Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 21
FÖSTUDAGUR 6. september 2013 | SKOÐUN | 21
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Samkvæmt Hagstofunni eru inn-
flytjendur þriðjungur íbúa á Kjal-
arnesi. Í Breiðholti er hlutfallið
fjórðungur. Hins vegar eru inn-
flytjendur aðeins 2% þeirra sem
búa í Staðahverfi í Grafarvogi.
Svona er þetta í dag en það er
ekki víst að það verði þannig eftir
15 ár. Í frjálsu samfélagi breyt-
ast þessir hlutir hraðar en menn
halda.
Bylgjur innflytjenda gera oft
frábæra hluti fyrir hverfi. Þetta
gerist oftast svona: Hverfi á
undir högg að sækja. Það er ódýrt
að búa þar. Innflytjendur flytja
í hverfið. Innflytjendur opna
veitingastaði. Ungt fólk vill búa í
hverfi með mat. Ungt fólk flytur
í hverfið. Hverfið verður hipp og
kúl. Fólk sem er ekki hipp og kúl
en vill vera það flytur í hverfið.
Íbúðaverð hækkar. Næsta bylgja
innflytjenda þarf að finna sér
nýtt hverfi til að lappa upp á.
Bandaríkin afslöppuð
Stundum er eins og sumum finn-
ist það sérstaklega vond tilfinn-
ing að fólk af öðrum þjóðern-
um hópist saman á einn stað. Af
hverju ætti það að vera svona
slæmt? Í Bandaríkjunum eru
fjölmörg hverfi sem kennd eru
við einhver þjóðarbrot: kínverska
hverfið, ítalska hverfið og svo
framvegis. Mér finnst þetta frek-
ar vera heillandi en hitt.
Það er dýrt að fara til útlanda
þó að það sé skemmtilegt. Búi
maður í New York virðist hins
vegar aldrei langt til útlanda.
Það er aldrei langt í götu með
búðarskrauti á erlendum tungu-
málum, aldrei langt í veitinga-
stað þar sem einhverjir selja
manni mat sem virðist ættað-
ur frá þeirra heimalandi. Það
er aldrei langt í fólk sem talar
annað tungumál reiprennandi.
Kannski er það spurning um
smekk en mér þætti hugmynd
um einhverja útlandaspildu
nálægt heimili mínu heillandi.
Í Japan er skemmtigarður sem
lítur út eins og Plat-Amster-
dam. Það er dálítið skemmtileg
hugmynd, þótt eflaust sé erfitt
að fá hana til að ganga upp án
þess að það verði dálítið mikið
Disney. Lifandi „smá-útlönd“ eru
skemmtilegri. Eitt sinn vorum
við með bandarískan bæ á
Íslandi. Nú er hann farinn. En ég
játa: Ég hefði ekkert á móti því
að fara út að borða í kínverska
hverfinu í Hafnarfirði.
Norðurlönd naga neglur
Hvað sem verður sagt um Banda-
ríkjamenn virðast þeir ekki vera
það djúpt lagstir í allsherjarsam-
félagshönnun að þeir telji það
vera hlutverk sitt að ákveða hve
margir af hverjum þjóðernisupp-
runa megi búa saman á einum
stað. Hér á Norðurlöndunum
virðist þetta valda mörgu, jafn-
vel annars upplýstu, fólki tals-
verðum áhyggjum. Fólk hefur
áhyggjur af því að „það verði
til gettó“ og þá ekki bara vegna
þess að það telur það geta haft
einhverjar neikvæð áhrif á hag
þeirra sem þar búa, heldur vegna
þess að þeim finnst hugmynd um
svona ríki í ríki neikvæð í sjálfu
sér. Menn vilja að fólk aðlagist.
Eins og börnin á leikskólunum
sem fara í fimm daga aðlögun og
eru „aðlöguð“ að henni lokinni.
Ég bjó eitt sinn í Danmörku.
Mér fannst gaman á Nörrebro.
Ég hef þá stundum hugsað hvort
einhver bylgja norræns þjóð-
rembings muni leiða til að fólk
muni einhvern tímann tala um
Nörrebro sem „Gamla-araba-
hverfið“. Og þá ekki út af því að
þeir sem þar búa muni flytja í
úthverfi. Það er niðurdrepandi
þankagangur sem ég reyni ekki
að dvelja lengi við.
Meðfram Wisla-ánni í Kraká
stendur gamall bæjarhluti, Kaz-
imierz, þar sem eitt sinn bjuggu
gyðingar en minna er um þá nú.
Þá sögu þekkja því miður flestir.
Hverfið var í niðurníðslu eftir
stríð en varð svo vinsælt hip-
stera-djammhverfi eftir fall járn-
tjaldsins. Þegar rölt er milli kráa
í þessum gamla bæjarhluta og
litið á þær mörgu hebresku og
jiddísku áletranir sem enn sjást
víða er ekki laust við að maður
verði dálítið leiður. Og ekki
bara leiður vegna þeirrar sögu
sem flestir þekkja heldur leiður
vegna þess að borgin er á sinn
hátt fábrotnari en hún var fyrir
100 árum. Og það er svolítið leið-
inlegt. Fjölbreytni er nefnilega
ágæt.
Gettó eru fín
Ég hefði ekkert á
móti því að fara út
að borða í kínverska hverf-
inu í Hafnarfirði.
Nýlega fengu liðlega 2.000
íbúar í Salahverfi í Kópa-
vogi samhljóða SMS-skeyti:
Vegna bilunar þarf að loka
fyrir heita vatnið þriðju-
daginn 27. ágúst 2013 frá
kl. 09.00 til kl. 17.00 í eftir-
farandi götum …
Skeytin áttu uppruna
sinn hjá Orkuveitunni, sem
nú er farin að beita þess-
ari samskiptaleið til að
láta íbúa vita af því þegar
vatnið fer eða rafmagnið og
vara við hættum sem geta fylgt því.
Langvarasamast er þegar það
verður kaldavatnslaust, sem ger-
ist sem betur fer sjaldan. Þá kemur
bara heitt vatn úr blöndunartækj-
unum. Ef íbúar hafa ekki sett upp
varmaskipti til að draga úr vatns-
hita í krönum, getur t.d. börnum
verið talsverð hætta búin. Þess
vegna er svo mikilvægt að koma
boðum til íbúa.
Um langt árabil hafa tilkynn-
ingar verið bornar í hús þegar
loka hefur þurft fyrir vegna teng-
inga eða viðhalds. Þessi leið virk-
ar ekki sem skyldi. Við fáum sífellt
fleiri kvartanir um að fólk hafi ekki
séð tilkynningarnar og alla jafna
vegna þess að þær hafa drukknað
í öðrum pósti við útidyrnar. Við hjá
Orkuveitunni höfum líka notið vel-
vilja hjá fjölmiðlum, sem birt hafa
í fréttatímum eða á vefjum sínum
tilkynningar um bilanir og sérstak-
lega þær sem skapað geta almanna-
hættu. Fyrir það erum við afar
þakklát.
Markvissari leiðir
Með breyttri samskiptatækni bjóð-
ast markvissari leiðir. Á
Íslandi eru skráð fleiri en
400 þúsund farsímanúm-
er. Landsmenn yfir níu ára
aldri eru hins vegar um
277 þúsund. Það er því nán-
ast hver maður með slíkt tæki og
sumir fleiri en eitt. Það þarf ekki
að fara mörgum orðum um hversu
mikið fljótlegra það er að koma
boðum til íbúa með smáskilaboðum
en að bera út en til þess að þessi
leið virki þurfa símanúmer að vera
skráð á heimilisfang.
Á Bæjarhálsi 1, þar sem höfuð-
stöðvar Orkuveitunnar eru og tvö
önnur fyrirtæki með skrifstofur,
eru skráð nokkur hundruð farsíma-
númer. Það eru númer í eigu fyr-
irtækjanna en í notkun hjá starfs-
fólki. Ef bilun yrði á Bæjarhálsi,
á mínum vinnustað, þá fengi ég
SMS-skilaboð um það en ekki ef
bilun verður í hverfinu sem ég bý í
vegna þess að símanúmerið er ekki
skráð á heimili mitt. Það sem ég hef
þá gert er að skrá farsímanúmerið,
sem ég hef til afnota, á viðskiptavi-
nasíðuna mína á vef Orkuveitunn-
ar, www.orkanmin.is. Þá fæ ég SMS
frá fyrirtækinu ef bilun verður í
Staðahverfinu, þar sem ég bý. Þar
með get ég varað fjölskyldumeð-
limi við hugsanlegri hættu nú eða
bent þeim á að skella sér í sund ef
baðferð var fyrirhuguð.
Vegna bilunar
þarf að loka fyrir …
ORKUVEITAN
Inga Dóra
Hrólfsdóttir
framkvæmdastjóri
hjá Orkuveitunni
➜ Um langt árabil
hafa tilkynningar ver-
ið bornar í hús þegar
loka hefur þurft fyrir
vegna tenginga eða
viðhalds.
FRAMÚRSKARANDI
Þú veist það strax og þú sérð hann. Það er eitthvað sérstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin togar í þig um leið.
Útlitið hvíslar að þér einhverju um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða, hvort
sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl.
Leyfðu honum að heilla þig. Komdu og reynsluaktu Evoque. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn.
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
8
9
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
NÝR RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.770.000 KR.
4x4 - TD4 2,2 dísil, sjálfskiptur - Eyðsla 6,5 l/100 km.*
OPIÐ LAUGARDAGA
FRÁ 12-16
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080