar hún
er spurð út í starf sitt. Hún eign-
ar eldri systur sinni það að hafa
kveikt þennan óþrjótandi tísku-
áhuga sem hún býr yfir.
„Eva, systir mín, er sú sem leiddi
mig inn á þessa braut. Við vorum
alltaf að róta í fataskápnum henn-
ar mömmu þegar við vorum litlar
og klæða okkur upp. Eva bjó líka
mikið erlendis og þegar hún kom
heim var hún alltaf klædd í nýjustu
tísku, þannig ég held að hún beri
ábyrgð á þessum áhuga mínum,“
segir hún hlæjandi en systir henn-
ar heldur úti bloggsíðunni Dusty-
reykjavik.blogspot.dk.
Skandinavísk hönnunarmerki á
borð við Acne, i By Malene Birger
og Sand hafa verið vinsæl lengi og
segir Þóra að gaman sé að fylgj-
ast með og fjalla um velgengni
þeirra á alþjóðavísu, en samhliða
því að sinna starfi sínu hjá Cost-
ume heldur Þóra úti bloggsíðunni
Hashtaghabits.com ásamt vin-
konu sinni. Síðan er ný af nálinni
en hefur öðlast miklar vinsældir
á skömmum tíma. „Þetta er tísku-
blogg en við fjöllum aðeins um
vörur sem eru fáanlegar þá stund-
ina. Þetta er tímafrek en mjög
skemmtileg vinna,“ segir hún.
sara@frettabladid.is
Stóra systir ábyrg
fyrir tískuáhuganum
Þóra Valdimarsdóttir starfar sem aðstoðartískuritstjóri hjá danska tískuritinu
Costume. Hún segir starfi ð stórskemmtilegt og mjög fj ölbreytt.
SKEMMTILEGT STARF Þóra Valdimarsdóttir starfar sem aðstoðartískuritstjóri hjá
Costume í Danmörku. Hún segir starfið mjög skemmtilegt og fjölbreytt. MYND/ANJA
➜ Costume er gefið
út af Benjamin Media,
en útgáfufyrirtækið
gefur einnig út tímarit á
borð við Bo Bedre, Bolig
Magasinet og Woman.
www.gardabaer.is
Skólabyrjun haustið 2013
Grunnskólar í Garðabæ verða settir föstudaginn
23. ágúst nk.
Skólasetning og/eða skólaboðun fyrir nemendur
og foreldra er auglýst á heimasíðum skólanna.
Þar er einnig að finna hagnýtar upplýsingar um
upphaf kennslu og innkaupalista.
Vefir grunnskóla Garðabæjar:
www.alftanesskoli.is
www.flataskoli.is
www.gardaskoli.is
www.hjalli.is/barnaskolinn
www.hjalli.is/bskeldri/
www.hofsstadaskoli.is
www.internationalschool.is
www.sjalandsskoli.is
Deildarstjóri skóladeildar
GRUNNSKÓLAR
Í GARÐABÆ
Fræ›slu- og menningarsvi›
HAMBORGARABÚLLAN
VINSÆL Í LONDON
Ekkert lát virðist vera á vinsældum
Hamborgarabúllunnar í London. Fullt
hefur verið út úr dyrum alla daga frá
opnun og nær röðin langt út á götu.
Fræga fólkið í London virðist einstak-
lega hrifið af matnum og á meðal fasta-
kúnna staðarins eru Matt Stone, sem
skrifar South Park-þættina,
Tim Westwood, sonur
fatahönnuðarins Vivi-
enne West wood og
Chloé Green, sem
er dóttir Philips
Green, eiganda
tískukeðjunnar
Topshop. - aso
„Ég hlakka rosalega til að fara út,
ég hef aldrei komið þarna áður,“
segir Gerður Kristný skáld, sem
fer ásamt Kristínu Eiríksdóttur
skáldi, á ljóðahátíð í Norður-Nor-
egi í vikunni, í boði Huang Nubos.
Menningarsjóðurinn China-Ice-
land Cultural Fund stendur fyrir
ljóðahátíð í Finnmörku í þessari
viku. Þetta er í þriðja sinn sem efnt
er til ljóðahátíðar á vegum hans.
Sú fyrsta var haldin í Reykjavík
2010, önnur í Peking og Huangshan
í Kína 2011.
Markmiðið með sjóðnum er að
stuðla að menningarlegu samstarfi
milli Kína og Íslands og er áhersla
lögð á bókmenntir, einkum ljóðlist.
Hvatamaður að stofnum sjóðsins
og fjárhagslegur bakhjarl er kín-
verski kaupsýslumaðurinn og ljóð-
skáldið Huang Nubo og fyrirtæki
hans, Zhongkun Group í Peking.
Ljóðahátíðin í ár verður haldin á
heimaslóðum Sama, í Inari í Norð-
ur-Finnlandi og Kirkenes í Norður-
Noregi, og er yfirskrift hennar
Crossing the Boundaries of Poetry
and Culture. Til hátíðarinnar
er boðið fjórum Sama-skáldum,
tveimur finnskum og tveim-
ur íslenskum. Þá sækja hátíð-
ina sex kínversk ljóðskáld, auk
gagnrýnenda og útgefenda.
Sama-skáldin eru þau Inger-
Mari Aikio-Arianaick, Rose-
Marie Huuva, Sigbjørn Skåden
og Synnøve Persen. Frá Finn-
landi koma Saila Susiluoto og
Tua Forsström og frá Íslandi
Gerður Kristný og Kristín
Eiríksdóttir. Kínversku ljóð-
skáldin eru Gong Shuting,
Huang Nubo sjálfur, Yang Ke,
Yang Zi, Gao Xiuqin og Hu
Xudong. - ósk
Íslensk skáld í Noregi í boði Nubos
Gerður Kristný og Kristín Eiríksdóttir skáld fara fyrir hönd Íslands á ljóðahátíð.
LIÐTÆKT LJÓÐSKÁLD Huang Nubo er
hugfanginn af ljóðlist. NORDICPHOTOS/GETTY