Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 20
6. september 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Þ egar fréttir bárust af því í síðustu viku að saman- lagður hagnaður endurreistu viðskiptabankanna þriggja á fyrri helmingi ársins næmi tæplega 33 millj- örðum króna stóð ekki á hneykslunarandvörpunum og fyrirsögnunum um „ofsahagnað“ bankanna. Og gamal- kunnugum röksemdum um að eitthvað af þessum peningum hefði nú frekar átt að verða eftir hjá viðskiptavinunum. Vissulega eru 33 milljarðar miklir peningar. En þegar vel er skoðað er ekkert óeðlilegt við hagnað bankanna; um það voru sérfræðingar í fjármálamörk- uðum sem Fréttablaðið ræddi við sammála. Hagnaðartölurnar eru háar, en bankarnir eru líka með stærstu fyrirtækjum á landinu, eigið fé mikið og arðsemin er engan veginn umfram það sem telja má eðlilega ávöxtunarkröfu. Afkoma bankanna markast enn af afleiðingum hrunsins að einhverju leyti og hluti hagnaðarins er til kominn vegna endur- mats á eignasöfnum til hækkunar. Það eru góðar fréttir; fleiri viðskiptavinir bankanna geta þá borgað lánin sín til baka en áður var talið. Það er til marks um að efnahagslífið sé að rétta úr kútnum. Um leið þýðir þetta að bankarnir þurfa að gera betur til lengri tíma litið og lækka hjá sér rekstrarkostnað til að halda viðunandi arðsemi. Í úttektum Bankasýslu ríkisins hefur ítrekað komið fram að þrátt fyrir að bankarnir hafi dregið saman seglin eftir hrun séu þeir of dýrir í rekstri, með of mörg útibú og of margt starfsfólk miðað við banka í nágranna- löndunum. Röksemdina um að bankarnir hefðu átt að skilja meiri pen- inga eftir hjá viðskiptavinunum og hagnast minna má gjarnan setja í samhengi núverandi eignarhalds á bönkunum. Það eru nefnilega ekki bara vondir útlendir vogunarsjóðir sem græða á íslenzkum almúga. Landsbankinn á mest í samanlögðum hagn- aði bankanna á fyrri helmingi ársins, rúma fimmtán milljarða. Stærsti eigandi bankans með nærri 98 prósenta hlut er íslenzkir skattgreiðendur. Það er þeirra hagur að afkoma bankans sé góð. Sama á við um hina bankana og af sömu ástæðu, því að við eigum saman 13 prósent í Arion-banka og fimm prósent í Íslandsbanka. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eiga íslenzkir skattgreiðendur hlutfallslega meira undir í bönkum en almenningur í nágrannalöndum á borð við Bretland og Holland. Á meðan skattgreiðendur eiga þessa hluti er mikilvægt að rekstur bankanna skili arði. Eigi að fást gott verð fyrir þá við sölu, sem er á dagskrá stjórnvalda, þarf arðsemin líka að vera viðunandi. Sterkt fjármálakerfi er ein af forsendum endurreisnar efna- hagslífsins á Íslandi og tiltrúar umheimsins á því. Það er hagur okkar allra að arðsemi bankanna sé viðunandi. Það á reyndar við um öll fyrirtæki; við hljótum fyrir löngu að vera vaxin upp úr því að hneykslast á að atvinnurekstur skili eigendum sínum viðunandi arði. Ekkert er óeðlilegt við góða afkomu banka: Ágætur ofsahagnaður Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Með nesti og nýja skó Sigmundur Davíð Gunnlaugsson brá undir sig betri fætinum í vikunni og hélt til Svíþjóðar á fund Bandaríkja- forseta og fleiri leiðtoga. Fjölmiðlar vissu vart í hvorn fótinn þeir áttu að stíga þegar vakin var athygli á óhefð- bundnum skóbúnaði ráðherrans, en drógu hvergi lappirnar og sögðu skilmerkilega frá hvernig á þessu stóð. Einhverjir hafa gert því skóna að fréttaflutningurinn hafi verið liður í því að níða skóinn af forsætisráðherra. Enginn fótur er fyrir því. Enginn tvístígandi Þótt Sigmundur hafi gefið Bandaríkjafor- seta undir fótinn með heimboði virðist hann hafa staðið í lappirnar í málefnum Sýrlands, þar sem skórinn helst kreppir í alþjóðasamfélaginu, og ekki látið hernaðarveldið í vestri vaða yfir sig á skítugum skónum. Hann vill að stigið verði varlega til jarðar og ákveðið skuli á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hvort Assad verði tekinn á löpp eða hann muni eiga fót- um fjör að launa. Einhverjir sem telja að lappa þurfi upp á samskipti Íslands við Bandaríkin, meðal annars vegna tengsla okkar við Wikileaks, kunna hins vegar að líta svo á að Sigmundur hafi þarna skotið sig í fótinn. Í sögubækurnar Að öllu gamni slepptu er auðvitað leiðindamál að forsætisráðherra þjóðarinnar skuli hafa þurft að leita á sjúkrahús. Á hinn bóginn hefur hann líklega skráð sig í sögubækurnar sem fyrsti þjóðarleiðtoginn sem hittir Bandaríkjaforseta í ósamstæðum skóm. Raunar man reyndasti blaðaljós- myndari landsins aðeins eftir að hafa hitt einn mann sem svo var ástatt um. Það var Gísli á Uppsölum. Hann var í einum gúmmískó og einum Adidas- strigaskó við sláttu. stigur@frettabladid.is Umferðarteppan sem alltaf myndast kvölds og morgna þegar skólar byrja á haustin ætti að vekja okkur til umhugs- unar. Ef við höldum áfram að þróa byggð- ina lengra í austur mun það auka á þessa umferð og rýra lífsgæði þeirra sem búa í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Grafar- vogi, ekki síður en þeim hverfum sem stofnbrautirnar liggja í gegnum. Það er vegna þess að umferð úr nýju hverfi í austri myndi bætast við umferðina um Ártúnsbrekku, Miklubraut eða Sæbraut til og frá vinnu. Viðbótarbílarnir myndu fylla göturnar, hægja á umferðinni og auka ferðatímann. Þetta eru ein sterkustu umferðarrökin fyrir því að þróa byggðina í Reykjavík inn á við og „þétta hana“. Útreikningar og reynsla sýna að það er eina leiðin til að draga úr umferð, mengun og ferða- tíma innan borgarinnar. Ástæðan er sú að stærstu vinnustaðirnir og skól- arnir eru á miðborgarsvæðinu. Þétting byggðar styttir meðalferðina milli heim- ilis og vinnu og minnkar þannig heildar- umferðina á höfuðborgarsvæðinu. Með þéttingu byggðar er verið að verja lífsgæði þeirra sem búa í okkar góðu úthverfum og komið í veg fyrir alvöru umferðarsultu framtíðarinnar. Sumir hafa haldið því fram að þetta sé öfugt. Að þétting byggðar sé vond fyrir austari hluta borgarinnar. Einfalt dæmi sýnir að þetta er rangt: hvað myndi ger- ast ef við myndum bæta 25.000 manna byggð við á landfyll ingum í sjónum vestan við Seltjarnarnes og beina umferðinni úr því hverfi eftir núverandi götum á nesinu? Jú, umferðin myndi aukast og stíflast og Seltirningar fyndu sannarlega fyrir því. Þetta er nákvæm- lega eins fyrir Árbæ, Breiðholt, Grafar- holt eða Grafarvog ef við bætum við nýjum 25.000 manna hverfum austan við þessi hverfi. Áframhaldandi útþensla byggðar er ógn við þau miklu lífsgæði sem úthverfi Reykjavíkur bjóða. Þess vegna er stefnt að því að þróa borgina inn á við í nýju aðalskipulagi, og þess sérstaklega gætt að það sé ekki gert á kostnað grænna svæða. Græn svæði eru lungu borgar- innar sem við eigum að standa saman um að verja til framtíðar. Umferðarteppan og úthverfi n SKIPULAG Dagur B. Eggertsson formaður borgar- ráðs ➜ Með þéttingu byggðar er verið að verja lífsgæði þeirra sem búa í okkar góðu úthverfum og komið í veg fyrir alvöru umferðarsultu framtíðarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.