Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 88
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 44
„Við vígðum þessa sund-
laug 8. ágúst 1943. Þá var
sund orðið skyldunáms-
grein bæði í barnaskól-
um og æðri skólum og
ógerningur að fullnægja
þeim kröfum öðruvísi en
hafa laug,“ segir Stefán
Þorleifsson íþróttakenn-
ari. Hann beitti sér fyrir
því af afli að ráðist var
í byggingu Sundlaugar
Norðfjarðar sem er með
elstu mannvirkjum á
Austurlandi.
„Sundlaugarbygging-
in var stórt verkefni og
hefur haft ótvírætt gildi
fyrir Norðfirðinga frá
upphafi. Hún var reist við
hlið díslirafstöðvarinnar
og við hituðum hana upp
með kælivatninu af aflvél
stöðvarinnar framan af,“
segir Stefán sem annaðist
sundþjálfun hjá íþrótta-
félaginu Þrótti og segir
Norðfirðinga hafa átt
ágætt sundfólk á lands-
mælikvarða,“ segir hann.
„Mitt aðalstarf var samt
að vera forstöðumaður
sjúkrahússins hér í 30 ár
en sinnti þá íþróttakennsl-
unni í hjáverkum.“
Stefán verður 97 ára á
morgun. Hann er engum
öldungi líkur heldur
stundar íþróttir af kappi,
þar á meðal sund. „Ég fer
venjulega í sund svona
fimm sinnum í viku,“
segir hann. „Ég er líka
mjög mikið í golfi og iðka
skíðaíþróttina á veturna,
er svolítið á gönguskíðum
en mest á svigskíðum og
þá í Oddskarðinu.“
gun@frettabladid.is
Sundlaugin hefur haft ótvírætt gildi
fyrir Norðfi rðinga frá upphafi
Því er fagnað í Neskaupstað á morgun að 70 ár eru síðan Sundlaug Norðfj arðar var formlega vígð. Einn af forvígismönnum hennar og
föstum gestum alla tíð er Stefán Þorleifsson íþróttakennari. Hann verður 97 ára á morgun en lætur ekki deigan síga í íþróttaiðkuninni.
ELDSPRÆKUR
Stefán er
að nálgast
aldarafmæli en
syndir, spilar golf
og skíðar eins
og ungur maður.
Þessi mynd var
tekin við laugina
í gær. Eins og
sjá má hefur
hún verið færð
til nútímahorfs.
MYND/ARNÞÓR INGI
HERMANNSSON
1953 Sundmót
hafa oft verið
haldin í Sundlaug
Norðfjarðar.
MYNDIR/FJARÐARBYGGÐ
GÓÐVIÐRI Sund-
laugin hefur haft
mikla þýðingu
fyrir mannlífið í
Neskaupstað frá
upphafi.
FORSETINN Í HEIMSÓKN Laugin er eitt af því sem Norðfirðingar eru stoltir af í bænum sínum. Hér eru
hátíðahöld við hana í tilefni af heimsókn forseta Íslands árið 1954.
HÁTÍÐISDAGUR Bæjarbúar á Norðfirði voru prúðbúnir í laugarstúkunni árið 1953 enda gegnir laugin lykil-
hlutverki á hátíðar- og tyllidögum, svo sem á sjómannadaginn og þjóðhátíðardaginn.
VETUR Skaflarnir
á laugarbakka-
num benda til
að vatnið hafi
ekki verið of
heitt veturinn
1951 en stúlkur-
nar láta það ekki
á sig fá.