Fréttablaðið - 17.08.2013, Qupperneq 80
17. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 36
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Brandarar
er valinn úr þátttakendum í sumarlestri
Borgarbókasafns og Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur.bókaormur vikunnar
Hvers vegna hleypur þú í ár?
Ég ætla að taka þátt í Reykja-
víkurmaraþoninu af því að mig
langar að safna pening fyrir
líknardeildina í Kópavogi. Pabbi
minn dó þar í nóvember og allir
á líknardeildinni voru svo góðir
við okkur.
Ertu búin að setja þér mark-
mið um tíma og slíkt? Já, að ná
í mark áður en þeir loka mark-
inu. Og vera kannski fljótari en
síðast.
Hefurðu hlaupið svona langa
vegalengd áður? Já, í fyrra
hljóp ég 10 kílómetra með
afa Sigga og Helgu frænku.
Við vorum stór hópur af bestu
vinum og ættingjum pabba sem
hlupum fyrir hann. Þá vorum
við að hlaupa og reyna að berj-
ast saman við krabbameinið.
Ertu ekkert hrædd um að
verða þreytt? Nei, nei. Þá bara
hvíli ég mig smá.
Þekkirðu einhverja fleiri
krakka sem ætla að hlaupa?
Já, Helga Ísold frænka mín og
Ásta Rún vinkona mín ætla að
hlaupa með mér.
Í hvaða skóla ertu og í hvaða
bekk? Ég er í Öldutúnsskóla og
er að fara að byrja í 5. bekk.
Hvað er skemmtilegast að
læra? Mér finnst allt skemmti-
legt en það er skemmtilegast
að vinna alls konar verkefni í
hópavinnu.
Er gaman að búa í Hafnar-
firði? Já, ég þekki svo marga
krakka þar og stutt að labba í
allt.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Dans, hestar og leiklist. Ég er
að æfa og keppa í samkvæmis-
dönsum. Svo á ég einn hest
með Helgu frænku og hef farið
á fullt af reiðnámskeiðum.
Hefurðu hugmynd um hvað
þig langar til að verða þegar
þú verður fullorðin? Flug-
maður eins og pabbi minn var,
fatahönnuður og dansdómari.
Kannski ljósmyndari líka.
Hleypur fyrir pabba
Selma Lind Árnadóttir, sem er að fara að byrja í 5. bekk, hleypur 10 kílómetra í
Reykjavíkurmaraþoninu fyrir líknardeildina í Kópavogi þar sem pabbi hennar lést.
HLEYPUR
Árni, pabbi Selmu
Lindar, lést á líknar-
deildinni í Kópa-
vogi í nóvember
síðastliðnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvað heitir þú fullu nafni og
hvað ertu gömul? „Ég heiti Gígja
Karítas Thorarensen, er tíu ára en
að verða ellefu í nóvember.“
Ertu mikill lestrarhestur? „Já,
ég er ROSALEGA MIKILL lestrar-
hestur.“
Hvenær lærðir þú að lesa? „Ég
lærði að lesa smá fyrst fimm ára
og svo alveg í 1. bekk.“
Hvað er skemmtilegt við að lesa?
„Bækurnar sem ég les eru svo
skemmtilegar, svo finnst mér svo
róandi að lesa.“
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? „Já, ég
man það vel, það var Stubbur.“
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? „Mér finnst
langar og ævintýralegar bækur
skemmtilegastar.“
Hvaða bók lastu síðast og hvern-
ig var hún? „Ég las Stóri glugg-
inn eftir Lemony Snicket, hún var
frábær.“
Í hvaða hverfi býrð þú? „Ég bý
miðsvæðis í Reykjavík, sem er
Vogahverfi 104.“
Í hvaða skóla gengur þú? „Ég
geng í Vogaskóla.“
Hvaða námsgrein er skemmti-
legust? „Mér finnst stærðfræði og
íslenska skemmtilegust.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Áhugamálin mín eru að lesa,
vera með vinum mínum, elda mat,
pirra systur mína, verja tíma með
fjölskyldunni minni og spila blak.“
Bragi Halldórsson
57
„Hér er spurt hvor línan sé lengri, A til B eða A til D,“ sagði Kata.
„Er það ekki augljóst?“ bætti hún við. Lísaloppa horfði nokkra stund
á línurnar. „Nei, ég er ekki alveg viss,“ sagði hún með semingi.
„Kannski væri best að mæla þær með reglustiku?“ bætti hún við.
Sérð þú hvor línan er lengri, A til B eða A til D?
SVAR: Þær eru jafn langar, prófaðu að mæla þær með reglustiku.
A
B
D
Sigga: Hvernig stendur á því að þú veist allt um nágrannana?
Gunna: Ég passaði páfagaukana þeirra um síðustu helgi.
Mamma: Af hverju setur þú bangsann þinn inn í frysti, Halli?
Halli: Af því mig langar í ísbjörn.
Kennarinn: Eftir hverjum ert þú skírður, Hans?
Hans: Eftir spænska kónginum.
Kennarinn: En hann heitir ekki Hans.
Hans: Jú, hans hátign.
Faðirinn: Hagaðirðu þér vel í skólanum í dag, Helgi minn?
Helgi: Hvort ég gerði, enda lítið hægt að gera af sér þegar maður er
látinn standa úti í horni allan daginn.