Fréttablaðið - 06.09.2013, Qupperneq 40
FRÉTTABLAÐIÐ Heilsudrykkir Hildar. Hera Hilmarsdóttir. Snyrtibuddan. Götutískan og innblástur. Spjörunum úr og Helgarmaturinn.
8 • LÍFIÐ 6. SEPTEMBER 2013
Þ
etta verða fimmtíu uppskriftir að alls konar drykkjum og ýmis
fróðleikur fyrir alla fjölskylduna. Bókinni verður skipt upp í kafla
sem eru þá grænir drykkir, möndludrykkir, skyrdrykkir og fleira,“
segir Hildur Halldórsdóttir lífeindafræðingur. Hennar fyrsta bók
er væntanleg á markað fljótlega. Bókin er ætluð allri fjöl skyldunni
en Hildur segist hafa sjálf farið að grúska í drykkjum þegar hún var
heima í fæðingarorlofi. „Mér fannst mig vanta meiri næringu í kropp-
inn eftir að hafa lifað á svo einhæfu fæði og fór því að skoða möguleikana
og kolféll fyrir þessu.“ Hildi þótti erfitt að nálgast góðar uppskriftir að
drykkjum á íslensku og fátt var um innihaldslýsingar svo hún fór að
prófa sig áfram. Drykkina segir hún koma í staðinn fyrir máltíð og ekki
sé nauðsynlegt að kaupa það dýrasta í heilsubúðunum til að útbúa drykk-
ina, því auðvelt sé að notast við það sem til er í skápunum heima.
50 HEILSUDRYKKIR
FYRIR FJÖLSKYLDUNA
Hildur Halldórsdóttir gefur út sína fyrstu bók með
skemmtilegum uppskriftum að drykkjum.
að sýna, hvernig það er tekið upp
og hverjir koma að því. Það er alls
konar aukapappírsvinna og svona
sem fylgir, enda skiptir miklu máli
að allir fari eftir því sem samið er
um og að þú sért við stjórnvölinn
þegar kemur að þeim tökum.“
Nú hefur þú verið að leika á
móti stórstjörnum úti, verður þú
einhvern tíma feimin? „Já, algjör-
lega. Ég er frekar feimin held ég
yfirleitt. Þegar ég byrjaði í Önnu
Kareninu var ég smá stressuð.
Svo kom ég þangað og hitti fullt af
frægu fólki en það voru allir voða-
lega venjulegir. Stundum er smá
kostur að vera ekki að velta sér of
mikið upp úr öllu þessu leikara-
lífi. Mér finnst það geta verið galli
þegar maður veit of mikið um fólk.
Eitt sinn var ég að leita að aðstöðu
þar sem ég gæti fengið mér te og
labbaði inn í herbergi og fór að
róta í einhverju á borðinu en fann
bara orkustykki. Daginn eftir sá ég
að það stóð Keira Knightley á hurð-
inni og þá var þetta búningsher-
bergið hennar. Ég sagði nú reyndar
aldrei frá þessu,“ segir Hera og
hlær.
Það eru ekki margir ís lenskar
leikkonur sem hafa náð sömu vel-
gengni og þú á svona skömmum
tíma. Er einhver sérstök upp-
skrift? „Það er engin rétt leið í
þessum bransa og þú getur ekki
vitað hvaða leið er rétt fyrir-
fram. Maður vonar að það sé ein-
hver skynsemi blönduð við sína
innri rödd. Ef fólk á erindi í ein-
hvern bransa og hefur áhuga, vilja
og brennandi drifkraft þá mun það
fara þangað. Það er ekki hægt að
endurtaka leik einhvers annars.
Fyrir mig var best að velja leiðina
sem var út fyrir þægindahringinn.
Annars hefði ég ekki gert þetta af
heilum hug.“
Enskan eins og krossgáta
Hvernig er að leika á ensku. Ertu
jafnvel farin að hugsa á ensku í
dag? „Það er mjög skemmtilegt. Ég
held að tungumál virki stundum
eins og ákveðin tegund af stærð-
fræði í höfðinu á manni. Svona
eins og krossgátuheilaparturinn,
sem á það til að hitna allverulega
þegar maður einbeitir sér að erf-
iðum krossgátum. En það eru nátt-
úrulega til endalaust af orðum í
þessu tungumáli svo ég er engan
veginn orðin einhver pró þó ég
hugsi mikið á ensku. Það er bara
einfaldara en að vera alltaf að þýða
á milli.“
Saknar þú stundum Íslands,
hvers þá? „Já, án nokkurs vafa.
Aðallega fjölskyldunnar og vina
minna. Ég geri þó mitt besta við
að halda þeim samböndum eins
heitum og ég get með fjarsam-
skiptum. Þó verð ég að viðurkenna
að ég er ekki mikið fyrir fjarsam-
skipti og get verið léleg í þeim.
Síðan er ég dugleg að koma í heim-
sókn til landsins. Ég sakna líka
brakandi loftsins hérna og víðátt-
unnar sem er minna af í London.“
Hver er drifkrafturinn í þínu
lífi? „Það er einhver innri tilfinn-
ing sem keyrir mig áfram og ég
reyni að hlusta á. Ég er góð í stóru
hlutunum en get verið mjög léleg
í litlu hlutunum, eins og að velja
mér mat eða drykk á kaffihúsi. Ég
er virkilega að reyna að bæta mig
í því. Svo blæs alls kyns fólk í mig
lífi. Vinir og vandamenn, fólk og
dýr sem fá mann til að horfa öðru-
vísi á heiminn.“
Hvaða ráð myndir þú gefa
öðrum ungum leikkonum sem
vilja flytja út og freista gæfunnar?
„Bara skella sér í það. Innst inni
veit maður alltaf hvað skal gera og
ef sú tilfinning er til staðar á bara
að leyfa henni að ráða. Passa samt
hvaða skref maður tekur, eins og
hvaða skóla maður fer í til að byrja
með og á hvaða brautir. Það er að
segja ef maður velur að fara skóla-
leiðina, sem var allavega málið
fyrir mig, sem býr mann svo vel
undir tungumálið, bransann úti
og auðvitað allt hitt. Svo þarf bara
að muna hver maður er í grunn-
inn, sérstaklega þegar skólinn fer
að klárast og allt í einu þarf maður
að standa á eigin fótum. Þá er það
aftur tilfinningin en ekki ráðlegg-
ingar skólans sem skipta máli.“
Hvaða verkefni eru á næstunni
hjá þér? „Sumarbörn hér heima og
svo halda tökur áfram á annarri
seríu DaVinci ś demons úti í Wales.
Svo er það Vonarstræti í leikstjórn
Baldvins Z, sem frumsýnd verður
í byrjun næsta árs, en tökum á
henni lauk núna í vor.“
Hverjir eru svo framtíðar-
draumarnir? „Ég er ekkert mikið
fyrir að tala um draumana mína.
Ég trúi svolítið á að vera ekki of
mikið að blaðra um hluti og fara
varlega með orðin.“
það getur náttúru-
lega verið partur
af vinnu
leikara að
koma fram
nakinn …
Kókos- og lime-
smoothie
(334 hitaeiningar)
Hrikalega frískandi og
bragðgóður drykkur
1 dl kókosmjólk
2 dl ferskur vel þrosk-
aður ananas (160 g)
½ banani (má sleppa)
2 msk. ristaðar kókos-
flögur frá Himneskri
hollustu
1 msk. chia-fræ
Lime-safi úr um hálfu
lime
Um 1 dl vatn
Allt sett í blandara og
blandað vel. Ef þið viljið
minnka kolvetni og auka
prótein, þá getið þið sleppt
banananum og bætt við
hreinu próteini.