Fréttablaðið - 06.09.2013, Page 45
HELGIN | FÓLK | 3
Hjóladagur verður haldinn í Breiðholti á
morgun, laugardag. Íbúasamtökin Betra
Breiðholt standa fyrir deginum sem er
ætlaður fjölskyldum og fólki á öllum aldri.
„Mig langaði að gera eitthvað sem gæfi fjöl-
skyldum tækifæri til að vera saman,“ segir
Helgi Kristófersson, formaður samtakanna.
„Þá er svo mikið af hjólastígum úti um allt
höfuðborgarsvæðið og ekki síst í Breiðholti
og það langar okkur að benda fólki á,“ segir
Helgi.
Dagskráin hefst klukkan 10 við Breið-
holtslaug. „Þar verður Dr. Bæk með ókeypis
hjólaskoðun fyrir alla sem vilja og Breið-
holtslaug býður öllum ókeypis í sund frá 10
til 12,“ segir Helgi. Klukkan 12 verður farið í
hjólaferð. „Lagt er af stað frá Breiðholtslaug
áleiðis í Seljahverfi. Við hjólum frá bæran
stíg sem liggur milli Seljahverfis og Sala-
hverfis í Kópavogi og endum í Mjóddinni,“
segir Helgi og tekur fram að hjóla túrinn
henti fólki á öllum aldri. „Þetta er fimm kíló-
metra hringur og við förum rólega.“
Klukkan 13 hefst dagskrá í Mjódd. Þar
býður Hjartaheill upp á ókeypis blóðþrýst-
ingsmælingu, Íslandsbanki gefur öllum
gestum endurskinsmerki, Nettó býður upp
á hressingu, Dr. Bæk skoðar hjól og tón-
listarmaðurinn Svavar Knútur tekur lagið.
„Við hvetjum alla sem hafa áhuga á hjól-
reiðum, útivist, góðri tónlist, almennri
gleði, góðri heilsu, lífi og fjöri til að mæta og
sérstaklega bjóðum við borgarfulltrúa vel-
komna í hjólatúrinn,“ segir Helgi og hlakkar
til hjóladagsins.
GLEÐILEGUR HJÓLADAGUR Í BREIÐHOLTI
FJÖLSKYLDAN SAMAN Hjóladagur verður haldinn
í Breiðholti á morgun.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hátíð bjórsins verður haldin
í Reykjanesbæ á morgun
laugardag. Þar munu flest ís-
lensku brugghúsin kynna fyrir
gestum þær bjórtegundir sem
þau framleiða og selja hér-
lendis. Hátíðin hefur verið
haldin síðan árið 2011 og er
fastur liður í lífi margra bjór-
unnenda. Þau brugghús sem
kynna veigar sínar á hátíðinni
eru Bruggsmiðjan, sem kynnir
ýmsar gerðir af bjórnum Kalda,
þar á meðal Október Kalda,
Kalda ljós og Kalda dökkan.
Brugghúsið Steðji mun kynna
bjórinn Steðja Lager, Steðja
reyktan og Steðja jarðarberja-
bjór. Vífilfell og Einstök ölgerð
munu í sameiningu kynna
afurðir sínar og einnig Ölgerðin
og Borg brugghús. Til sölu
verða einnig bolir og bjórglös
merkt einstökum brugghúsum.
Hátíðin fer fram á kaffihús-
inu Kaffi Duus í Reykjanesbæ
laugardaginn 7. september og
stendur yfir frá kl. 17-21. Að-
standendur hátíðarinnar benda
gestum á að koma með reiðufé
til öryggis því ekki er víst að öll
brugghúsin verði með posa á
staðnum. Nánari upplýsingar
má finna á www.bjorspjall.is.
ÁRLEG
BJÓRHÁTÍÐ
● GLEÐI
Reykjavíkurborg og Hamingju-
húsið bjóða borgarbúum í
hamingjuhádegi alla föstudaga
í september frá kl. 12.15 til
12.45 í Tjarnarsal Ráðhússins.
Í dag flytur Edda Björgvins-
dóttir stutt upphafsorð. Síðan
verður dansað svo að allir
komist í endorfín-
vímu. Gleði- og
vímugjafi dagsins
verður Bryndís
Ásmundsdóttir
leik- og söng-
kona. Þá mun
Jón Gnarr
borgarstjóri
ávarpa
hamingju-
sama
gesti.
HAMINGJU-
HÁDEGI
Ragnheiður Garðarsdóttir hefur starfað
sem leikskólakennari í 19 ár. Hún vinnur
mikið á gólfinu og þarf þar af leiðandi
sífellt að vera að setjast og standa upp
aftur. Ragnheiður er greind með slitgigt
og hefur fundið fyrir verkjum í hægri
mjöðminni um árabil.
"Haustið 2012 var ég í berjamó og varð svo
slæm á eftir að ég þurfti að fá sprautur og
sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Ég skánaði við
það en var alltaf með seyðing og verki.
Suma daga var ég þokkaleg en aðrir voru
hreint helvíti á jörð. Næturnar hafa líka í
gegnum árin verið mér erfiðar. Ég var með
eilífan seyðing í mjöðminni og niður í tá
og gat ómögulega legið á hægri hliðinni.
Ég sá best hversu slæmt ástandið var á því
hvað göngulagið mitt var orðið skelfilegt í
myndbandi frá Flórídaferð fjölskyldunnar
haustið 2011."
Öðlaðist nýtt líf
"Ég hef notað NUTRILENK GOLD síðan í
september 2012 með frábærum árangri,
og þá meina ég árangri. Í byrjun tók ég 6
töflur á dag í 2 mánuði en í dag tek ég 3
töflur á dag. Ég hef stundað æfingar í Meta-
bolic af fullum krafti síðan vorið 2013 og
tek þá aðeins meira af NUTRILENK GOLD.
Núna sef ég allar nætur og get beygt mig
án sársauka. Ég átti mjög erfitt með að
klæða mig í sokka og skó á morgnana og
þurfti að fá aðstoð. Það er allt annað í dag,
ég get bókstaflega allt! Ég er meira að
segja farin að fara í kraftgöngur á ný.
Ykkur finnst þetta kannski vera ýkt saga …
en hún er sönn. Ég öðlaðist nýtt líf með
NUTRILENK GOLD."
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK
- hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina
Verkirnir hreint helvíti á jörð
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna.
Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum
þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó-
tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til
mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan
hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef
og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika.
Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er
öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af
kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki.
Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski
og slitnum liðum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef