Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 28

Fréttablaðið - 06.09.2013, Side 28
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Laxdæla sker sig úr Íslendingasög-unum að því leyti að hún er eina sagan þar sem konur eru í aðalhlut- verki. Það eru auðvitað konur í öðrum sögum en þar eru þær viðföng karlanna og skipta ekki máli. Guðrún Ósvífurs- dóttir er aðalsöguhetja Laxdælu,“ út- skýrir Birna Lárusdóttir þjóðfræðingur en hún mun leiða gesti Laxdæluhátíðar um sögusvið bókarinnar á morgun að Laugum í Sælingsdal. Þetta er í fyrsta sinn sem Laxdælu- hátíð er haldin. Yfirskrift hátíðarinnar er Brjáluð ást og segir Birna líklegt að einhverjar ástarsögur verði sagðar. „Ég reikna nú með að flestir vilji fá að heyra eitthvað um ástir í Laxdælu. Við hefjum ferðina klukkan tíu á hlaðinu heima hjá Guðrúnu Ósvífursdóttur, Laugum í Sæ- lingsdal, hennar fæðingarstað og förum um með rútu. Við komum síðan við á þeim slóðum þar sem atburðir í sögunni vissulega gerðust. Fólk fær því söguna beint í æð,“ segir Birna. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og verður fjallað um Laxdælu frá ólíkum sjónarhornum. Yfirferð Birnu lýkur um hádegi og eftir að gestir hafa snætt hádegisverð mun Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, setja hátíðina formlega og opna um leið sýninguna Keltneskur arfur á Vesturlandi. Sú sýning var áður í Görðum á Akra- nesi en hún er unnin af Þorvaldi Frið- rikssyni fornleifafræðingi og Friðþjófi Helgasyni ljósmyndara. Sýningin saman- stendur af ljósmyndum og texta sem fjallar um arfleifðina meðal annars út frá tungumálinu og örnefnum á Vesturlandi. Þá verður spurningakeppni um Lax- dælu slegið upp og fjallað um söguna frá sjónarhóli tveggja kynslóða. Einnig munu tveir norrænir leikhópar setja upp stutta leikþætti úr Laxdælu. Karlakórinn Frosti kemur fram og um kvöldið verður slegið upp harmóníkuballi. En nauðsynlegt að hafa lesið Laxdælu til að njóta yfirferðarinnar? „Nei, fólk þarf ekki að hafa lesið bókina. En það skaðar auðvitað ekki,“ segir Birna. „Það er mjög gaman að lesa Laxdælu.“ Ókeypis er á hátíðina en 1.000 krónur kostar inn á ballið. ■ heida@365.is BRJÁLUÐ ÁST Í DÖLUNUM SÖGUSLÓÐIR Laxdæluhátíð verður haldin að Laugum í Sælingsdal á morgun. Farið verður um sögusvið Laxdælu þar sem gestir fá söguna beint í æð af vörum Birnu Lárusdóttur þjóðfræðings. Um kvöldið verður harmóníkuball. GUÐRÚNARLAUG Laxdæluhátíð verður haldin á morgun laugardag að Laugum í Sælingsdal, fæðingar- stað Guðrúnar Ósvífurs- dóttur. MYND/JSE Amma mús opnar útibú á Laugaveginum í dag kl. 11 10% afsláttur af prjónagarni og útsaumspakkningum, föstudag, laugardag og sunnudag. Kynning á laugardag frá kl. 12-14, Philippe Ricart kynnir útsaumaða fuglapúða Skúlatún 2 - 105 Reykjavík idan@idan.is - www.idan.is Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig! Hefur þú starfað við vélvirkjun, renni- smíði, blikksmíði eða stálsmíði í 5 ár eða lengur og vilt ljúka námi í faginu? Áhugasömum er bent á að hafa samband við IÐUNA fræðslusetur í síma 590 6400 eða með því að senda fyrirspurn á radgjof@idan.is Raunfærnimat miðar að því að meta færni og þekkingu sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast. Inntökuskilyrði í raunfærnimat er 5 ára starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur. Einnig er boðið upp á raunfærnimat í húsasmíði og skrúðgarðyrkju. Kynningarfundur verður haldinn þriðju- daginn 10. september kl. 17.00 að Skúlatúni 2, 6. hæð, 105 Reykjavík. NÁNARI UPPLÝSINGAR Á IDAN.IS RAUNFÆRNIMAT D A G SV ER K .IS / ID A N 0 9 1 3 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS JBL Cinema SB200 59.990 VERÐ HEIMABÍÓ Í EINUM HÁTALARA HELSTU KOSTIR • Getur notað sömu fjarstýringu og sjónvarpið • Harman Display Surround tækni • Þráðlaus Bluetooth tenging • Einfalt í uppsetningu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.