Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 8
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is
Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís
og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
NOREGUR Allt stefnir í að vinstri
stjórn Jens Stoltenbergs missi þing-
meirihluta í kosningum á mánudag.
Hægri flokkunum fjórum er spáð
ríflega 55 prósentum atkvæða, en
„rauðgrænu“ flokkunum þremur er
spáð innan við 40 prósentum.
Hinn umdeildi Framfara flokkur,
sem aldrei hefur náð að komast í
ríkisstjórn þrátt fyrir vinsældir
meðal kjósenda, virðist nú í fyrsta
sinn eiga góða möguleika á þátttöku
í stjórn með hægri flokkunum.
Framfaraflokkurinn var lengi
helst þekktur fyrir stóryrtar yfir-
lýsingar Carls I. Hagen, þáver-
andi leiðtoga flokksins, sem óspart
reyndi að veiða atkvæði út á ótta
almennings við útlendinga og glæpi.
Siv Jensen, sem tók við for-
mennsku í flokknum árið 2006,
hefur reynt að breyta ímynd flokks-
ins og leggur áherslu á hefðbundna
frjálshyggjustefnu, sem gengur út
á að draga úr umsvifum ríkisins og
efla frelsi einstaklingsins.
Þetta hefur borið þann árangur
að Erna Solberg, leiðtogi Hægri-
flokksins, hefur nú ekkert lengur
að athuga við samstarf við Fram-
faraflokkinn.
Stoltenberg, sem er formaður
Verkamannaflokksins, varar hins
vegar eindregið við miklum sam-
drætti í ríkisútgjöldum og hefur
enn ekki gefið upp vonina um að
vera áfram í stjórn, jafnvel þótt það
verði minnihlutastjórn.
gudsteinn@frettabladid.is
Hægri flokkunum er spáð stórsigri
Rauðgræna stjórnin í Noregi hangir á bláþræði. Þingkosningar verða á mánudaginn og allt bendir til þess að þá missi stjórn Jens Stolten-
berg meirihluta sinn. Erna Solberg verður líklega næsti forsætisráðherra. Hinn umdeildi Framfaraflokkur gæti verið á leið í ríkisstjórn.
Nokkuð uppnám varð í Noregi í gær þegar Carl I. Hagen, fyrrverandi
formaður Framfaraflokksins, tjáði sig óvænt á Facebook-síðu sinni og
sagði stjórn Stoltenbergs bera ábyrgð á morði á rúmlega tvítugri stúlku.
Hann eyddi færslunni stuttu síðar eftir hörð viðbrögð og athugasemdir,
meðal annars frá félögum í Framfaraflokknum. Hann sagðist fallast á að
færslan hefði verið dálítið harkalega orðuð, en að hann stæði samt enn
við meginatriðið, sem væri að vægar refsingar og langar biðraðir eftir
fangelsisplássi byðu heim hættunni á að dæmdir afbrotamenn sem ganga
lausir fremdu alvarlega glæpi.
Hagen sýnir gamalkunna takta
Fylgi norsku flokkanna í skoðanakönnunum
JENS STOLTEN-
BERG Verkamanna-
flokknum hefur
verið spáð um eða
innan við 30 pró-
sentum atkvæða,
sem hefði í för með
sér að stjórnarflokk-
arnir misstu meiri-
hlutann.
ERNA SOLBERG
Leiðtogi Hægri-
flokksins þykir eiga
góða möguleika
á að verða næsti
forsætisráðherra
Noregs.
SIV JENSEN Tók
við formennsku
af Carl I. Hagen
fyrir tæpum áratug
og hefur reynt að
losa flokkinn við
ímynd lýðskrums og
útlendingahaturs.
➜ Hægri flokkunum er spáð
ríflega 55 prósentum atkvæða,
en „rauðgrænu“ flokkunum er
spáð innan við 40 prósentum.
FERÐAÞJÓNUSTA „Aðsóknin er til
marks um að ferðamannatíma-
bilið er að lengjast, sem er afar
jákvæð þróun ferðaþjónustu
á Íslandi,“ segir Magnea Guð-
mundsdóttir, kynningarfulltrúi
Bláa lónsins, þar sem tekið var
á móti um tvö þúsund gestum í
gær.
Magnea segir að á góðum degi
um hásumar komi mest um þrjú
þúsund manns í Bláa lónið. Í gær
hafi verið gestir af skemmti-
ferðaskipunum Caribbean Prin-
cess og Adventure of the Seas,
auk annars hóps sem átti bókað.
Svipaður fjöldi hafi mætt á
einum degi í Bláa lónið í septem-
ber í fyrra. Allt árið 2012 voru
gestirnir 585 þúsund.
Að sögn Magneu gekk allt vel
fyrir sig þrátt fyrir mannfjöld-
ann sem fyllti alla ganga.
„Nokkrir gestir áttu ekki von
á að þurfa að bíða. En starfs-
fólk okkar gerir sitt besta til að
gestum líði vel og var þeim sem
þurftu að bíða sem lengst, það er
í um klukkustund, boðið upp á ís
og kaffi,“ segir Magnea. - gar
Mikill straumur frá skemmtiferðarskipum í gær:
Örtröð í Bláa lóninu
Í BLÁA LÓNINU Gestir voru ekki að flýta sér í blíðviðrinu í Bláa lóninu í gær.
MYND/ATLI KRISTJÁNSSON
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Þinglýstum kaupsamn-
ingum um fasteignir á höfuð-
borgar svæðinu fækkaði um 14,8
prósent milli mánaða í ágúst og
velta minnkaði um 24,3 prósent.
Miðað við ágúst í fyrra fjölgaði
þeim hins vegar um 9,4 prósent og
velta jókst um 16,9 prósent.
Á vef Þjóðskrár kemur fram að
í ágúst hafi kaupsamningar verið
476 talsins. „Heildarvelta nam 14,7
milljörðum króna og meðalupp-
hæð á hvern kaupsamning var 30,9
milljónir króna.“ - óká
Samdráttur milli mánaða:
Færri keyptu
eignir en í júlí
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær Ingvar Dór Birgisson, 28 ára, í þriggja
og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga fjórtán
ára gamalli unglingsstúlku í apríl árið 2010.
Ingvar kynntist stúlkunni á samskipta-
miðlum og þau mæltu sér mót í kjölfarið í
fleira en eitt sinn. Í eitt skiptið áreitti hann
hana kynferðislega með því að kyssa hana,
strjúka líkama hennar innanklæða og leita
eftir kynferðislegu samneyti við hana.
Í seinni skiptið þröngvaði hann henni til
samræðis og hætti ekki þrátt fyrir að stúlkan
bæði hann ítrekað um það og segði honum að
hann væri að meiða hana.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að Ingvar hafi ekki sætt refsingu áður.
„Brot ákærða eru alvarleg. Við ákvörðun
refsingar er litið til þess að hann braut gegn
mjög ungri stúlku, á viðkvæmu þroskaskeiði
hennar.“ Hann eigi sér engar málsbætur. - sh
Ingvar Dór Birgisson dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Nauðgaði fjórtán ára gamalli stúlku
Eftir þingfestingu málsins síðasta sumar fór
Ingvar af landi brott og til Cayman-eyja, að því
er segir í dómnum. Hann kom jafnframt þeim
boðum áleiðis til dómsins að hann væri ekki á
leið til landsins í bráð. Gefin var út handtöku-
skipun á hendur honum í október í fyrra. Hann
mætti svo í dóminn 10. júní síðastliðinn. Þetta
bættist við tafir á málinu í meðförum lögreglu.
Stakk af til Cayman-eyja
➜ Rauðgræna
ríkisstjórnin
VERKAMANNAFLOKKURINN
Leiðtogi: Jens Stoltenberg
MIÐFLOKKURINN
Leiðtogi: Liv Signe Navarsete
SÓSÍALÍSKI VINSTRIFL.
Leiðtogi: Audun Lysbakken
í síðustu
þingkosningum
í síðustu
þingkosningum
spáð nú
spáð nú
35,4%
6,2%
6,2%
28-
29%
4%
5%
Rauðgræna ríkisstjórnin hefur verið
við völd síðan 2005 en Miðflokkurinn
hefur áður setið í miðjustjórnum með
Kristilega þjóðarflokknum og Venstre.
FRAMFARAFLOKKURINN
Leiðtogi: Siv Jensen
HÆGRIFL. VENSTRE
Leiðtogi: Trine Skei Grande
HÆGRIFLOKKURINN HØJRE
Leiðtogi: Erna Solberg
KRISTILEGI ÞJÓÐARFL.
Leiðtogi: Knut Arild Hareide 5,5% 5%
22,9%
3,9%
17,2%
15-
16%
5%
30%➜ Borgaraleguflokkarnir
HÉRAÐSDÓMUR Ingvar Dór Birgisson var í gær
dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun.