Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 12
6. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
www.volkswagen.is
Fullkominn ferðafélagi
Tiguan kostar aðeins frá
5.360.000 kr.
Volkswagen Tiguan eyðir aðeins frá 5,8l /100 km
Volkswagen Tiguan
Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél
og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion
tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og
hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan
og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
á
lfe
lg
ur
, s
va
rt
ir
þ
ak
bo
ga
r
og
lj
ós
ka
st
ar
ar
í
fr
am
st
uð
ar
a
.
FRÉTTASKÝRING
Hvers mega Íslendingar vænta komi til olíu-
vinnslu á Drekasvæðinu?
„Leitið og þér munið finna, og þar með búa
til verðmæti,“ segir Morten Lindbæck, sér-
fræðingur Fondfinans í Noregi, að sé starf-
semi olíufyrirtækja í hnotskurn. Grunnurinn
að geiranum öllum sé að finna olíu og gas. Jan
Mayen-hryggurinn og þar með Dreka svæðið
segir hann að sé í þriðja flokki svæða sem
leitað sé á.
Lindbæck fjallaði um olíuiðnaðinn í Noregi
og nokkrar grunnreglur sem fyrirtæki í olíu-
leit þurfa að viðhafa á fundi VÍB um möguleika
Íslendinga í þeim geira í Hörpu í gærmorgun.
Í fyrsta flokki leitarsvæða segir Lindbæck
að séu þekkt svæði þar sem olía hafi fundist
áður í vinnanlegu magni, líkt og sé undan
ströndum Noregs. Þau nefnir hann „greiðfær
Júrasvæði“, eða Jurassic fairway upp á ensku.
Í öðrum flokki eru svo hliðarsvæði (e. step out
exploration) og í þeim þriðja ónumin lönd (e.
frontier exploration) þar sem óvissa sé mest
um afrakstur.
Norska ríkið styrkir leit
„Vegna þess að ekki er búið að bora neitt á Jan
Mayen-hryggnum fellur hann í flokk ónuminna
landa,“ segir Morten Lindbæck. „Óvissa er
þar samt kannski heldur minni en á öðrum
ónumdum svæðum vegna þess sem vitað er
um jarðfræði svæðisins og olíuleka sem vart
hefur verið á sjávarbotninum.“
Norska ríkið, segir Lindbæck, hefur smám
saman aukið stuðning sinn við olíuleitarfyrir-
tæki í gegnum þá umgjörð sem slíkum fyrir-
tækjum er búin þar í landi. Fyrsta kastið væru
ríki þó upp á einkafyrirtæki komin þegar
kæmi að leit og borun eftir olíu og gasi.
Núna jafni hins vegar norska ríkið stöðu
olíuleitarfyrirtækja og greiði fyrir komu nýliða
á markaðinn með því að fá í endurgreiðslu
skatts þann kostnað sem lagt væri í við olíuleit.
„Þetta fyrirkomulag á eftir að ýta undir áhuga
á olíuleit á Jan Mayen-svæðinu þegar Noregur
opnar fyrir hana.“
Fjórar holur af fimm þurrar
Í erindi sínu lagði hann áherslu á að fyrirtæki
sem ætluðu að leggja fyrir sig olíuleit þyrftu
að vera afar vel fjármögnuð, dreifa áhættu í
starfsemi sinni og beita köldu mati á arðvæn-
leika þeirra verkefna sem lagt væri í. Reynslan
sýndi að fjórar af hverjum fimm boruðum
holum væru þurrar. Vandinn væri hins vegar
að ekki væri hægt að gefa sér í hvaða röð
boraðar holur gæfu af sér.
Þá væri mikilvægt fyrir olíuleitarfyrirtæki
að nota vinnsluhæfar holur til að renna stoðum
undir reksturinn og frekari leit. Óráð væri að
sækja fé á markað fyrr en reksturinn væri orð-
inn nokkuð stöðugur og stöndugur.
Yfirskrift fundarins var „Er nýtt olíu ævin-
týri í uppsiglingu?“. Fjallað var um hvaða
tækifæri kynnu að bíða Íslendinga í olíuleit og
vinnslu úti fyrir ströndum landsins og víðar.
Auk Lindbæcks fluttu erindi Gunnlaugur
Jónsson, forstjóri Eykon Energy, og Eyjólfur
Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits.
Eykon hefur tryggt sér leyfi til leitar á
Drekasvæðinu og skoðar um leið aðra kosti
til þess að dreifa áhættu í starfseminni. Með
því að vera í Noregi geti Eykon fengið endur-
greidd frá norska ríkinu 78 prósent kostnaðar
við leit að olíu.
Gunnlaugur segir Drekasvæðið mikið rann-
sakað og líklega olíu að finna þar. Beggja
vegna, á Grænlandi og við Noreg, séu olíusvæði
sem rekið hafi frá Jan Mayen- hryggnum.
„Þetta er eins og kaka sem hefur verið skorin
í þrennt.“ olikr@frettabladid.is
Gróðavon mikil á ónumdu svæði
Drekasvæðið er í flokki áhættusömustu leitarsvæða í olíuvinnslu. Sterkar vísbendingar eru þó um að þar sé olíu að finna. Forstjóri Mann-
vits varar við gullæði. Enn á eftir að sannreyna að olía finnist. Fjárfesting á svæðinu gæti þó hlaupið á milljarðatugum eftir nokkur ár.
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, kveðst nema örlítil merki gullæðisstemningar í
tengslum við umræðu um olíuleit á íslensku hafsvæði. „Við erum kannski ekki farin að hlaupa
en örugglega farin að ganga rösklega,“ sagði hann á fundi VÍB í Hörpu í gær. Hann áréttar að
þótt sterkar vísbendingar séu um að olíu sé að finna á Drekasvæðinu eigi alveg eftir að sann-
reyna það. „Þangað til skulum við ganga hægt um gleðinnar dyr.“
Möguleikarnir og tækifæri landsins séu hins vegar mikil. „Við getum verið að horfa á að fjárfest-
ing og þar með þjónusta í tengslum við leit eða leyfi sem búið er að veita geti farið frá því að vera
nokkrir tugir milljóna á næsta ári upp í að vera 40 til 50 milljarðar króna í lok þess tímabils, eftir sjö
til tíu ár,“ segir Eyjólfur Árni. Núna skipti hins vegar máli að móta framtíðarumgjörð og áætlun um
hvernig standa eigi að hlutunum. Stöðugleiki og gagnsæi skipti þá öllu máli. Svara þurfi því hvernig
skattlagningu verði háttað, hvort koma eigi hér á ríkisolíufélagi eða hafa á annan hátt. „Það vantar
enn á að stjórnvöld marki sér stefnu um hvernig við ætlum að gera þetta næstu áratugina.“
Komið að stjórnvöldum að marka stefnu
Í HÖRPU Eyjólfur Árni Rafnsson forstjóri Mannvits, Gunn-
laugur Jónsson forstjóri Eykon Energy og Morten Lind-
bæck sérfræðingur Fondfinans í Noregi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA